Skessuhorn


Skessuhorn - 13.09.2017, Blaðsíða 16

Skessuhorn - 13.09.2017, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 201716 Iðunn Silja Svansdóttir og Halldór Sigurkarlsson eru búsett í Hrossholti á sunnanverðu Snæfellsnesi. Þau hafa starfað við tamningar og þjálf- un hrossa í Hestamiðstöðinni Söð- ulsholti í Eyja- og Miklaholtshreppi. Hafa þau haft umsjón með hestamið- stöðinni allt frá því starfsemi hesta- miðstöðvarinnar hófst þar árið 2006. „Dóri vann við að byggja hérna og við tókum síðan við þessu alveg nýju,“ segir Iðunn. „Þar áður vorum við norður í Skagafirði. Einar Ólafs- son, sem á Söðulsholt, sendi okkur alltaf hross í tamningar á hverju ári. Einhverju sinni nefndi hann það við okkur að hann ætlaði að byggja þessa aðstöðu hér og bað okkur að koma og aðstoða við það. Þegar við vor- um hingað komin og framkvæmdir um það bil að hefjast sagði hann að sig vantaði tamningamenn og spurði hvort við vildum ekki taka að okk- ur að sjá um þetta,“ segir Dóri. „Og við slógum bara til og sjáum ekki eft- ir því. Okkur líkar vel að vera hérna, draumaaðstaða í vinnunni og gott að búa á þessu svæði,“ segja þau. Svæðinu eru þau alls ekki ókunn, því Iðunn er uppalin í Dalsmynni, næsta bæ við Söðulsholt. Halldór er hins vegar frá Snartartungu í Bitru- firði. Bæði kynntust þau hestunum og hestamennskunni ung að árum og áhuginn kviknaði snemma. „Ég held ég hafi verið í hestamennsk- unni alla tíð og áhuginn hefur allt- af verið til staðar, svo lengi sem ég man eftir mér,“ segir Dóri og Iðunn tekur undir það fyrir sitt leyti. „Ég hef alltaf verið í kringum hesta, frá því ég var barn. Ég fór síðan og lærði hestafræði við Háskólann á Hólum og lagði þetta fyrir mig,“ segir hún. Erfitt en mjög skemmtilegt Á veturnar eru þau með 25 til 30 hross inni en á sumrin eru þau í kringum 40 á járnum. „En það er misjafnt hvernig hestar eru hjá okkur hverju sinni; tamningartrippi, þjálf- unarhross, söluhross og svo á sumrin eru líka hestuleiguhestar,“ segja þau. „Hestunum vill nú frekar fjölga hjá okkur en fækka. Ég veit ekki alveg hvernig stendur á því,“ segir Dóri og brosir. Yfirleitt eru einn til tveir starfs- menn með Iðunni og Dóra í Söðuls- holti. Þannig hafa tveir verið í sumar en annar er á förum til heimalands síns Þýskalands nú á haustmánuðum. Dagurinn byrjar jafnan á því að Ið- unn og Dóri gefa þeim hestum sem eru á húsi og reka síðan inn þá sem verja nóttinni í nátthaganum. „Síð- an fáum við okkur morgunmat og hefjumst næst handa við að temja og þjálfa,“ segir Iðunn. „Það er ýmislegt annað sem fylgir þessu. Við erum í raun bara eins og hrossabændur og göngum í öll störf sem þessu tengj- ast, hvort sem það er heyskapur, girðingavinna eða hvaðeina. Síðan tökum við á móti ferðamönnum sem koma í gistinguna og þeim sem vilja fara á bak. Þannig að þetta er mjög fjölbreytt,“ segir Dóri, „og rosalega gaman,“ bætir Iðunn við. „Erfitt en mjög skemmtilegt,“ segja þau. Líka að búa til knapa Iðunn og Dóri hafa haft í nógu að snúast við tamningar í ár og telja þær vera að færast í aukana. Alla jafnan segja þau að mest sé að gera á haustin og veturna en minna á sumrin. „En það var ekki núna. Það er búið að vera mikið að gera í allt sumar,“ segja þau. Verkefnin eru hins vegar breytileg eftir árstíðum. „Á haustin er jafnan mikið um frum- tamningar, eins og núna. Því fylgir spenna og eftirvænting eftir því að sjá hvað leynist í þeim hrossum sem eigendurnir hafa verið að rækta,“ segir Dóri. „Á veturna er meira um framahaldsþjálfun þar sem unnið er með meira tömdum hrossum og auðvitað þjálfun fyrir keppnir,“ segir Iðunn. Þau fylgjast náið með gangi mála á keppnistímabilinu að vetrin- um og keppa sjálf í hestaíþróttum með Hestamannafélaginu Skugga. „Eldri stelpan okkar er líka byrjuð að keppa, það er rosalega gaman að fylgjast með henni,“ segir Iðunn. Sú er 11 ára gömul og heitir Kolbrún. Yngri dóttir þeirra heitir Svandís og er að verða fimm ára. Hún hef- ur einnig brennandi áhuga á hestum og sjaldan ánægðari en þegar hún fær að fara með foreldrum sínum á bak. „Við erum líka að reyna að búa til knapa,“ segja Iðunn og Dóri. Hestamennskunni farið fram Þau vekja máls á því að hesta- mennskunni á Vesturlandi hafi far- ið mikið fram undanfarinn áratug eða svo. „Mér finnst hestamennsk- an á svæðinu hafa eflst mikið bara á þeim tíma sem við höfum verið hérna,“ segir Iðunn og Dóri tekur undir með henni. Telja þau að bætt aðstaða hafi þar mikið að segja, en undanfarin ár hafa risið reiðhallir víða í landshlutanum. Þar má nefna Borgarnesi, Stykkishólm og Ólafsvík en einnig víða út til sveita, eins og til dæmis í Söðulsholti og á Lýsu- hóli. „Þá hafa vetrarmótin eflt hestamennskuna verulega. Hér áður fyrr var ekkert keppt mikið á veturna og það var náttúrulega ekki hægt fyrr en það kom einhver aðstaða til þess,“ segir Dóri. „Þá er vel haldið utan um allt barna- og ungmennastarf í hestamannafélög- unum, maður sér mikið af góðum ungum knöpum keppa í mótum,“ segir Iðunn. „Allt þetta skilar sér í betri hrossum og betri knöpum og er hestamennskunni á Vestur- landi til framdráttar,“ segja þau Ið- unn og Dóri að endingu. kgk Fjölbreytt og erfitt en rosalega skemmtilegt Iðunn Silja Svansdóttir og Halldór Sigurkarlsson á baki ásamt dætrunum tveimur, Kolbrúnu og Svandísi. Ljósm. iss. Kolbrún, eldri dóttir Iðunnar og Dóra, er byrjuð að keppa af fullum krafti. „Það er rosalega gaman að fylgjast með henni,“ segir móðir hennar. Ljósm. iss. Hestamiðstöðin Söðulsholt á sunnanverðu Snæfellsnesi. Ljósm. kgk. Hross í girðingu fyrir utan hestamiðstöðina. Ljósm. kgk. Frá ræktunarbússýningu Söðulsholts á Fjórðungsmóti Vesturlands í sumar. Ljósm. iss.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.