Skessuhorn - 30.11.2016, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2016 13
FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ
www.frumherji. is
Búðardalur 2016
Verið velkomin til okkar í bifreiðaskoðun
Athugið! Breyting á opnunartíma í Búðardal
Næst verður skoðað þriðjudag 6. og
miðvikudag 7. desember á þessu ári.
Komum aftur í febrúar 2017, verður auglýst síðar.
Vinsamlega pantið tíma hjá Frumherja í síma 570-9090
með nægum fyrirvara til að komast hjá óþægindum.
GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA !
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Þverholti 2 • 270 Mosfellsbær
Sími 525 6700 • mos@mos.is • www.mos.is
VIRÐING • JÁKVÆÐNI • FRAMSÆKNI • UMHYGGJA
Lágafellsskóli í Mosfellsbæ
Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi.
Má bjóða þér að vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem
vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum.
Laus störf:
Stærðfræði – og náttúrufræðikennsla á unglingastigi
Staða matreiðslumanns skólans
Skólaliðastaða
Nánari upplýsingar um störfin má finna á vefsíðu skólans
www.lagafellsskoli.is og á heimasíðu Mosfellsbæjar www.mos.is
Laun vegna auglýstra starfa eru samkvæmt kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélaga.
Umsóknarfrestur er til 2. desember 2016.
Upplýsingar veitir Jóhanna Magnúsdóttir skólastjóri í síma 525 9200/
896 8230. Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og
umsagnaraðila sendist rafrænt á netfangið johannam@lagafellsskoli.is
Við hvetjum fólk af báðum kynjum til að sækja um.
Vestlensku dansararnir Daði Freyr
Guðjónsson og Marta Carrasco
tóku þátt á heimsmeistaramótinu í
10 dönsum sem haldið var í Linz í
Austurríki laugardaginn 19. nóvem-
ber síðastliðinn. Marta og Daði
kepptu í flokki fullorðinna og stóðu
sig með stakri prýði. Parið dansaði
til úrslita í fjórum Latin dönsum
ásamt sex öðrum pörum og hafn-
aði í 8. sæti á heimsmeistaramótinu
samanlagt. Verður það að teljast afar
góður árangur því um sterkt mót
er að ræða þar sem keppa mörg af
fremstu danspörum heims.
Leiðir Daða og Mörtu lágu saman
fyrir aðeins um einu og hálfu ári. Þá
hófu þau að keppa saman í Standard
og Latin dönsum og hafa síðan þá
náð frábærum árangri og tekið þátt
í fjölmörgum keppnum á erlendum
vettvangi. Í viðtali við Skessuhorn á
vormánuðum höfðu Daði og Marta
einmitt orð á því að keppnisferð-
ir erlendis væru eitt af því ánægju-
legasta við dansinn. „Þetta er það
langskemmtilegast af öllu sem við
gerum. Það er svo margt hægt að
læra af því að keppa um allan heim
þar sem pörin eru sterkari og sam-
keppnin meiri. Við komum alltaf
metnaðarfull heim og full innblást-
urs eftir keppni erlendis.“
kgk
Daði og Marta í 8. sæti á
heimsmeistaramótinu
Dansararnir Daði Guðjónsson og Marta Carrasco.
Ljósm. úr safni: Kjartan Birgisson.
Karlakórinn Svanir, Grundartanga-
kórinn, Kór Saurbæjarprestakalls og
Kvennakórinn Ymur héldu á aðvent-
unni í fyrra sameiginlega jólatónleika
sem heppnuðust prýðilega. Færri
komust að en vildu. Nú hafa kórarnir
ákveðið að endurtaka leikinn. Blásið
verður til jólatónleika fimmtudaginn
8. desember klukkan 20 í Tónbergi
á Akranesi. „Þetta var hugmynd sem
Jóna Björg Kristinsdóttir formaður
Kvennakórsins Yms fékk. Í stað þess
að hver kór haldi sína tónleika þá er
miklu sterkara að halda eina stóra og
flotta jólatónleika og voru boðaðir
saman á fund formenn og kórstjór-
ar kóranna sem allir voru jákvæðir
að prófa þetta í fyrra og mikill sam-
hugur er um að halda aðra tónleika
að þessu sinni. Á tónleikunum í Tón-
bergi koma kórarnir fram hver með
sína dagskrá og sameinast svo allir í
lokin og syngja saman nokkur lög.
Verða þá um 80 manns á sviðinu,“
segir Arndís Baldursdóttir upplýs-
ingafulltrúi Kvennakórsins Yms.
Stjórnendur kóranna eru þau Val-
gerður Jónsdóttir, Atli Guðlaugsson,
Erla Rut Káradóttir og Sigríður El-
liðadóttir. Miðaverð er 3.000 krónur.
Forsala hófst í Bókasafni Akraness
síðastliðinn mánudag.
mm
Fjórir kórar sameinast á
jólatónleikum á Akranes
Hópurinn á æfingu 22. nóvember sl. Ljósm. Guðni Hannesson.
Talsverður viðbúnaður var vegna
neyðarblyss sem sást á lofti utan við
Rifshöfn á Snæfellsnesi um klukk-
an 7:30 síðastliðinn miðvikudags-
morgun. Björgunarbáturinn Björg,
bátar á svæðinu, björgunarsveitar-
menn og þyrla Landhelgisgæslunn-
ar voru kölluð út til leitar. Fyrir há-
degi var dregið úr umfangi leitar
enda ekki kunnugt um að báts væri
saknað. Jafnvel er talið líklegt að
um stjörnuhrap hafi verið að ræða.
mm
Björgunarbátur sjósettur í Rifi.
Ljósm. þa.
Viðbúnaður vegna neyðarblyss
Bílás Akranesi
OPNUNARTÍMI Í DESEMBER
Alla virka daga
Opnum snemma kl. 9.00
Lokað laugardaga og sunnudaga
Mikið úrval af bílum á allskonar jólatilboðum
www.skessuhorn.is