Skessuhorn - 01.02.2017, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 201722
„Viðtökur landsmanna við Blóðs-
kimun til bjargar – þjóðarátaki
gegn mergæxlum hafa verið frábær-
ar. Nú þegar hafa rúmlega 63 þús-
und manns um allt land skráð sig
til þátttöku. Þjóðarátakið hófst um
miðjan nóvember síðastliðinn þeg-
ar 148 þúsund manns á landinu öllu,
sem fæddir eru árið 1975 eða fyrr,
fengu boð um þátttöku. Því hafa
rúm 42% þeirra skráð sig til þátt-
töku og hefur rannsókninni þegar
borist blóðsýni frá um sjö þúsund
þátttakendum. Aðstandendur rann-
sóknarinnar eru afar þakklátir fyr-
ir viðtökurnar enda er góð þátttaka
lykillinn að því að hún skili árangri.
Ef þátttakendum heldur áfram að
fjölga á næstu mánuðum gæti hún
orðið stærsta vísindarannsókn sinn-
ar tegundar sem framkvæmd hefur
verið í heiminum,“ segir í tilkynn-
ingu um verkefnið.
Sigurður Yngvi Kristinsson pró-
fessor við læknadeild Háskóla Ís-
lands sem fer fyrir rannsókninni
er þakklátur fyrir þessi góðu við-
brögð. „Það er einstakt hversu vel
landsmenn hafa brugðist við og
þannig lagt lið mikilvægri vísinda-
rannsókn,“ segir Sigurður Yngvi.
„Ég vil koma á framfæri þakklæti til
allra sem hafa skráð sig til þátttöku.
Þá vil ég hvetja þau sem ekki hefur
gefist ráðrúm til að skrá sig, til þess
að kynna sér rannsóknina á www.
blodskimun.is og skrá sig til þátt-
töku ef þeim svo þóknast. Því fleiri
sem skrá sig, því meiri líkur eru á að
árangur náist.“
Getur bætt lífsskilyrði
Kristín Einarsdóttir sem hefur bar-
ist við mergæxli og situr í stjórn
Perluvina, félags mergæxlissjúk-
linga, er einnig þakklát fyrir við-
tökurnar. „Við erum afar þakklát
fyrir þessi viðbrögð landsmanna
því rannsóknin getur orðið til þess
að bæta lífsskilyrði þeirra sem hafa
greinst með mergæxli og ekki síður
þeirra sem eiga eftir að greinast,“
segir Kristín. „Með þátttöku í rann-
sókninni eykur fólk sem er með for-
stig mergæxlis einnig líkurnar á því
að greinast snemma sem mun von-
andi tryggja þeim viðeigandi með-
höndlun fyrr en ella og þannig auka
lífsgæði þeirra til frambúðar.“
mm
Góðar viðtökur við verkefninu
um blóðskimun
Heimir Hallgrímsson landsliðs-
þjálfari tilkynnti á þriðjudag um
þá leikmenn sem skipa landsliðs-
hóp karlalandsliðs Íslands sem
mætir Mexíkó í vináttulands-
leik í Las Vegas miðvikudaginn 8.
febrúar næstkomandi.
Hópurinn ferðast út á sunnu-
daginn en í honum eru sjö leik-
menn sem ekki hafa leikið áður
með landsliðinu. Þar á meðal er
Tryggvi Hrafn Haraldsson, tví-
tugur leikmaður ÍA. Hann lék 16
leiki með Skagamönnum á liðnu
sumri, vakti verðskuldaða athygli
fyrir góða frammistöðu og skapaði
sér nafn í Pepsi-deildinni. Tryggvi
hefur ekki leikið með yngri lands-
liðnum Íslands. „Við óskum
Tryggva Hrafni til hamingju með
valið,“ segir í tilkynningu á Fa-
cebook-síðu Knattspyrnufélags
ÍA.
kgk
Tryggvi Hrafn
valinn í landsliðið
Tryggvi Hrafn Haraldsson fagnar marki með ÍA í sumar. Ljósm. úr safni/ gbh.