Fréttablaðið - 09.11.2019, Blaðsíða 6
Ég get ekki tjáð mig
um mál einstakra
fanga, en það er ekki óal-
gengt að fangar séu fluttir
milli fangelsa.
Páll Winkel, for-
stjóri Fangelsis-
málastofnunar
EKKI MISSA AF SÝNINGU ÁRSINS
Allra síðustu sýningar komnar í sölu
6 Grímuverðlaun
borgarleikhus.is
JAFNRÉTTISMÁL Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra kynnti stöðu jafn-
launavottunar á ríkisstjórnarfundi
í vikunni. Á fundinum kom fram að
kallað hefði verið eftir upplýsingum
um stöðu jafnlaunavottunar hjá rík-
isstofnunum frá öllum ráðuneytum
og höfðu upplýsingar borist frá 122
sem öðlast eiga vottun fyrir áramót.
Alls hafa 35 opinberir aðilar af
þessum 122 fengið jafnlaunavottun,
43 stefna á að öðlast hana fyrir ára-
mót og 42 eru í innleiðingarferli sem
ekki er gert ráð fyrir að klárist fyrir
áramót. Tvær stofnanir hafa ekki
hafið innleiðingarferli, Lánasjóður
íslenskra námsmanna og Sam-
keppniseftirlitið.
Öllum opinberum stofnunum,
sjóðum og fyrirtækjum sem eru að
hálfu eða að meirihluta rekin af rík-
inu og þar sem starfa 25 starfsmenn
eða fleiri ber samkvæmt lögum að
hafa öðlast jafnlaunavottun fyrir 31.
desember 2019. Sömu lög gilda um
öll fyrirtæki þar sem starfa fleiri en
250 manns. Heimilt er að beita dag-
sektum verði skilyrði laganna ekki
uppfyllt.
Katrín Jakobsdóttir telur ólíklegt
að það takist að klára innleiðingar-
ferli þeirra 85 aðila sem samkvæmt
lögum skuli öðlast vottun fyrir ára-
mót en hafa enn ekki gert það. „Ég
er bjartsýn á að þetta verði allavega
komið af stað hjá þeim sem heyra
undir lögin en ég á ekki von á því
að það verði klappað og klárt fyrir
áramót,“ segir hún.
„Þetta er verkefni sem fór hægt af
stað en hefur tekið við sér og ferlið
er þannig að gert er ráð fyrir að sjálf-
stæð vottunarstofa veiti vottunina.
Þeim hefur fjölgað og það hraðar á
ferlinu,“ segir Katrín. – bdj
Meirihluti hefur ekki öðlast jafnlaunavottun á tilsettum tíma
Katrín segir að fjölgun vottunarstofa muni hraða ferlinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
FANGELSISMÁL Þorsteinn Halldórs-
son sem dæmdur var til fimm og
hálfs árs fangelsisvistar í vor fyrir
ítrekuð kynferðisbrot gegn ungl-
ingspilti, var í gær f luttur úr opna
fangelsinu Sogni til afplánunar á
Litla-Hrauni.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins tengist f lutningurinn
brotum Þorsteins á reglum fang-
elsisins um notkun fjarskiptatækja.
„Ég get ekki tjáð mig um mál ein-
stakra fanga, en það er ekki óal-
gengt að fangar séu f luttir milli
fangelsa,“ segir Páll Winkel, for-
stjóri Fangelsismálastofnunar.
Hann segir að þótt meira frjálsræði
sé í opnum fangelsum sé einnig haft
eftirlit með því að fangar virði þær
reglur sem þar gilda, meðal annars
um notkun tölvu og farsíma.
Foreldrar brotaþolans í máli Þor-
steins hafa gagnrýnt að Þorsteinn
fái að afplána í opnu fangelsi en þau
voru í ítarlegu viðtali í helgarblaði
Fréttablaðsins um síðustu helgi.
Þar kom fram að þau hefðu átt
fund með Fangelsismálastofnun og
fengið loforð um að þeim yrði gert
viðvart um breytingar sem yrðu á
afplánun hans, til dæmis um dags-
leyfi, afplánun á ökklabandi og
reynslulausn. Þá fengu þau stað-
fest að Þorsteinn hefði aðgang að
tölvu og gæti til dæmis sent tölvu-
póst. Með flutningi hans frá Sogni
til Litla-Hrauns hefur Þorsteinn
glatað þeim aðgangi en Litla-Hraun
er skilgreint sem öryggisfangelsi og
réttindi fanga þar mun þrengri en í
opnu fangelsunum.
„Við spurðum hvort það hefði
ekkert að segja að gefin hefur verið
út ákæra á hendur honum fyrir brot
gegn öðru barni. Og hvort ekki sé
óeðlilegt að maður sem er dæmdur
fyrir alvarleg kynferðisbrot fari í
opið úrræði meðan málsmeðferð
er í gangi í óskyldu máli gegn öðru
barni,“ sagði faðir drengsins í við-
talinu.
Þorsteinn var dæmdur fyrir að
hafa ítrekað tælt drenginn til sín
með fíkniefnum, lyfjum og öðrum
gjöfum á borð við farsíma, peninga
og tóbak, og nýtt sér yfirburði sína
til að hafa við hann samræði og
önnur kynferðismök. Áður en Þor-
steinn var dæmdur braut hann
ítrekað gegn nálgunarbanni gagn-
vart drengnum.
Hann var dæmdur í sjö ára fang-
elsi í héraði í fyrra en Landsréttur
stytti dóminn í fimm og hálfs árs
fangelsi í vor. Þorsteinn hefur nú
aftur verið ákærður fyrir að hafa
framið svipuð brot gegn barni,
bæði áður en og eftir að það var
fimmtán ára gamalt.
adalheidur@frettabladid.is
Þorsteinn færður á Litla-Hraun
vegna brota á reglum á Sogni
Þorsteinn Halldórsson
var í gær fluttur úr opna
fangelsinu Sogni á Litla-
Hraun. Hann afplánar
margra ára dóm fyrir
kynferðisbrot gegn ungl-
ingspilti. Flutningurinn
tengist brotum á reglum
sem gilda á Sogni.
Þorsteinn var fluttur af Sogni á Litla-Hraun sem er öryggisfangelsi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
HEILBRIGÐISMÁL Stjórn SÍBS hefur
farið þess á leit við Svandísi Svav-
arsdóttur heilbrigðisráðherra að
starfsstjórn verði tilnefnd til að
fara með málefni Reykjalundar. Á
meðan verði unnið að því að koma
á varanlegri stjórn og aðgreina
rekstur og endurhæfingu frá ann-
arri starfsemi.
Þá hefur Herdís Gunnarsdóttir,
settur forstjóri Reykjalundar,
ákveðið að láta af störfum fyrir
stofnunina. Hún segist líta svo á að
þau verkefni sem henni voru falin
tímabundið séu nú í höfn. Nánar á
fréttablaðið.is. – sar
Starfsstjórn
yfir Reykjalund
KJARAMÁL Verkfall ljósmyndara,
myndatökumanna og blaðamanna
á fjórum vefmiðlum stóð yfir í
fjórar klukkustundir í gær. Grunur
kom upp um verkfallsbrot hjá RÚV
og Morgunblaðinu.
Þannig hafi verktaki sem ekki er í
Blaðamannafélaginu verið fenginn
til að ganga í störf tökumanna á
RÚV á meðan á verkfalli stóð. Þá
birtust fréttir á mbl.is á þeim tíma
sem verkfallið náði yfir.
Átján blaðamenn á mbl.is sendu
í gær frá sér yfirlýsingu þar sem lýst
er yfir miklum vonbrigðum með
stjórnendur Morgunblaðsins. Þar
kemur fram að blaðamenn sem öllu
jöfnu skrifi ekki fyrir vefinn hafi
gert það á meðan á verkfalli stóð.
„Við teljum að þetta framferði sé
til þess fallið að varpa rýrð á mbl. is,
ekki síst þá blaðamenn sem þar
starfa og leitast eftir fremsta megni
við að sinna starfi sínu af heilindum
og fagmennsku,“ segir í yfirlýsing-
unni. Nánar á fréttablaðið.is. – sar
Blaðamenn og ljósmyndarar á
ritstjórn Fréttablaðsins eru félagar
í Blaðamannafélaginu.
Blaðamenn
mbl.is ósáttir
9 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
9
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:5
9
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
3
3
-1
5
B
4
2
4
3
3
-1
4
7
8
2
4
3
3
-1
3
3
C
2
4
3
3
-1
2
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
0
4
s
_
8
_
1
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K