Skessuhorn - 01.02.2017, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2017 15
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Setjum undir á staðnum
Dráttarbeisli
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Einnig mikið úrval varahluta
í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum,
ásamt úrvals viðgerðarþjónustu.
Kerrur
frá Ifor Williams
í öllum stærðum
og útfærslum
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Úrval af lokuðum farangurskerrum
frá Ifor Williams
Sýningareintak á staðnum.
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Einnig mikið úrval varahluta
í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum,
ásamt úrvals viðgerðarþjónustu.
Kerrur
frá Ifor Williams
í öllum stærðum
og útfærslum
Hraðfrystihús Hellissands keypti
á dögunum bátinn Ask GK-65
sem er snurvoðarbátur. Bátnum
fylgdu 400 þorskígildistonn þar
sem uppistaðan er þorskur, eða
rúmlega 300 tonn. Báturinn verð-
ur þó ekki gerður út af HH held-
ur festi fyrirtækið kaup á honum til
að nýta kvótann yfir á önnur skip
í eigu þess. Hraðfrystihús Hellis-
sands var með 3.297 þorskígildis-
tonn fyrir og er þetta því talsverð
viðbót á kvóta, eða 12,13%.
þa
Auka kvóta Hraðfrystihúss Hellissands
Meirihluti íbúa á Akranesi, eða
65%, vill halda áfram samstarfi við
sveitarfélög á Vesturlandi frekar en
að leita eftir samstarfi við sveitar-
félögin á höfuðborgarsvæðinu. Alls
35% eru á öndverðum meiði. Þetta
er niðurstaða könnunar Gallup um
viðhorf íbúa til samstarfs við önn-
ur sveitarfélög. Spurt var: „Finnst
þér að Akraneskaupstaður eigi að
halda áfram samstarfi við sveitarfé-
lög á Vesturlandi eða finnst þér að
Akraneskaupstaður eigi að leita eft-
ir samstarfi við sveitarfélögin á höf-
uðborgarsvæðinu?“ Þá skal þess get-
ið að um það bil helmingur svarenda
fékk þessa spurningu þar sem sveit-
arfélög á Vesturlandi voru nefnd
fyrst en hinn helmingurinn þar sem
sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu
voru nefnd á undan. Það er gert í
þeim tilgangi að röð svarmöguleiki
hafi ekki áhrif á niðurstöðu.
Fjöldi þátttakenda í Akraneskafla
könnunarinnar voru 325 og 77%
þeirra tóku afstöðu til spurningar-
innar. kgk
Skagamenn vilja Vesturlandssamstarf
„Hvað gengur fólki til sem alhæf-
ir svona og dreifir óhróðri um hóp
fólks sem það þekkir augljóslega
ekki neitt,“ spyr Skagakonan Anna
Lára Steindal á Facebook-síðu sinni
síðastliðinn sunnudag. Hún kveðst
hafi rekist ítrekað á ummæli á at-
hugasemdakerfum fjölmiðla þar sem
fullyrt er að „reynslan af múslimum
á Akranesi sé svo slæm að hún rétt-
læti fáránlega tilskipun Trump um
að meina múslimum frá sjö ríkjum
aðgöngu að Bandaríkjunum. Að all-
ir sem þangað komu lifi á bótum og
séu almennt óalandi og óferjandi,“
eins og hún orðar það.
Anna Lára þvertekur fyrir þessar
fullyrðingar í færslu sinni og segir
reynsluna af móttöku fólksins á Akra-
nesi vera góða. „Nú vill svo til að ég
þekki þetta fólk og aðstæður þeirra
nokkuð vel og veit að þessar alhæf-
ingar standast ekki skoðun. Burtséð
frá því að þó svo væri réttlætti það
ekki þá skammsýni og heimsku sem
Donald Trump gerist sekur um með
þessum gjörningi,“ skrifar Anna
Lára. „Ég er til dæmis ekki viss um
að fólkið á Höfða, þar sem ein úr
þeim hópi vinnur, tæki undir þetta,
enda sólargeisli í lífi margra íbúa á
Höfða. Ég er heldur ekki viss um að
kennarar þeirra sem hafa útskrifast
úr fjölbraut með glimrandi vitnis-
burð og ýmist stunda eða stefna á
háskólanám myndu gera það,“ seg-
ir hún og heldur áfram. „Þjálfarar
ungs manns úr hópnum sem hefur
lagt verulega hart að sér og er nú ein
af vonarstjörnum Skagamanna í fót-
bolta myndu líklega ekki taka undir
þetta. Eða kennarar þeirra sem enn
stunda nám - t.d. í FVA og Tækni-
skólanum. Eða vinnuveitandi eins
úr hópnum sem starfar sem túlkur í
Reykjavík,“ skrifar hún.
Anna Lára er verkefnisstjóri í
móttöku kvótaflóttamanna hjá
Reykjavíkurdeild Rauða krossins
og var áður verkefnisstjóri Akranes-
deildar Rauða kross Íslands.
kgk
Alhæfingar um flóttafólk
standast ekki skoðun
Anna Lára Steindal. Ljósm. úr safni.
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is