Skessuhorn - 13.09.2017, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2017 27
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Stelpurnar í ÍA í knattspyrnu áttu á
laugardaginn stórleik í lokaumferð
1. deildar kvenna í knattspyrnu.
Mættu þær Sindra frá Hornafirði á
Akranesvelli og endaði viðureign-
in 6:0 fyrir gestgjafana. Skagastúlk-
ur höfðu mikla yfirburði í leikn-
um, héldu boltanum vel og spiluðu
almennt góðan fótbolta. Fyrsta
markið kom á þriðju mínútu leiks-
ins þegar Bergdís Fanney Einars-
dóttir renndi boltanum í mark-
ið eftir fyrirgjöf frá Unni Ýr Har-
aldsdóttur. Aldís Ylfa Heimisdótt-
ir bætti við öðru markinu á tólftu
mínútu með fallegu skoti af hægri
kantinum. Fleiri mörk voru ekki
skoruð í fyrri hálfleik þrátt fyrir
nokkur góð færi.
Aldís Ylfa skoraði sitt annað
mark og þriðja mark ÍA á 66. mín-
útu áður en hún lagði upp fjórða
markið fyrir Unni Ýr. Á 87. mín-
útu átti Hrafnhildur Arín Sigfús-
dóttir góða fyrirgjöf frá hægri sem
Ruth Þórðar Þórðardóttir skallaði
í markið, en Hrafnhildur bætti svo
sjálf við sjötta markinu með góðum
skalla eftir hornspyrnu. Lokatölur
urðu 6:0 eins og fyrr segir.
ÍA lýkur því keppni í 1. deild
kvenna í 5. sæti með 27 stig, jafn
mörg og ÍR í sætinu fyrir neðan en
sex stigum á eftir Keflavík í sætinu
fyrir ofan. mm
Stórsigur ÍA stúlkna
í lokaleik 1. deildar
Aldís Ylfa Heimisdóttir skoraði tvö mörk og lagði upp eitt. Ljósm. gbh.
Unnur Ýr Haraldsdóttir fagnar marki
sínu í leiknum gegn Sindra.
Aldís Ylfa Heimisdóttir var í leikslok
valin maður leiksins. Hlaut hún að
launum gjafabréf fyrir tvo í jöklaferð
frá Arnarstapa. Á meðfylgjandi mynd
afhendir Magnús Guðmundsson,
stjórnarformaður KFÍA, Aldís Ylfu
gjafabréfið. Ljósm. kfia.is
ÍA vann sinn þriðja sigur í Pepsi
deild karla í sumar þegar liðið
sigraði KA á Akranesi á sunnudag.
Lokatölur urðu 2-0 í fínum knatt-
spyrnuleik.
Gestirnir frá Akureyri voru
sterkari í fyrri hálfleik og sköpuðu
sér nokkur ágæt færi. Besta færi
þeirra fékk Almarr Ormarsson á
22. mínútu. KA-menn áttu frá-
bæra sendingu inn í teig á Almarr
sem var dauðafrír en skallaði bolt-
ann yfir. Bestu færi fyrri hálfleiks
voru hins vegar Skagamanna. Á
34. mínútu fékk Steinar Þorsteins-
son boltann á vítateignum, átti
skot að marki en Srdjan Rajkovic
varði frá honum. Þaðan barst bolt-
inn á Stefán Teit Þórðarson sem
náði ekki nógu góðu skoti, beint á
Rajkovic sem lá í markinu.
Á 40. mínútu dró aftur til tíð-
inda. Almarr og Steinar áttust við
í vítateig KA-manna. Almarr var
dæmdur brotlegur og Skagamönn-
um dæmd vítaspyrna. Þórður Þor-
steinn Þórðarson steig á punkt-
inn en spyrnan var ekki nægilega
góð og Rajkovic varði frá honum.
Ólafur Valur Valdimarsson náði
frákastinu og skaut að marki af
stuttu en þröngu færi en Rajkovic
lokaði vel á hann og varði aftur.
KA-menn héldu áfram að skalla að
marki Skagamanna en tókst ekki
skapa neina teljandi hættu við
mark Skagamanna. Staðan í hálf-
leik var markalaus.
Jafnt var á með liðinum fram-
an af fyrri hálfleik en hvorugt lið
náði að skapa sér afgerandi mark-
tækifæri, þar til á 60. mínútu. Þá
skoraði Stefán Teitur úr eins færi
og hann fékk í fyrri hálfleik. Arn-
ar Már Guðjónsson átti þá skot að
marki sem Rajkovic varði. Boltinn
féll fyrir fætur Stefáns Teits sem
brást ekki bogalistin að þessu sinni
heldur lagði hann í markhornið.
Skagamenn komnir yfir, 1-0.
KA-menn sóttu stíft eftir mark-
ið en lið ÍA féll mjög aftarlega á
völlinn og freistaði þess að verja
forskot sitt. Gestirnir höfðu hins
vegar ekki erindi sem erfiði því
tíu mínútum síðar komust Skaga-
menn í 2-0. Albert Hafsteinsson
átti þá skot af löngu færi beint á
Rajkovic markmann. Hann gerði
hins vegar afdrifarík mistök, missti
boltann frá sér fyrir fætur Steinars
Þorsteinssonar sem þakkaði pent
fyrir sig og skoraði auðveldlega.
Reyndist mark Steinars vera síð-
asta mark leiksins og Skagamenn
höfðu því 2-0 sigur á KA og sóttu
um leið þrjú afar mikilvæg stig í
fallbaráttunni. ÍA hefur 13 stig í
botnsæti deildarinnar og er sex
stigum á eftir ÍBV í næstneðsta
sæti en sjö stigum á eftir Víkingi
Ó. og Fjölni í sætunum fyrir ofan
fall. ÍA mætir einmitt Fjölni á úti-
velli í næstu umferð. Sá leikur fer
fram á morgun, fimmtudaginn 14.
september.
kgk/ Ljósm. gbh.
Skagamenn eygja enn von
Stefán Teitur Þórðarson fangar eftir að hafa komið Skagamönnum í 1-0.
Steinar Þorsteinsson fagnar marki sínu sem gulltryggði sigur Skagamanna.
Víkingur Ó. og Fjölnir mættust í
mögnuðum fallbaráttuslag í Pepsi
deild karla í knattspyrnu á laugar-
daginn. Leikurinn fór fram í Ólafs-
vík og þar réði dramatíkin ríkjum.
Lyktaði leiknum með 4-4 jafntefli.
Víkingur missti niður 3-0 forskot
en náðu að jafna á elleftu stundu og
tryggja sér stig úr leiknum.
Víkingar skoruðu fyrsta mark
leiksins strax á 6. mínútu úr sinni
fyrstu sókn. Eivinas Zagurskas tók
aukaspyrnu á miðjum vallarhelm-
ingi Fjölnis. Hann sendi boltann
inn í teiginn, beint á kollinn á Pape
Mamadou Faye sem skoraði með
hörkuskalla.
Á 19. mínútu sýndi Kwame Quee
skemmtilega takta á hægri kanti.
Hann lék illa á tvo varnarmenn
Fjölnis, sendi síðan hnitmiðaða fyr-
irgjöf inn á markteig á Kenan Turu-
dija sem skoraði með viðstöðulausu
skoti og kom Víkingi í 2-0.
Ólafsvíkingar léku á als oddi og
komust í 3-0 á 26. mínútu. Emir
Dokara senda háan bolta fram
völlinn, inn fyrir vörn Fjölnis þar
sem Þorsteinn Már Ragnarsson
var sloppinn einn í gegn og skor-
aði framhjá markverði gestanna.
Staða norðin 3-0 og Víkingar virt-
ust ætla að fara með öruggan sigur
af hólmi.
En svo varð ekki. Aðeins þrem-
ur mínútum síðar minnkaði Fjöln-
ir muninn í 3-1. Linus Olsson tók
á móti löngum bolta framarlega
á vellinum. Hann náði að snúa af
sér varnarmann og skora framhjá
Christian Martinez í markinu.
Enn átti mörkunum eftir að
fjölga því á 36. mínútu var send
löng sending inn í vítateig Víkings.
Boltinn féll fyrir fætur Ingimund-
ar Níels Óskarssonar sem skoraði
með skoti af markteig og staðan
orðin 3-2.
Í þann mund sem ótrúlegur fyrri
hálfleikur var að renna sitt skeið
á enda fengu Víkingar dauða-
færi. Pape átti þá skot af markteig
sem Þórður Ingason varði í marki
Fjölnis.
Dramatískar
lokamínútur
Leikmenn Fjölnis voru sterk-
ari framan af síðari hálfleik. Þeir
sóttu af krafti og jöfnuðu metin á
60. mínútu. Eftir misskilning í öft-
ustu línu Víkings náði Linus bolt-
anum og sendi hann í autt mark-
ið. Skömmu síðar munaði litlu að
Fjölnir kæmist yfir. Marcus Solberg
átti þrumuskalla en Christian varði
meistaralega í markinu.
Leikurinn datt aðeins niður
næstu 15 mínúturnar eða svo en
dramatíkin var hreint ekki á enda.
Fjölnir fullkomnaði endurkomuna
þegar liðið komst yfir á 82. mínútu
leiksins. Christian varði vel skalla
frá Ægi Jarli Jónssyni af stuttu færi.
Boltinn féll út í teiginn og eftir
nokkurn darraðadans var það Hans
Viktor Guðmundsson sem kom
boltanum yfir línuna og Fjölni yfir
í fyrsta sinn í leiknum.
En Fjölnir var ekki lengi í for-
ystu. Á 86. mínútu áttu Kenan og
Þorsteinn Már góðan þríhyrning
við vítateig Fjölnis sem endaði með
því að Kenan sendi boltann í stöng-
ina og inn og jafnaði metin í 4-4.
Það varð lokastaðan í ótrúlegum
leik Víkings og Fjölnis í Ólafsvík.
Víkingar sitja í 10. sæti deildar-
innar með 20 stig eftir leikinn á
laugardag, rétt eins og Fjölnir í sæt-
inu fyrir ofan en stigi á undan ÍBV í
næsta sæti fyrir neðan.
Næst mætir Víkingur liði Stjörn-
unnar á útivelli á morgun, fimmtu-
daginn 14. september.
kgk
Jafnt í ótrúlegum fallbaráttuslag
Pape Mamadou Faye skorar fyrsta mark Víkings með góðum skalla. Ljósm. af.