Skessuhorn - 30.11.2016, Page 2
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 20162
kvóta og úthluta kvótanum að því
loknu á grundvelli nýrra reglna um
byggðakvóta.
„Bæjarstjórn samþykkti sam-
hljóða að við úthlutun byggðakvóta
í Snæfellsbæ (Arnarstapa, Hellis-
sandi, Rifi og Ólafsvík), þá verði
farið eftir reglugerð atvinnuvega-
og nýsköpunarráðuneytisins frá 8.
júlí 2016, um úthlutun byggða-
kvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu
2016/2017,“ segir í fundargerðinni.
Bæjarstjórnin óskar þó eftir því að
gerðar verði þrjár breytingar á út-
hlutunarreglum fyrir byggðakvóta
í Snæfellsbæ varðandi orðalag og
vilja þá að orðalagi í þremur grein-
um verði breytt og vill stjórnin að
orðið „sveitarfélag“ sé frekar not-
að en orðið „byggðarlag“ í þess-
um þremur greinum. Rök bæjar-
stjórnar Snæfellsbæjar fyrir þess-
um breytingum er sú staðreynd að
á Arnarstapa og á Hellissandi eru
ekki reknar fiskvinnslur og því ekki
hægt að landa afla til vinnslu á þeim
stöðum. „Ef ráðuneytið verður við
þessum óskum, þá mun byggða-
kvótinn nýtast innan sveitarfélags-
ins, en það skiptir miklu máli fyrir
Snæfellsbæ að geta nýtt úthlutaðan
byggðakvóta,“ segir að endingu í
ályktun bæjarstjórnar. grþ
Nóg verður um að vera í Borgarnesi
næsta laugardag þegar haldið verður
upp á 100 ára afmæli Ungmennafélagsins
Skallagríms. Boðið verður í afmæliskaffi í
Hjálmakletti kl. 14, þar sem tímamótanna
er fagnað. Rifjaðir verða upp eftirminni-
legir þættir úr sögu félagsins og leikdeild
Skallagríms slær á létta strengi. Að afmæl-
iskaffi loknu verður stórleikur í körfuknatt-
leik kvenna þar sem Skallagrímur fær lið
Keflavíkur í heimsókn. Að endingu verður
leikdeild Skallagríms með hátíðarsýningu
á afmælissýningu sinni í Lyngbrekku.
Á morgun verður austan- og suðaust-
an átt 8-13 m/s, en hægari norðaustan-
lands. Slydda eða rigning sunnan heiða
og snjókoma á norðanverðu landinu,
einkum vestan til. Hlýnandi veður, hiti 1
til 7 stig síðdegis en vægt frost á Norður-
og Austurlandi. Á föstudag spáir sunnan
8-13 m/sek og stöku skúrum, hægari og
léttskýjuðu austan til á landinu. Hiti 1 til
7 stig en kringum frostmark norðaustan
og austanlands. Á laugardag, sunnudag
og mánudag er útlit fyrir sunnanátt og
að fremur hlýtt verði í veðri. Rigning með
köflum en lengst af þurrt á Norðaustur-
og Austurlandi.
Bókasafn Akraness skartar enn á ný fal-
legu og heimagerðu jólaskrauti sem gleð-
ur augað. Það eru þær Erla Dís Sigurjóns-
dóttir bókavörður og Gerður Jóhanna Jó-
hannsdóttir héraðsskjalavörður sem eiga
veg og vanda af fallegum skreytingunum
sem gestir bókasafnsins geta notið þess
að skoða á aðventunni. Þær eru Vestlend-
ingar vikunnar.
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Nýir
bryggjupollar
AKRANES: Sex nýjum
bryggjupollum hefur verið
komið fyrir við bryggju aðal
hafnargarðsins á Akranesi,
en bryggjuna kalla heima-
menn í daglegu tali „Stóru
bryggjuna“. Nýju pollarnir
eru staðsettir þar sem stærri
skip leggjast að bryggjunni
fyrir löndun. Vinna við að
koma þeim fyrir hófst fyr-
ir um mánuði síðan. „Þá
var byrjað að skera úr þekj-
unni og undirbúa verkið.
Síðan var farið í að koma
pollunum fyrir, járnabinda
og steypa í,“ segir Ein-
ar Guðmundsson, hafnar-
vörður á Akranesi, í samtali
við Skessuhorn. „Pollarn-
ir sem fyrir eru á bryggj-
unni eru að verða barn síns
tíma. Þeir eru helst til of
litlir og veikbyggðir þeg-
ar koma stórir bátar eins
og Bjarni og Víkingur og
leggjast að bryggju. Það
vantaði því stærri polla og
þolbetri,“ segir Einar um
ástæður framkvæmdanna.
Aðspurður kveðst hann
eiga von á því að nýju poll-
arnir verði teknir í notkun
seint á þessu ári. „Pollarnir
nýju verða ekki notaðir fyrr
en komið er fast að jólum.
Steypan þarf ákveðinn tíma
til að fullharðna og það
verður ekki fyrr en nálægt
jólum,“ segir hann. Þangað
til verður notast við gömlu
pollana, en Einar á ekki von
á að þeir verði fjarlægðir.
„Mér þykir líklegt að þeir
verði áfram. Þeir eru ekki
fyrir neinum og má vel nota
þá áfram samhliða þessum
nýju ef þarf að binda skip-
in enn betur við bryggju,“
segir Einar að lokum. Á
meðfylgjandi mynd er nýi
Víkingur AK bundinn við
bryggju og einn af gömlu
pollunum.
-kgk
Keppa í Útsvari
á föstudaginn
SNÆFELLSBÆR: Lið
Snæfellsbæjar hefur leik í
Útsvari, spurningakeppni
sveitarfélaganna á RÚV,
föstudaginn 2. desember og
etur kappi við liði Þingeyj-
arsveitar. Lið Snæfellsbæj-
ar keppti einnig í Útsvari á
síðasta vetri og komst alla
leið í átta liða úrslit en varð
þar að játa sig sigrað gegn
liði Fljótsdalshéraðs, sem
stóð síðan uppi sem sigur-
vegari í keppninni. Árang-
ur Snæfellsbæjar á síðasta
vetri dugði liðinu þó til að
tryggja sér áframhaldandi
þátttökurétt. Lið Snæfells-
bæjar að þessu sinni er skip-
að þeim Hafdísi Rán Brynj-
arsdóttur, Halldóri Krist-
inssyni og Örvari Marteins-
syni, en hann keppti einnig
síðasta vetur.
-kgk
Í lok síðustu viku var unnið af krafti
við að reisa einingar í veggi fyrstu
hæðar á nýju fimm hæða hóteli við
Borgarbraut 59 í Borgarnesi. Það
er fyrirtækið Hús og lóðir ehf. sem
er byggingaraðilinn en verktakta-
fyrirtækið SÓ húsbyggingar ehf.
byggir og hefur yfirumsjón með
reisingunni og allri framkvæmd.
Forsteyptar einingar koma frá
Smellinn á Akranesi. Á bygging-
arstað síðastliðinn föstudagsmorg-
un voru Jóhannes Freyr Stefáns-
son framkvæmdastjóri SÓ hús-
bygginga og Alfreð Þór Alfreðs-
son verksmiðjustjóri frá Smellinn.
Gott hljóð var í þeim enda sögðu
þeir verkið á áætlun en nú verð-
ur unnið af kappi við að reisa hót-
elbygginguna sem mun rúma 86
herbergja fjögurra stjörnu hótel.
Áætlað er að hótelið verði fullbúið
á næsta ári. Á lóðinni við Borgar-
braut 57 verður önnur bygging þar
sem verða íbúðir fyrir eldri borg-
ara en búið er að byggja kjallara
undir húsið og honum lokað. Beð-
ið verður með frekari framkvæmd-
ir á þeirri lóð meðan hótelið verð-
ur reist.
Jóhannes Freyr segir fram-
kvæmdina á áætlun. Nokkrar taf-
ir urðu í sumar vegna lagnavinnu
í götu, en ef veður torvelda ekki
reisingarvinnu ætti fljótlega á nýju
ári að verða búið að gera húsið
fokhelt. Jóhannes Freyr vildi ekki
nefna ákveðna dagsetningu um
hvenær hótelið yrði tekið í notk-
un. mm
Hótel tekið að rísa í Borgarnesi
Alfreð Þór Alfreðsson frá Smellinn og Jóhannes Freyr Stefánsson frá SÓ húsbygg-
ingum. Fyrir aftan þá má sjá fyrstu hæð hótelsins rísa. Veggeiningar eru ljósar en
gluggar verða dökkir.
Bandaríkin eru um þessar mund-
ir mikilvægasta viðskiptaþjóð Ís-
lendinga og þar leikur ferðaþjón-
usta stórt hlutverk. Í fyrra nam út-
flutningur til Bandaríkjanna um 162
milljörðum kr. eða um 13,5% af
heildarútflutningi ársins. Að stærst-
um hluta (78%) var um þjónustu-
útflutning að ræða en hann var um
126 milljarðar kr. Viðskipti með
vörur (22%) námu um 35 milljörð-
um kr. Á sama tíma nam innflutn-
ingur Íslendinga frá Bandaríkjun-
um, á vörum og þjónustu, um 123
milljörðum kr. þannig að viðskipti
milli landanna skilaði 38 milljarða
kr. viðskiptaafgangi. Samtök ferða-
þjónustunnar hafa tekið þessar upp-
lýsingar saman.
Í fyrra námu tekjur fyrirtækja í
ferðaþjónustu vegna þjónustu við
bandarískra ferðamenn um 95 millj-
örðum kr. eða um 59% af heildar-
útflutningi landsins til Bandaríkj-
anna. Þar af nam neysla bandarískra
ferðamanna á Íslandi um 47,5 millj-
örðum kr. og fargjaldatekjur vegna
komu þeirra til og um Ísland um 48
milljörðum kr. Á eftir Kínverjum eru
bandarískir ferðamenn fjölmennast-
ir erlendra ferðalanga í heiminum. Í
fyrra fóru um 32,8 milljón Banda-
ríkjamanna í ferðalag til annarra
landa og námu ferðaútgjöld þeirra
rúmlega 15,7 þúsund milljörðum kr.
Í ár er gert ráð fyrir að um 8% fleiri
Bandaríkjamenn muni ferðast til
annarra landa en það gerðu í fyrra.
Í dag er enn mun meiri áhugi
á ferðalögum til Íslands en þess-
ar meðaltalstölur gefa til kynna.
„Til marks um það má búast við
að ferðamönnum frá Bandaríkjun-
um fjölgi um 67% í ár - úr rösklega
240 þúsund í ríflega 400 þúsund.
Til gamans má geta þess að á árinu
2006 komu alls rúmlega 420 þúsund
ferðamenn til landsins,“ segir í frétt
Samtaka ferðaþjónustunnar.
mm
Sprenging í komu bandarískra
ferðamanna til Íslands
Bæjarstjórn Snæfellsbæjar mót-
mælir harðlega niðurstöðum út-
hlutunar byggðakvóta fyrir fisk-
veiðiárið 2016 - 2017. Þetta kom
fram á fundi bæjarstjórnarinnar 17.
nóvember sl. þar sem meðal ann-
ars var fjallað um bréf frá atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðuneytinu
varðandi umsókn um byggðakvóta
fyrir yfirstandandi fiskveiðiár. Nið-
urstaða atvinnuvega- og nýsköp-
unarráðuneytisins hvað Snæfellsbæ
varðar er að engum byggðakvóta
er úthlutað á Hellissand og Arn-
arstapa. Í fundargerð bæjarstjórn-
ar segir að þessi niðurstaða sé með
öllu óásættanleg og skorar bæjar-
stjórn á sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðherra að breyta nú þeg-
ar reglum um úthlutun byggða-
Vilja að byggðakvóti renni til
sveitarfélaga en ekki byggðarlaga
Bæjarstjórn Snæfellsbæjar mótmælir harðlega niðurstöðum úthlutunar byggða-
kvóta fyrir fiskveiðiárið 2016 - 2017 og vill að byggðakvóti renni til sveitarfélaga
en ekki byggðarlaga.