Fréttablaðið - 09.11.2019, Blaðsíða 12
Tölvuleikjanotkun barna
í Kína verður takmörkuð
TÖLVULEIKIR Stjórnvöld í Kína hafa
ákveðið að setja tímamörk á tölvu
leikjanotkun barna. Munu allir
undir 18 ára aldri ekki getað spilað
netleiki frá klukkan 22.00 á kvöldin
til 8.00 á morgnana. Þá verður net
leikjanotkun takmörkuð við 90
mínútur á hverjum virkum degi
og í 180 mínútur á helgardögum og
opinberum frídögum.
Þá verður einnig sett þak á
hversu miklum peningum börn
og ungmenni mega verja til tölvu
leikjanotkunar. Börn að 16 ára aldri
mega aðeins eyða 200 júönum á
mánuði, eða um 3.500 krónum, en
16 og 17 ára börn mega eyða tvö
faldri þeirri upphæð.
Áætlanir Kínverja voru kynntar
á þriðjudaginn var en yfirvöld hafa
miklar áhyggjur af tölvuleikjafíkn
barna og telja að of mikil leikja
notkun hafi slæm áhrif á líkamlega
og andlega heilsu barna. Hafa yfir
völd meðal annars gagnrýnt leikja
framleiðendur fyrir að hanna of
ávanabindandi og tímafreka leiki.
Á 9 mánaða tímabili árið 2018 voru
yfirvöld treg til að gefa leyfi fyrir
nýjum tölvuleikjum.
Netleikjaröskun (Internet Gam
ing Disorder) var skilgreind sem
sjúkdómur af Alþjóða heilbrigðis
málastofnuninni fyrir rúmu ári.
Árið 2015 lést karlmaður í borginni
Sjanghæ eftir að hafa spilað World
of Warcraft samfleytt í 19 klukku
tíma.
Kína er einn af stærstu tölvu
leikjamörkuðum heims og stærsta
tölvuleikjafyrirtæki heims, Ten
cent, hefur þar höfuðstöðvar. Árið
2018 voru tekjur kínverskra tölvu
leikjafyrirtækja 38 milljarðar doll
ara, eða tæpar 5 billjónir króna.
Í kjölfarið á þessari reglubreyt
ingu munu Kínverjar koma sér upp
eftirlitsstofnun til að fylgjast með
hvort leikjafyrirtækin fara eftir
reglunum. Einnig að sérstöku auð
kennisfyrirkomulagi verði komið á,
það er að innskráningarkerfi fyrir
tækjanna verði samkeyrt við þjóð
skrá landsins. – khg
Árið 2018 voru tekjur
kínverskra tölvuleikjafyrir-
tækja 38 milljarðar dollara,
eða tæpar 5 billjónir króna.
Kínverjar hafa áhyggjur af tölvuleikjanotkun barna. NORDICPHOTOS/GETTY
Dagskrá:
Staða og starfsemi Gildis
Árni Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gildis
Samspil ellilífeyris almannatrygginga og lífeyrissjóða
Henný Hinz, hagfræðingur ASÍ
Nýtt fyrirkomulag við val á stjórnarmönnum og hlutverk fulltrúaráðs
Árni Hrafn Gunnarsson, lögfræðingur Gildis
Fundarstjóri: Áslaug Hulda Jónsdóttir, stjórnarmaður í Gildi
Vakin er athygli á að efni fundarins verður þýtt jafnóðum
á ensku og texta varpað á skjá
Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs
Grand Hótel Reykjavík, miðvikudaginn 20. nóvember kl. 17.00
Gildi–lífeyrissjóður
Sjóðfélaga- og fulltrúaráðsfundur
▪
▪
▪
Lífeyrissjóður www.gildi.is
Fyrstu skref að betri
byggingamarkaði
Byggingavettvangurinn boðar til fundar á Grand Hótel,
mánudaginn 11. nóvember kl. 8.30–10.00 nk. Kynntar verða
fyrstu útfærslur á tillögum átakshóps ríkisstjórnarinnar um
úrbætur í húsnæðismálum er snúa að byggingarmálum með
auknum þætti rafrænnar stjórnsýslu og einföldun regluverks.
Við hlökkum til að sjá þig.
Ásmundur Einar Daðason,
félagsmálaráðherra.
Sigurður Hannesson,
framkvæmdastjóri
Samtaka iðnaðarins.
Þórdís Kolbrún
Reykfjörð Gylfadóttir,
ferðamála-, iðnaðar- og
nýsköpunarráðherra.
Hermann Jónasson,
forstjóri Íbúðalánasjóðs.
Dagskrá
Fundarstjóri er Sandra Hlíf Ocares,
verkefnastjóri Byggingavettvangsins.
Boðið verður upp á léttan morgunverð
frá kl. 8.00.
Skráning á si.is.
V I Ð S K I P T I Ev rópu s a mba nd ið
skoðar nú kosti þess að taka upp
eigin rafmynt sem væri gefin út af
Evrópska seðlabankanum (ECB).
Málið hefur komist á skrið eftir að
Facebook kynnti í júní síðastliðn
um áætlanir um rafmyntina Libra.
Bruno Le Maire, fjármálaráð
herra Frakklands, sagði á fundi
með fréttamönnum í Brussel að um
langtímaverkefni væri að ræða. Það
kæmi þó ekki í veg fyrir að einhver
niðurstaða gæti legið fyrir á næsta
ári.
Reutersfréttastofan hefur eftir
háttsettum embættismanni ECB
að vinna við tæknilega útfærslu sé
þegar hafin. Stjórnvöld ESBríkja
myndu f ljótlega fá frekari upp
lýsingar um málið. Með upptöku
rafmyntar vonast stjórnendur ESB
til að geta minnkað kostnað við
fjármagnsflutninga sem þeir telja
of mikinn.
Fjármálaráðherrar ESBríkjanna
ræddu málið meðal annars á fundi
í Brussel í gær. Búist er við því að
þeir sendi frá sér sameiginlega yfir
lýsingu á næsta fundi sínum, sem
haldinn verður í desember, þar sem
framtaki ECB er fagnað.
Nokkrar mismunandi sviðs
myndir eru til skoðunar en sú
róttækasta gerir ráð fyrir að við
skiptavinir geti opnað eigin banka
reikning hjá ECB. Önnur leið sem
er í skoðun er að bankar hafi milli
göngu um að veita viðskiptavinum
sínum rafmynt sem ECB gæfi út.
Heimildarmaður Reuters lagði
áherslu á að á þessu stigi snerist
umræðan fyrst og fremst um það
hvort upptaka rafmyntar væri fýsi
leg fyrir ESB eða ekki. – sar
ESB skoðar kosti þess að
taka upp eigin rafmynt
Rafmynt ESB gæti keppt við Bitcoin og Libra. NORDICPHOTOS/GETTY
9 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
9
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:5
9
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
3
3
-1
0
C
4
2
4
3
3
-0
F
8
8
2
4
3
3
-0
E
4
C
2
4
3
3
-0
D
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
0
4
s
_
8
_
1
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K