Fréttablaðið - 09.11.2019, Page 28

Fréttablaðið - 09.11.2019, Page 28
ÞAÐ SEM MÉR FINNST ÉG HAFA GERT EINNA MIKIL- VÆGAST Í LÍFINU ER AÐ GEFA UNGUM STÚLKUM TRÚ Á SJÁLFAR SIG. Vigdís – Bókin um fyrsta konuforsetann eftir Rán Flygenring fjallar vitanlega um Vigdísi Finnboga-dóttur. Ung stúlka, sem ætlar sér að verða rithöfundur, bankar upp á hjá Vigdísi á Ara- götunni því hún vill skrifa bók um hana. Þær taka tal saman og stúlkan fræðist um ævi og hugmyndir Vig- dísar. Gríðarlega skemmtilegar teikningar Ránar eru stór hluti af bókinni. „Hugmyndin að bókinni kom frá Eddu Hafsteinsdóttur. Hún á þrjár dætur og bjó í Kaliforníu þar sem er mikið framboð af barnabókum um hetjur og þá sérstaklega kven- hetjur. Henni fannst ótrúlegt að svona bók hefði ekki komið út um Vigdísi og kom með hugmyndina að slíku verki til útgefenda minna í Angústúru. Mér var falið verk- efnið fyrir tveimur árum, þannig að aðdragandinn er búinn að vera nokkuð langur,“ segir Rán. „Áður en ég byrjaði að vinna bókina hittumst við Vigdís heima hjá henni. Auk samtala við hana studdist ég mikið við bók Páls Valssonar um Vigdísi. Það er hægt að segja þessa sögu á svo margan hátt en þegar ég var búin að ákveða mína aðferð þá skot- gekk þetta. Þetta er eitt skemmti- legasta verkefni sem ég hef unnið.“ „Þegar Rán kom fyrst hingað á Aragötuna tók ég eftir því hversu gríðarlega mikla athyglisgáfu hún hefur, eins og sést í bókinni. Það er ekki til sá hlutur sem hún hefur ekki tekið eftir hér inni. Hún náði öllum smáatriðum á frábæran hátt. Meira að segja mynd af okkur pabba frá því ég var eins árs rataði inn í bók- ina. Hún er búin að sökkva sér ofan í þessi 89 ár sem ég hef lifað og lýsir mér á mjög skemmtilegan hátt og gerir mig svolítið sniðuga, sem er ekki verra,“ segir Vigdís. „Þegar bókin var komin nokkuð vel á veg þá var óskaplega gaman að sitja á Aragötunni með Vigdísi sem sökkti sér ofan í textann með mér. Stundum sagði hún: Svona myndi ég ekki segja þetta, og breytti þá orðalagi sem mér fannst alveg frá- bært. Það bætti bókina mikið,“ segir Rán. Samþykki Jóns forseta Vigdís segist hafa sérstakt dálæti á mynd í bókinni sem sýnir hana á svölum Alþingishússins eftir að hafa tekið við forsetaembættinu við formlega athöfn. Mannfjöldi sést fagna henni og styttan af Jóni Sigurðssyni brosir í átt til hennar. „Þetta er alveg stórkostleg mynd þar sem ég stend á svölunum í túrkís bláa kjólnum og Jón Sigurðs- son stendur á móti mér og segir: Vér Vigdís í myndum og máli Rán og Vígdís segja að það hafi verið sér- lega skemmti- legt að sitja saman á Aragötunni og sökkva sér ofan í textann. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI mótmælum ekki þessu. Þetta er svo brilljant,“ segir Vigdís. Þetta er ekki eina bókin í jóla- bókaf lóði þessa árs þar sem lesa má um Vigdísi. Henni bregður fyrir í Ungfrú fótbolti eftir Brynhildi Þórarinsdóttur þar sem hún hefur mikil áhrif á ungar stúlkur sem stunda knattspyrnu árið 1980, sama ár og Vigdís er í forsetaframboði. „Það sem mér finnst ég hafa gert einna mikilvægast í lífinu er að gefa ungum stúlkum trú á sjálfar sig. Þær hugsa: Ef hún gat það þá get ég það. Ég finn það svo oft og heyri það svo oft. Mér finnst þetta tvímælalaust aðalinntakið í því sem ég hef gert á ævinni.“ Gjöf til fólksins Fyrir hvert selt eintak af bókinni verður gróðursett tré í samstarfi við Yrkjusjóð Vigdísar og Skógræktar- félag Íslands. „Fólkið í landinu var alltaf að gefa mér eitthvað og ég vissi ekki hvað ég ætti að gefa því en svo datt mér í hug það snilldar- bragð að gróðursetja. Þá var ég ekki að hugsa um loftslagsmálin sem við tölum svo mikið um núna, ég var að hugsa um að binda landið sem í þá daga var að fjúka burt. Auðvitað þótti öllum þetta mjög gaman,“ segir Vigdís. „Krakkarnir komu og gróðursettu þrjú tré, eitt fyrir stráka og stelpurnar gróður- settu það og annað fyrir stelpur og strákarnir gróðursettu það og svo eitt fyrir ófæddu börnin. Þá sagði einn lítill strákur einu sinni: Æ, en hún mamma ætlar ekki að eiga f leiri börn!“ Rán Flygenring skrifar og myndskreytir barnabók um Vigdísi Finnbogadóttur, konuna sem var fyrst kvenna til að vera kosin forseti. Rán segir þetta eitt skemmti- legasta verkefni sem hún hafi unnið. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is 9 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 9 -1 1 -2 0 1 9 0 4 :5 9 F B 1 0 4 s _ P 0 8 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 3 3 -1 A A 4 2 4 3 3 -1 9 6 8 2 4 3 3 -1 8 2 C 2 4 3 3 -1 6 F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 1 0 4 s _ 8 _ 1 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.