Skessuhorn - 30.11.2016, Page 28
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 201628
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Sprautu- og bifreiðaverkstæði
Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is
Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti
Þjónustum öll tryggingafélög
Borgarness
LAUSNIN HÖFÐASELI
Opnunartími er frá kl. 8:00-16:00
alla virka daga
Daglegar ferðir milli Reykjavíkur og Borgarness
Tvær ferðir í viku í sveitir Borgarfjarðar
Skrifstofan er opin mánudaga – föstudaga
kl. 9.00 – 12.00 og 13.00 – 15.30
Sími 437-2030 - v.v@simnet.is
DAGLEGAR FERÐIR BORGARNES - REYKJAVÍK
www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500
Garðaþjónustan Sigur-Garðar
Tökum að okkur alla almenna skrúðgarðavinnu
Sindri Arnfjörð garðyrkjumaður - Laufskálum 311 Borgarbyggð
Netfang: sindri@vesturland.is - Vinnusími: 892-7663
Hellulagnir - Hleðsla - Þökulagnir - Jarðvegsskipti
Trjáklippingar - Gróðursetningar - Garðsláttur - Plöntusala
Þjónusta í yfir 25 ár
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Það er ekki kominn desember og ég
er við að fá nóg „jóla-áreiti“ nú þeg-
ar. Svo kalla ég endalausar auglýs-
ingar um hvað gefa skal til jólanna,
hvað uppfæra þarf (sófa, eldhús,
borðbúnað), liðinn er svartur föstu-
dagur og cyber mánudagur. Jólalög-
in eru farin að hljóma og er það af
hinu góða, en ég hef því miður upp-
lifað það að vera orðin hundleið á
þeim ÁÐUR en jólin gengu í garð.
Tek ég því til bragðs að slökkva á
ljósvakamiðlunum og setja tónlist
að eigin vali í tækið - nú eða taka
upp bók.
En þessi tími árs getur samt sem
áður verið mjög skemmtilegur.
Við upplifum mesta skammdegið
og notum kerti og ljós sem mót-
vægi við það. Síðan koma sólstöð-
ur og með hækkandi sól kemur nýtt
ár. Ég kemst í jólaskap við að setja
ljós á og inn í húsið, kaupa og búa
til jólagjafir, föndra jólasveina og
stjörnur með börnum og að taka
þátt í einlægri eftirvæntingu þeirra.
Oft eru börn spurð hvað þau vilji fá
í jólagjöf. Gott væri að spyrja þau
hvað þau vildu GEFA í jólagjöf. Fá
þau til að hugsa um að gleðja aðra
en sjálfa sig. Einnig væri tilvalið að
temja sér að gera góðverk á aðvent-
unni og deili ég hér nokkrum hug-
myndum. Að deila kærleika og sam-
kennd á aðventunni kennir okkur að
meta hvað við höfum. Frábært væri
að láta yngri kynslóðina taka þátt.
Ég er viss um að þetta kemur okkur
í enn meira jólaskap. Hér eru tíu at-
riði sem mér datt í hug að við gæt-
um sett okkur að framkvæma:
Vera sérlega tillitsöm við versl-
unarfólk sem stendur langar vaktir.
Skilum innkaupakerrum alla leið til
baka, ekki skilja þær eftir úti á bíla-
stæði. Brosa!
Gera einhverjum í fjölskyldunni
greiða án þess að vera beðin um
það. Til dæmis að taka til eftir systk-
ini þitt, eða raða skónum við inn-
ganginn.
Halda hurðinni fyrir næsta mann
hvar sem gengið er um.
Baka auka uppskrift af smákökum
og fara með á elliheimilið eða til ná-
grannana sem þú þekkir ekki vel.
Virkja börnin við að velja gjaf-
ir, pakka inn og setja á þá staði sem
safna fyrir þá sem minna mega sín.
Gera sitt í að minnka umferð-
arstressið og setja sér það að gefa
allavega þremur bílum „séns“ í um-
ferðinni.
Borga fyrir auka kaffibolla á kaffi-
húsinu og koma næsta viðskiptavini
á óvart.
Kaupa tvær auka bauna- og rauð-
kálsdósir og gefa t.d. í Samhjálp eða
Hjálpræðisherinn.
Bjóða barnmargri fjölskyldu
tveggja eða þriggja tíma fría barna-
pössun á aðventunni.
Moka snjóinn hjá nágrannanum
um leið og þú mokar hjá þér.
Ég hef verið þess aðnjótandi að
upplifa aðfangadagskvöld á margan
hátt. Ég hef verið alein í útlöndum
á aðfangadagskvöldi. Ég hef verið
við vinnu. Ég hef verið i jólaveislu
þar sem kampavínið flóði og all-
ir skemmtu sér áður en þeir héldu
slompaðir til miðnæturmessu. Ég
hef verið á sjúkrahúsi, „ný uppskor-
in“. Allt voru þetta ánægjuleg jól, en
bestu jólin hafa auðvitað verið þegar
ég hef getað verið meðal ástvina. En
engin jól hafa eyðilagst vegna þess
að eitthvað „vantaði“ eða var öðru-
vísi en í minningum barnæskunn-
ar eða í væntingum. Gefum ljós og
kærleika þessi jólin. Við höfum það
ótrúlega gott.
Sigrún Hjartardóttir, Hátúni í
Borgarfirði.
Að deila kærleika og
samkennd á aðventunni
Pennagrein
Guðsteinn Einarsson hefur farið
vel yfir í greinum sínum í Skessu-
horni undanfarið hlut Borgarlands í
að móta stefnu um nýtingu á Borg-
arbraut 55-59 í Borgarnesi. Í þeim
greinum kemur fram að Borgarland
hafði frumkvæði af og kom með til-
lögu að nýjum miðbæ í Borgarnesi
með byggingum þar sem blandað var
saman þjónusturýmum og íbúðum.
Tillagan gerði ráð fyrir miklu bygg-
ingarmagni á reitnum en þar sem
Borgarland fékk ekki þau viðbrögð
sem vonast hafði verið til þá snéru
þeir sér að því að skipuleggja á þeirri
lóð sem fyrirtækið hafði yfir að ráða,
lóðinni Borgarbraut 59. Niðurstaða
af þeirri vinnu varð að áformum um
byggingu á stakri íbúðarblokk með
30 íbúðum samtals 3.405 m2 og 650
m2 bílastæðahús, samtals byggingar-
magn 4.055 m2 á lóð sem var 2.700
m2 að stærð, sem gerir nýtingarhlut-
fall upp á 1,5 ef allt er talið.
Því tel ég að það sé óumdeilt að
vinna við gildandi deiliskipulag
Borgarbrautar 55-59 byggðist meðal
annars á vinnu Borgarlands og þeim
væntingum til byggingarmagns sem
Borgarland gerði til svæðisins. Það
breytir engu þar um þó að forsvars-
menn Borgarlands
hafi ekki alltaf
verið sammála og
gert athugasemdir
við vinnu sveitarfélagsins á meðan á
deiliskipulags vinnunni stóð. Nið-
urstaða skipulagsvinnunar var að
samþykkt var deiliskipulag þar sem
heimilt var að byggja staka íbúðar-
blokk á Borgarbraut 59 með 30
íbúðum og byggingaráform Borgar-
lands pössuðu innan skipulagsins.
Ég lagði fram spurningu í grein
minni til Kaupfélags Borgfirðinga
um hvaða hagsmuni þeir telji sig
vera að verja með andstöðu sinni við
framkvæmdir á Borgarbraut 57-59
sem byggðist meðal annars á þeirra
eigin vinnu? Guðsteinn Einarsson
kaupfélagsstjóri virðist ekki vilja eða
geta svarað spurningunni fyrir hönd
félagsins. Því fer ég fram á það við
stjórn Kaupfélags Borgfirðinga að
hún svari spurningu minni.
Virðingarfyllst,
Sigurður Guðmundsson.
Höf. er íbúi og skattgreiðandi í
Borgarbyggð.
Smá athugasemd
www.skessuhorn.is