Fréttablaðið - 09.11.2019, Blaðsíða 8
Eins og staðan er í
dag þarf að prenta
allar teikningar út, og keyra
með afritin til stofnana til
að fá stimpla.
Sandra Hlíf Ocares,
verkefnastjóri
Byggingavett-
vangsins.
HÚSNÆÐISMÁL „Heilt yfir snúa
útfærslurnar að því að einfalda
regluverk og verkferla til þess að
byggingarferlið verði skilvirkara og
framleiðni aukin. Þannig náum við
að stytta byggingartíma og lækka
byggingarkostnað sem skilar sér í
lægra húsnæðisverði,“ segir Sandra
Hlíf Ocares, verkefnastjóri Bygg-
ingavettvangsins.
Íslenski Byggingavettvangurinn
hefur boðað til fundar á Grand
Hótel næsta mánudag. Þar verða
kynntar fyrstu útfærslur á tillögum
átakshóps ríkisstjórnarinnar um
úrbætur í húsnæðismálum er snúa
að byggingarmálum með auknum
þætti rafrænnar stjórnsýslu og ein-
földun regluverks.
„Við höfum verið að byggja of
einsl eitt húsnæði þar sem reglu-
verkið hefur m.a. ekki heimilað
ákveðna nýsköpun né veitt svigrúm
til að byggja hagkvæmar íbúðir. Ég
er sannfærð um að þessar metnað-
arfullu tillögur sem verða kynntar á
mánudaginn munu auðvelda bygg-
ingu húsnæðis af því tagi sem hefur
verið vöntun á,“ segir Sandra. Þar
leikur rafræn stjórnsýsla lykilhlut-
verk.
Frá árinu 2011 hefur átt sér stað
uppbygging á rafrænni byggingar-
gátt með það að markmiði að hægt
sé að gefa út byggingarleyfi raf-
rænt, með því að efla þá vinnu og
víkka hlutverk þeirrar gáttar munu
ferlar verða einfaldari, skilvirkni og
gagnsæi aukast.
„Við viljum ganga inn í fjórðu
iðnbyltinguna með rafrænni stjórn-
sýslu, með einföldum hlut eins og
að skylda sveitarfélögin til að nota
Byggingargáttina og að innleiða
rafrænar undirskriftir inn í gáttina
má stytta byggingartíma og lækka
byggingarkostnað sem síðan skilar
sér í lægra byggingarverði,“ segir
Sandra. Hún bætir við að það muni
hafa meiri áhrif en marga grunar og
tekur dæmi.
„Eins og staðan er í dag þarf að
prenta allar teikningar út, og keyra
með afritin til stofnana til að fá
stimpla. Eins og gefur að skilja er
það tímafrekt og dýrt. Annað dæmi
er að svo hægt sé að fá nákvæmar
tölur um það hversu mikið af hús-
næði er í byggingu, þarf starfsmað-
ur Samtaka iðnaðarins að keyra í
þrjár vikur um landið og handtelja
íbúðir í byggingu. Með öflugri inn-
leiðingu á rafrænum lausnum eins
og Byggingargáttin er munu þessir
hlutir heyra sögunni til.“
Spurð hvort mikil samstaða sé
um breytingarnar sem útfærslur
Byggingarvettvangsins fela í sér
segir Sandra að svo sé. „Það er mikill
einhugur um að nú sé kominn tími
til að leysa þessi mál enda er hús-
næði ein stærsta fjárfesting fólks á
æviskeiði þess. Stjórnvöld hafa lagt
aukna áherslu á að létta á reglu-
verkinu í byggingariðnaði og skerpa
á regluverkinu og tillögurnar sem
komu fram í skýrslu átakshópsins
gefa skýr skilaboð um að það eigi
að taka þetta föstum tökum,“ segir
Sandra.
Íslenski byggingavettvangurinn
var settur á stofn árið 2016 sem
samstarfsvettvangur fyrirtækja og
stofnana sem koma að byggingar-
málum. Hlutverk Byggingavett-
vangsins var síðan aukið á þann
hátt að auk þess myndi hann fjalla
um skipulagsmál í tengslum við
byggingu íbúðarhúsnæðis. Sandra
segir að útfærslurnar sem kynntar
verði á mánudaginn snúi eingöngu
að byggingarmálum. Skipulags-
málin verði tekin fyrir eftir áramót.
thorsteinn@frettabladid.is
Rafræn skref í
stjórnsýslunni
lækka kostnað
Innleiðing rafrænna undirskrifta er á meðal út-
færslna Byggingavettvangsins sem kynntar verða
eftir helgi. Eiga að skila sér í lægri kostnaði við
uppbyggingu og þar með lægra húsnæðisverði.
Tillögur Byggingarvettvangsins verða kynntar eftir helgi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Mat á áhrifum
stórframkvæmda á samfélög
Verkefnisstjórn 4. áfanga rammaáætlunar um vernd og orkunýtingu
landsvæða býður til opins fundar um mat á áhrifum stórframkvæmda
á samfélög þriðjudaginn 12.nóvember 2019 kl 13:15-16:30
í fyrirlestrasal LBH, Þjóðarbókhlöðu
Frummælendur:
Frank Vanclay, prófessor við háskólann í Groningen
Ana Maria Esteves, fv forseti International Association for Impact
Assessment
Birna Björk Árnadóttir, Skipulagsstofnun
Hjalti Jóhannesson, Háskólanum á Akureyri
Ólafur Árnason, Eflu
Fundarstjóri: Guðrún Pétursdóttir, formaður verkefnisstjórnar RÁ4
Erindi verða flutt á ensku. Beint streymi verður frá fundinum.
Nánari upplýsingar á www.ramma.is
Café
AUSTURSTRÆTI
SKÓLAVÖRÐUSTÍG
LAUGAVEGI
AKUREYRI
VESTMANNAEYJUM Komdu í kaff i
ára afmælishátíð Spítalans okkar5
Alma
Anna
Charlotta
Sigríður
Svandís
Dagskrá:
Kl. 15.00
Setning – Þorkell Sigurlaugsson, varaformaður Spítalans okkar
Kl. 15.10 – 15.25
„Þörfin kallar hærra með hverju árinu“ Áhrif kvenna á stofnun Landspítala
– Anna Stefánsdóttir, formaður Spítalans okkar
15.25 – 15.45
Nýtt þjóðarsjúkrahús – framþróun heilbrigðisþjónustu
– Alma Möller, landlæknir
Tónlist – Blásarakvintett Skólahljómsveitar Grafarvogs
16.00- 16.20
Vísindi og menntun til framtíðar
– Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala
16.20- 16.50
Learnings and warnings from the boom of „digital health“ in Sweden
– Charlotta Tönsgaard, framkvæmdastjóri og stofnandi heilbrigðistæknisprotans
„Kind App“
16.50-17.00
Lokaorð
– Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra
Að málþinginu loknu er gestum boðnar léttar veitingar
Verið öll hjartanlega velkomin
Þriðjudaginn 12. nóvember 2019 kl. 15-17 á Icelandair Hótel Natura
UPPBYGGING LANDSPÍTALA:
Menntun, vísindi og nýsköpun í heilbrigðisþjónustu
9 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
9
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:5
9
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
3
3
-2
9
7
4
2
4
3
3
-2
8
3
8
2
4
3
3
-2
6
F
C
2
4
3
3
-2
5
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
0
4
s
_
8
_
1
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K