Fréttablaðið - 06.11.2019, Blaðsíða 30
Hingað hefur komið fólk sem
þyrlan hefur bjargað og það
hafa verið lögð blóm við hana.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Fjóla S. Hannesdóttir
frá Hnífsdal,
lést á hjúkrunarheimilinu Eyri,
Ísafirði, sunnudaginn 27. október
síðastliðinn. Útför hennar verður gerð frá
Hnífsdalskapellu laugardaginn 9. nóvember kl. 14.00.
Hannes Óskarsson Sigríður Jóna Þráinsdóttir
Friðbjörn Óskarsson Guðrún Hreinsdóttir
Aðalsteinn Óskarsson Guðrún Hermannsdóttir
Indriði Óskarsson Laufey Ólafsdóttir
Guðmundur Páll Óskarsson Gerður Engilrós Einarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Signa Hallberg Hallsdóttir
lést á hjúkrunarheimilinu
Lögmannshlíð laugardaginn
2. nóvember. Útför hennar fer fram frá
Akureyrarkirkju mánudaginn 11. nóvember
kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Oddfellowregluna á Akureyri.
Ólafur Búi Gunnlaugsson Agnes Jónsdóttir
Halla S. Gunnlaugsdóttir Haukur Harðarson
Helga H. Gunnlaugsdóttir Stefán Birgisson
ömmu- og langömmubörn.
Elskuleg eiginkona mín,
systir, mágkona og tengdadóttir,
Hildur Davíðsdóttir
Háteigsvegi 6, Reykjavík,
lést á Landspítalanum við
Hringbraut 1. nóvember.
Útförin verður auglýst síðar.
Hreinn Hafliðason
Valborg Davíðsdóttir Ragnar Breiðfjörð Ragnarsson
Kristrún Davíðsdóttir Ásgeir Eiríksson
Jenný Davíðsdóttir Ólafur Einarsson
Elsa María Davíðsdóttir Daníel Sveinsson
Jónína B. Sigurðardóttir Hafliði Hjartarson
Hjörtur Hafliðason Anna Bára Baldvinsdóttir
og systkinabörn.
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Birgir Ísleifur Gunnarsson
fyrrverandi borgarstjóri og
seðlabankastjóri,
Fjölnisvegi 15,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans, mánudaginn 28. október.
Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju föstudaginn
8. nóvember kl. 15.00.
Björg Jóna Birgisdóttir Már Vilhjálmsson
Gunnar Jóhann Birgisson Sveinbjörg Jónsdóttir
Ingunn Mjöll Birgisdóttir Viktor Gunnar Edvardsson
Lilja Dögg Birgisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona, móðir,
tengdamóðir, dóttir, systir og amma,
Lydía Jónsdóttir
Norðurbakka 9A, Hafnarfirði,
lést á líknardeild Landspítalans
fimmtudaginn 31. október síðastliðinn.
Útför fer fram frá Víðistaðakirkju í
Hafnarfirði mánudaginn 11. nóvember klukkan 13.00.
Einar Skaftason
Jón Arinbjörn Einarsson Bryndís Jenný Kjærbo
Edda Anika Einarsdóttir Elmar Ingvi Haraldsson
Jón Arinbjörn Ásgeirsson
Hjalti Hávarðsson
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Kristín Dagbjört
Þórðardóttir
Njarðarvöllum 2,
áður til heimilis að Grundarvegi 13,
Njarðvík,
lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu, Nesvöllum
sunnudaginn 27. október. Útför hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Hrafnistu, Nesvöllum, fyrir góða umönnun og hlýju.
Hörður Óskarsson Hildur Kristjánsdóttir
Margrét Óskarsdóttir Rúnar R. Woods
Guðmundur Óskarsson Hrafnhildur Svavarsdóttir
Þórður Óskarsson Natalia Herrera
Auður Óskarsdóttir Sverrir Sverrisson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Þorvaldur G. Óskarsson
Smáragrund, Skagafirði,
lést 1. nóvember.
Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju
föstudaginn 8. nóvember klukkan 11.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag
Skagafjarðar.
Eyrún Ósk Þorvaldsdóttir Rúnar Páll Björnsson
Edda Björk Þorvaldsdóttir Finnur Jón Nikulásson
barnabörn og barnabarnabörn.
Flug vekur áhuga margra. Fæstir hafa sérþekkingu á því eða kunna að f ljúga en fólki finnst það spennandi og ánægjusvipur þess leynir sér ekki þegar það fer hér í gegn,“
segir Steinunn María Sveinsdóttir sem
er nýlega tekin til starfa sem safnstjóri
Flugsafnsins á Akureyri. Hún er með BA-
gráðu í sagnfræði og safnafræði frá Aar-
hus Universitet, auk þess sem hún hefur
lagt stund á meistaranám í safnafræði
við Háskóla Íslands. Undanfarin fimm
ár hefur hún starfað sem fagstjóri Síldar-
minjasafns Íslands á Siglufirði.
Steinunn segir eigin f lugáhuga hafa
aukist í seinni tíð, enda sé eiginmaður-
inn, Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson,
f lugmaður og hann reki lítið f lugfyrir-
tæki. „Flugheimurinn er orðinn fyrir-
ferðarmeiri í lífi mínu en áður og ég er
farin að f ljúga meira en ég gerði. En ég
er úr sjómannafjölskyldu og hef starfað
í Síldarminjasafninu svo mér er tamara
að tala um fiska og báta en f lug. En
þessi svið eru lík að því leyti að það er
sértækur orðaforði í þeim báðum og ég
læri þennan nýja hægt og rólega. Það er
gott að geta spurt Þorvald ef einhver orð
vefjast fyrir mér og svo er ég, sem betur
fer, umvafin mönnum sem koma reglu-
lega í kaffi á safnið og eru hafsjór af fróð-
leik. Að safninu standa nefnilega holl-
vinasamtök og það er dýrmætt hverju
safni að eiga slíkan hóp.“
Steinunn tók við kef linu af Gesti
Einari Jónassyni sem hafði sinnt safn-
vörslunni í 10 ár og hún reiknar með að
hann kíki í kaffi. „Gestur Einar verður
alltaf órjúfanlegur hluti af þessu safni á
einn eða annan hátt og ég á örugglega
eftir að læra margt af honum,“ segir hún.
Reglulegur opnunartími er á Flugsafn-
inu frá maí út september. Yfir veturinn
er opið milli 14 og 17 á laugardögum,
annars eftir samkomulagi. „Í þessum
heimi lærist manni fljótt að vera sveigj-
anlegur og reyna að opna þegar fólk
kemur.
Ég er hér á dagvinnutíma og ef fólk
kemur hleypi ég því inn ef ég hef tæki-
færi til,“ segir Steinunn og kveðst þó
alltaf hafa nóg annað að sýsla. „Okkur
er ætlað að sinna fimm grunnstoðum
safna, að varðveita, skrá, rannsaka og
miðla. Það er heljarinnar vinna. Við
erum svo heppin að hollvinasamtökin
vinna að viðhaldi á ýmsu hér og svo
koma flugvirkjanemar í janúar á hverju
ári til að skoða og læra. Þetta er mjög lif-
andi staður, alltaf eitthvað um að vera,
menn eru hér að laga og taka til, smíða
módel eða hvað annað sem liggur fyrir,
þannig að ég er sjaldnast ein. Fólk hefur
ástríðu fyrir safninu, maður finnur það
glöggt, enda er vagga innanlandsflugs-
ins á Akureyri.“
Flugsafnið er ríkt af alls konar gripum,
bæði smáum og stórum. Steinunn segir
safnmuni stöðugt að berast og það sé af
hinu góða. Fólk hafi safnið í huga þegar
það sé að taka til. Hún bendir á að til
séu samtök íslenskra sjóminjasafna,
enda séu mörg slík í landinu en bara eitt
stórt f lugsafn. Þess vegna hafi það svo
stórt hlutverk. „Við erum að varðveita
gripi sem eru mikilvægir í sögulegu sam-
hengi – flugfélög koma og fara og hingað
berast gripir sem eru ekkert endilega
mjög gamlir en eru samt hluti af sögunni
og fólk leyfir okkur að meta varðveislu-
gildi þeirra áður en það hendir þeim.“
Spurð hvort einhver safngripur fái
athygli umfram annan nefnir Steinunn
sviff lugu sem hangi niður úr loftinu.
„Sviff lugan var smíðuð hér á Akureyri
á fjórða áratugnum og er afskaplega fal-
legur gripur. Svo eru hér vélar frá Land-
helgisgæslunni, bæði Fokker og björg-
unarþyrlan Sif. Þær hreyfa við fólki.
Hingað hefur komið fólk sem þyrlan
hefur bjargað og það hafa verið lögð
blóm við hana. Ekki náttúrlega í minni
tíð, enda er ég bara búin að vera hér í
nokkra daga. Fólk má ganga um Fok-
kerinn svo það er ekki þannig að fólk
megi bara horfa en ekkert snerta.“
gun@frettabladid.is
Ástríða fyrir Flugsafninu
Steinunn María Sveinsdóttir sagnfræðingur er nýr safnstjóri Flugsafns Íslands sem
er á Akureyrarflugvelli. Hún segir það lifandi stað og alltaf eitthvað um að vera.
„Flugheimurinn er orðinn fyrirferðarmeiri í lífi mínu en áður. “ MYND/AUÐUNN NÍELSSON
6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R14 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
0
6
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
2
8
-B
A
4
4
2
4
2
8
-B
9
0
8
2
4
2
8
-B
7
C
C
2
4
2
8
-B
6
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
5
_
1
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K