Skessuhorn


Skessuhorn - 01.02.2017, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 01.02.2017, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 201714 Landsmót Sambands íslenskra skólalúðrasveita fyrir C sveitir verð- ur haldið á Akranesi um helgina, dagana 3.-5. febrúar. Svokallaðar C sveitir eru skipaðar ungu fólki á aldrinum 14 til 20 ára sem er komið vel á veg í sínu tónlistarnámi. Von er á um 200 hljóðfæraleikurum víðs vegar af landinu sem hafa skráð sig á mótið, en það stendur frá föstu- dagskvöldi og fram á sunnudagseft- irmiðdag. „Dagskráin verður fjölbreytt og vonandi bæði fræðandi og skemmtileg,“ segir í tilkynningu frá SÍSL, en meðal þess sem móts- gestir fá að njóta eru smiðjur með ýmsum listamönnum þar sem tek- ið verður á fjölbreyttum viðfangs- efnum. Til dæmis verður fjallað um kvikmyndatónlist, æfingatækni, viðhald hljóðfæra og jóga. Þá verð- ur einnig kynning á Ungsveit Sin- fóníunnar og nýstofnuðum Tón- listarmenntarskóla. Samæfingar í kammerhópnum verða á dagskrá alla helgina og mótinu lýkur síðan með tónleikum í íþróttahúsinu við Vesturgötu sunnudaginn 5. febrúar kl. 14:00. kgk Lúðrasveitarfólk fjölmennir á Akranes um helgina Þessi fallega vetrarmynd var tekin í Borgarnesi síðastliðinn laugardag. Sólin að setjast, ferðafólk að mynda sólarlagið og allir í góðu skapi. Ljósm. Helena Guttormsdóttir. Síðdegi í Borgarnesi Árið 2015 leitaði bæjarstjóri Akra- neskaupstaðar eftir ráðgjöf Þjóð- minjasafns Íslands um framtíðar- varðveislu kútters Sigurfara. Í gegn- um Þjóðminjasafnið var dansk- ur skipasmiður fenginn til að meta ástand skipsins. Í ljós kom að ástand kútters Sigurfara er afar slæmt og eru flestir viðir þess mikið skemmdir eða ónýtir. Ráðgjöf þjóðminjavarð- ar var á þá leið að leggja ætti áherslu á að varðveita heimildir um skip- ið. Minjastofnun lagði fram styrk til undirbúnings verkefnisins og í kjöl- farið var verkefnisstjóri ráðinn tíma- bundið til Byggðasafnsins í Görðum og vann að skilgreiningu rannsókn- araðferða fyrir skipið, gerð verk- og tímaáætlunar og skipulagði samstarf við þar til bæra aðila um gerð sýning- ar um kútter Sigurfara. Í tengslum við þetta ætlar Byggða- safnið í Görðum að standa fyrir al- þjóðlegu málþingi um varðveislu skipa og báta og fer það fram dagana 23. og 24. febrúar nk. Á málþinginu munu sérfræðingar frá Hollandi, Noregi, Englandi, Álandseyjum og Íslandi flytja erindi auk þess sem tvær vinnustofur munu fara fram. Málþingið ber heitið „Challenges Facing Historic Ship Conservation: Deconstruction or Reconstructions“ eða „Áskoranir við varðveislu báta: niðurrif eða endurbygging.“ Dagskrá málþingsins fimmtudags- ins 23. febrúar mun fara fram í Tón- bergi á Akranesi en dagskrá föstu- dagsins 24. febrúar mun fara fram á Þjóðminjasafni Íslands í Reykjavík. Erindi á málþinginu munu öll fara fram á ensku en önnur vinnustofan, sem miðar að því að skilgreina gildi kútters Sigurfara fyrir samfélagið á Akranesi, fer fram á íslensku og hefst vinnustofan kl. 16.00. Ráðstefnan er öllum opin en tilkynna skal þátt- töku með tölvupósti á museum@mu- seum.is. „Skagamenn eru sérstaklega hvattir til að taka þátt og það er ekki forsenda þátttöku í vinnustofunni að hafa verið á öllum fyrirlestrunum,“ segir í tilkynningu frá Akraneskaup- stað. Málþingið er að mestu fjármagn- að með styrkfé og hafa Minjastofn- un, A.P. Møller fund í Danmörku og Faxaflóahafnir nú þegar staðfest styrkveitingu til þess. mm/akranes.is Málþing um áskoranir við varðveislu báta og skipa Um síðustu helgi syntu ellefu sund- menn frá Sundfélagi Akraness á al- þjóðlegu sundmóti í Reykjavík, RIG, en þetta var fyrsta mótið í langan tíma sem fólkið keppti í 50 m laug. „Sundfólkinu okkar gekk vel á mótinu og voru 54 bæting- ar yfir helgina ásamt því að mörg þeirra náðu inn í úrslitasund. Sund- menn komu víðs vegar að svo sem frá Kúveit, Danmörku, Finnlandi, Færeyjum og Grænlandi,“ segir Trausti Gylfason formaður SA. „Með sanni má segja að þetta sé mjög góð byrjun á árinu 2017 fyrir iðkendur hjá Sundfélaginu. Næsta mót er hjá yngri sundmönn- um félagsins en þau taka þátt í ÍRB móti í Reykjanesbæ laugardaginn 4. febrúar en eldri sundmenn taka næst þátt í Gullmóti KR sem verð- ur dagana 10. – 12. febrúar og fer fram í Reykjavík,“ segir Trausti. mm Á sjötta tug bætinga sundfólks af Akranesi Sævar Berg Sigurðsson í flugsundi á Reykjavík International Games um síðustu helgi. SÍBS hefur verið á ferð um Vestur- land í vetur og boðið almenningi ókeypis heilsufarsmælingar og ráð- gjöf tengda lífsstíl. Alls þáðu 389 einstaklingar ókeypis mælingu þeg- ar SÍBS og Hjartaheill voru á ferð um Akranes og Borgarnes fyrir jólin og nú um helgina bætast við Ólafsvík, Grundarfjörður og Stykk- ishólmur. Þetta segir Guðmund- ur Löve framkvæmdastjóri SÍBS í samtali við Skessuhorn. Hann segir að um sé að ræða forvarnaverkefn- ið „SÍBS Líf og heilsa“ sem unnið er í samstarfi SÍBS og aðildarfélaga þess, þar sem almenningi sé boðin ókeypis heilsufarsmæling og þátt- taka í spurningakönnun um heilsu og lífsstíl. „Við mælum blóðþrýsting, púls, blóðfitu, blóðsykur og súrefnis- mettun og nú er sú nýlunda í boði að þeim sem mælast lágir í súrefnis- mettun er boðið upp á fráblásturs- mælingu sem m.a. getur útilokað alvarlega lungnateppu,“ segir Guð- mundur. Öllum þátttakendum gefst að auki kostur á að svara spurninga- könnun um lífsstíl og heilsufar þar sem farið sé yfir áhrifaþætti heil- brigðis á víðu sviði, líkamlega jafnt sem andlega. „En það er eitt sem skiptir höf- uðmáli í verkefni sem þessu, og það er fjármögnun. Máttarstólpar SÍBS eru einstaklingar og fyrirtæki sem styrkja fræðslu- og forvarnastarf SÍBS með mánaðarlegu framlagi eða eingreiðslu og eru lykilstyrkt- araðilar SÍBS Líf og heilsa,“ segir Guðmundur. „Máttarstólpar þiggja fegins hendi allan þann stuðning sem fólk sér sér fært að veita, en hægt er að gerast Máttarstólpi með því að hringja í síma 560 4800 á skrifstofutíma eða senda tölvupóst á mattarstolpar@sibs.is.“ Sögu SÍBS Líf og heilsa má rekja aftur um hálfan annan áratug þeg- ar Hjartaheill hóf að bjóða ókeyp- is mælingar á blóðgildum víða um land. Fljótlega tókst samstarf við SÍBS um mælingarnar og nýlega ákváðu Samtök lungnasjúklinga að taka þátt til reynslu. Útkoman er heildstætt verkefni sem byggir á mælingum og spurningakönnun sem gefa góða mynd af heilsufari á hverjum stað og nýtist einstakling- um í heilsueflingu. Mælingar á Snæfellsnesi verða: Í heilsugæslunni í Ólafsvík, Engi- hlíð 28, kl. 10–13 laugardaginn 4. febrúar. Í heilsugæslunni í Grundarfirði, Hrannarstíg 7, kl. 15–18 laugar- daginn 4. febrúar. Í heilsugæslunni í Stykkishólmi, Austurgötu 7, kl. 10–14 sunnudag- inn 5. febrúar. mm Ókeypis heilsufars- mælingar á Snæfellsnesi um helgina

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.