Skessuhorn - 13.09.2017, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 20172
Fjölmargir Vestlendingar hafa gengið
til náms í Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranesi í gegnum tíðina. Haldið verður
upp á 40 ára starfsafmæli skólans laug-
ardaginn 16. september næstkomandi
með opnu húsi og hátíðardagskrá. Nánar í
Skessuhorni vikunnar.
Það verður vestan- og norðvestanátt, 5-15
m/s á morgun fimmtudag. Hvassast aust-
ast á landinu. Bjart með köflum en dálítil
rigning norðaustan lands í fyrstu. Hiti 4 til
14 stig, mildast suðaustan til. Vestlæg átt,
3-10 m/s og skýjað á Vesturlandi á föstu-
dag, en skýjað með köflum annars stað-
ar. Hlýnandi veður. Suðlæg átt á laugar-
dag og víða bjart en áfram skýjað á Vest-
urlandi og líkur á dálítilli súld. Hiti 10 til
18 stig, hlýjast fyrir austan. Sunnanátt og
víða léttskýjað á Norður- og Austurlandi á
sunnudag, en annars úrkomulítið. Hiti 10
til 18 stig, hlýjast norðaustan til. Á mánu-
dag er útlit fyrir suðlæga átt og rigningu
með köflum. Bjart á Norðausturlandi.
Kólnar heldur í veðri.
„Hverjir eru stærstu mannkostirnir“ var
sú spurning sem lesendur Skessuhorns
svöruðu á vefnum í viku liðinni. „Heiðar-
leiki“ hlaut yfirgnæfandi kosningu, en
60% þátttakenda telja það stærsta mann-
kostinn. „Virðing“ kom næst með 9% at-
kvæða, þá „réttlætiskennd“ með 7%, síð-
an „jákvæðni“ með 5% og „auðmýkt“ og
„glaðlyndi“ þar á eftir með 4% atkvæða.
Aðrir valmöguleikar fengu 3% atkvæða
eða minna.
Í næstu viku er spurt:
„Hver er besti haustmaturinn?“
Íbúar og starfsfólks hjúkrunar- og dval-
arheimilisins Brákarhlíðar í Borgarnesi
færðu Rauða krossinum í síðustu viku gjöf.
Voru það flíkur sem prjónaðar hafa verið í
iðjunni í Brákarhlíð.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Leiðrétting
BORGARFJ: Í grein Flemming
Jessen í síðasta tölublaði um tón-
leika Borgarfjarðardætra var sagt
að Steinunn í Hjarðarholti væri
Jónsdóttir. Hið rétta er að hún
er Þorvaldsdóttir (Jónssonar) og
leiðréttist það hér með. -mm
Sjávarútvegs-
sýningin
að hefjast
KÓPAVOGUR: Íslenska sjáv-
arútvegssýningin, eða IceFish
eins og hún er oftast nefnd, hefst
í dag. Gestir og sýnendur frá öll-
um heimshornum hafa boðað
komu sína í Smárann í Kópa-
vogi dagana 13.-15. september.
„Íslenska sjávarútvegssýning-
in hóf göngu sína árið 1984 og
er haldin á þriggja ára fresti. Þar
bjóða sýnendur upp á það nýj-
asta í tækni, framleiðslu og þjón-
ustu. Yfir 500 fyrirtæki og vöru-
flokkar verða til sýnis og aldrei
hafa erlendur sýnendur verið
fleiri. Á seinustu sýningu komu
yfir 15 þúsund gestir og nú þeg-
ar hafa forskráð sig gestir frá um
40 þjóðlöndum frá sex heimsálf-
um. Nýjar vörur verða til sýnis
frá m.a. Skaginn 3X sem mun
sýna smærri útgáfu af háþró-
uðu kælikerfi sínu (á bási B22),
og færeyska fyrirtækið Vónin
mun sýna helstu nýjungar sínar,
þar á meðal Flyer, Tornado og
Storm toghlera á bási O2e,“ seg-
ir í kynningu frá IceFish. -mm
Óhefðbundið
réttarball
STAÐARSVEIT: Laugardag-
inn 23. september næstkom-
andi eru göngur og réttir í Stað-
arsveit á Snæfellsnesi. Af því til-
efni hefur verið ákveðið að blása
til réttarballs á Lýsuhóli. Dans-
leikurinn verður með óhefð-
bundnu sniði. Danshljómsveit
Heimis Klemenzsonar leikur
fyrir dansi og mun sveitin að-
eins spila íslensk dægurlög, allt
frá Hauki Morthens til Páls
Óskars. Þá er byrjar ballið einn-
ig fyrr en gengur og gerist, því
húsið opnar klukkan 20:00 að
kvöldi. Hljómsveitin mun síðan
stíga á svið stundvíslega klukkan
21:00 og leika til miðnættis. Ald-
urstakmark á réttarballið er 16
vetra. Miðaverð í forsölu er kr.
2.500 en miðaverð við inngang-
inn er kr. 3.000. Iðunn Hauks-
dóttir á Votalæk annast forsölu
aðgöngumiða. Forsölunni lýkur
fimmtudaginn 21. september kl.
10:00. Nánari upplýsingar um
miðasölu má finna á Facebook-
viðburðinum „Réttarball, Lýsu-
hóli“. Vert er að geta þess að all-
ur ágóðinn af miðasölunni mun
renna til góðra málefna í Stað-
arsveit. -kgk
Leikdeildin rekur
Lyngbrekku
MÝRAR: Leikdeild Ung-
mennafélagsins Skallagríms og
Borgarbyggð, fyrir hönd Umf.
Björns Hítdælakappa og Umf.
Egils Skallagrímssonar, hafa
gert leigusamning þess efnis að
leikdeildin tekur félagsheimil-
ið Lyngbrekku til leigu næstu
þrjú árin. Tekur samningurinn
gildi 1. janúar næstkomandi.
Árlegt leigugjald er 300 þúsund
krónur. Samningurinn er upp-
segjanlegur af beggja hálfu með
þriggja mánaða fyrirvara. -mm
Tillögur rýnihóps um stækkun fyr-
irhugaðs fimleikahúss við Vestur-
götu á Akranesi voru til umfjöll-
unar á síðasta fundi bæjarrás Akra-
neskaupstaðar. Tillögurnar gera
ráð fyrir stækkun hússins um rúma
200 fermetra frá fyrri áætlunum, úr
1.410 fermetrum í 1.632 fermetra,
sbr. greinargerð hönnuðar. Í fram-
haldi af fundi rýnihóps í sumar
komu fulltrúar Fimleikafélags Akra-
ness á fund arkitekta. Erindið var
að máta búnað inn í þáverandi áætl-
aða stærð hússins, sem var 47x30
metrar að utanmáli. Í þeirri vinnu
kom í ljós að til að nýta megi húsið
bæði til æfinga og mótahalds þyrfti
að stækka húsið í 48x34 m. Rúmast
sú stækkun innan byggingarreitsins
sem skilgreindur er í deiliskipulags-
uppdrætti. Með því að lengja hús-
ið um einn metra, breikka það um
fjóra og mjókka steypta áhorfenda-
palla um einn metra verður fim-
leikagólfið sjálft 47x28 metrar og
húsið sem fyrr segir 1.632 fermetr-
ar að stærð.
Tillögur að stækkun fimleika-
hússins eru einkum tilkomnar
vegna fjögurra þátta:
Lágmarks viðmiðunarstærð 1.
Fimleikasambands Evrópu á
keppnisgólfi er 30x40 metr-
ar. Við þessa lágmarkgsstærð
bætast gryfjur og trampólin en
einnig taka áhöld talsvert gólf-
pláss sem þarf að gera ráð fyrir
til viðbótar við lágmarksstærð
keppnisgólfsins.
Fyrir stækkun var illgerlegt2.
að koma fyrir í húsinu bún-
aði sem telst afar mikilvæg-
ur svo Fimleikafélag Akraness
geti talist samkeppnishæft við
önnur félög í landinu, einkum
þegar kemur að eldri iðkend-
um. Þar er til dæmis átt við
búnað á borð við svokallað
„Fast track“, keppnisáhöld-
um eins og dansgólfi, tveimur
trampólinum með lendingu
og fíbergólfi með lendingu.
Á síðustu önn voru tæpir 500 3.
iðkendur í FIMA og iðkenda-
fjöldi hefur farið vaxandi síð-
ustu ár. Talið er að áhuginn
muni enn aukast með tilkomu
nýs fimleikahúss. Vaxandi fé-
lag kallar á stærri aðstöðu.
Með stærra húsi og hentugri 4.
aðstöðu verður hægt að þjálfa
marga hópa í einu á öllum
tímum dagsins við aðstöðu
sem hentar öllum aldurshóp-
um og getustigum.
60 milljóna stækkun
Rýnihópurinn bar tillögur þess-
ar undir skipulags- og umhverfis-
ráð sem vísaði afgreiðslu þeirra til
bæjarráðs. Bæjarráð samþykkti á
síðasta fundi sínum 24. ágúst síð-
astliðinn að gera ráð fyrir viðbót-
arkostnaði vegna stækkunar fim-
leikahússins, í samræmi við til-
lögur rýnihópsins, við gerð fjár-
hagsáætlunar fyrir árið 2018. Gert
var ráð fyrir fjárfestingakostn-
aði vegna fimleikahúss að fjárhæð
380 milljónir króna á árinu 2018,
en kostnaður verður 440 milljón-
ir vegna fyrirhugaðrar stækkun-
ar. Verði einnig ráðist í fyrirhug-
aðar endurbætur á búningsklefum
verður kostnaðurinn samtals 490
milljónir.
kgk
Fimleikahús stækkað á teikniborðinu
Teikning af fyrirhuguðu
fimleikahúsi við
Vesturgötu á Akranesi.
Nýverið hóf nýr hópur með alls
30 nemendum nám á sjúkraliða-
braut í Fjölbrautaskóla Vestur-
lands á Akranesi. „Mikill stígandi
hefur verið í náminu undanfarin ár
og var aðsókn mikil þetta skólaárið
og komust færri að en vildu,“ segir
í frétt frá FVA.
Nemendur á sjúkraliðabraut
stunda nám sitt í dreifnámi þar sem
mestur hluti þess fer fram heima
en þeir koma einnig í staðbund-
nar lotur reglulega yfir önnina og
hitta þar kennara sína og samne-
mendur. „Hefur þetta kennslu-
form hentað þessum nemendahópi
afar vel enda margir þeirra í vinnu
samhliða námi. Nemendur brauta-
rinnar koma víða að frá Vestur-
landi auk þess sem hingað sækja
nemendur af höfuðborgarsvæði-
nu ásamt einstaklingum bæði af
Norður- og Suðurlandi. Aldurs-
dreifing nemenda er nokkur og má
búast við fjörlegum og skemmti-
legum tímum þegar hópurinn ke-
mur saman. Það eru því spennandi
tímar framundan hjá þessum ver-
ðandi sjúkraliðum sem við bjóðum
hjartanlega velkomna til náms við
skólann,“ segir í frétt frá skóla-
num.
mm
Þrjátíu hefja sjúkraliðanám í FVA