Fréttablaðið - 06.11.2019, Qupperneq 28
Aðrar reglur
samkeppnis-
laga eru nægilega
strangar og SKE getur
ávallt gripið inn í ef
fyrirtæki misstíga sig.
Það er feikinóg.
Hörður Felix Harðarson
lögmaður
MARKAÐURINN Instagram fréttablaðsins@frettabladidfrettabladid.is
Miðvikudagur 6. nóvember 2019FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS UM VIÐSKIPTI OG FJÁRMÁL |
Dagný Hrönn Pétursdóttir verður f r a m k væmd a st jór i f y r i r-tækisins Geothermal Lagoon
samkvæmt heimildum Markaðarins
en fyrirtækið hyggst byggja baðlón á
Kársnesinu með útsýni út á Faxaflóa.
Dagný starfaði um árabil sem fram-
kvæmdastjóri Bláa lónsins en hún lét
af störfum haustið 2017. Á síðasta ári
tók hún við starfi stjórnarformanns í
Íslenskum fjárfestum.
Unnið er að hönnun baðlónsins og
gera áætlanir ráð fyrir að það rísi í
Kársnesi árið 2021. Þá var greint frá
því að kanadíska fyrirtækið VIAD
hefði fjárfest fyrir 14 milljónir kanad-
ískra dala, eða um 1,3 milljarða króna,
og fengið 51 prósents hlut í rekstrarfélagi
lónsins. VIAD, sem er skráð í kauphöll-
inni í New York, starfar í Bandaríkj-
unum, Kanada, Sameinuðu arabísku
furstadæmunum og Mið-Evrópu. – tfh
Dagný yfir uppbyggingu baðlóns
Dagný Hrönn
Pétursdóttir.
PwC | Sími 550 5300 | www.pwc.is
PwC á Íslandi er framsækið og traust fyrirtæki sem veitir sérfræðiþjónustu á sviði fyrirtækja- skatta- og lögfræðiráðgjafar,
endurskoðunar og reikningsskila. Fyrirtækið er íslenskt og er hluti af alþjóðlegu neti sjálfstæðra fyrirtækja sem aðstoðar
viðskiptavini sína við að auka verðmæti, stjórna áhættu og bæta árangur sinn.
Reykjavík | Akureyri | Reykjanesbær | Húsavík | Selfoss | Hvolsvöllur | Vestmannaeyjar
2019
Jafnlaunavottun
Sanngjörn
laun fyrir jafn-
verðmæt störf
PwC býður upp á heildstæða þjónustu í launamálum
og jafnlaunavottun. Við búum yfir áralangri reynslu
og lausnum sem virka.
31.10.2019
Helgi Vífill
Júlíusson
SKOÐUN
Stundum þarf að kippa vinstri
mönnum niður á jörðina. Sér-
staklega þegar þeir telja sér og
öðrum trú um að ríkisbankar séu
óþrjótandi gullnáma. Því miður
erum við ekki svo heppin. Annars
hefði fátækt verið útrýmt með ein-
földum hætti.
Kolbeinn Óttarsson Proppé, þing-
maður Vinstri grænna, fór mikinn
á Sprengisandi á sunnudag. Hann
er orðheppinn og það geislar
af honum sjálfsöryggið. Þing-
maðurinn taldi að þjóðin væri í
einstakri stöðu því stærsti hluti
bankakerfisins væri í ríkiseigu.
Víkka ætti sjóndeildarhringinn og
hugsa bankakerfið út frá loftslags-
málum. „Leyfum okkur að hugsa
ekki allt út frá ströngum kapítal-
ískum kröfum um arðsemi heldur
þjóðarheill,“ sagði þingmaðurinn.
Það er mikilvægt að horfast í
augu við loftslagsvána og leita
leiða til að til að stemma stigu
við hlýnun jarðar. Það er engu að
síður ekki málstaðnum til fram-
dráttar að nota hann sem yfirvarp
til að knýja fram gamla pólitíska
draumsýn um ríkisbanka.
Þeir stjórnmálamenn sem vilja að
ríkið fjármagni umbótaverkefni
í þágu loftslagsmála ættu ein-
faldlega að horfa til þess að nýta
fjármuni ríkisins en ekki eiga
bankakerfið. Bankar eru enda
áhættusamir, mikið fé getur tapast
á skömmum tíma. Það er óæskilegt
að ríkið bindi verulegt fjármagn í
þeim í stað þess að leggja fjármun-
ina í skynsamlegri verkefni.
Það er raunar þjóðarheill að
bankar víki ekki frá „ströngum“
kröfum um arðsemi. Horfa þarf
til þeirra við lánveitingar. Þegar
vikið er frá arðsemiskörfu er hætt
við að eigið fé banka fari hratt
þverrandi.
Kolbeinn, sem er sagnfræðingur,
vildi læra af sögunni og benti á að
ríkið hefði eignast banka við hrun
þeirra árið 2008. Ef læra á af sög-
unni er rétt að rifja upp að þróun
banka á Íslandi fékk skjótan endi
árið 1930 með yfirtöku ríkisins
á bankakerfinu og fjármagns-
höftum ári síðar. Ríkisreksturinn
gerði það að verkum að banka-
kerfið á Íslandi á tuttugu öldinni
var vanþróað samanborið við
önnur vestræn ríki. Það hafði ekki
sömu burði og þekktist annars
staðar til að þjónusta heimilin og
fyrirtækin sem dró úr lífsgæðum í
landinu.
Ríkisbankarnir sigldu ekki lygn-
an sjó heldur þurfti hið opinbera
að koma þeim til bjargar á þessum
árum. Það er óþarfi að endurtaka
þann tíma. Ríkisbankar veita
falskt öruggi og eru helsi.
Gullnáma
Kolbeins
0
6
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
2
8
-C
E
0
4
2
4
2
8
-C
C
C
8
2
4
2
8
-C
B
8
C
2
4
2
8
-C
A
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
5
_
1
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K