Skessuhorn - 13.09.2017, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 201724
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmar 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Sprautu- og bifreiðaverkstæði
Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is
Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti
Þjónustum öll tryggingafélög
Borgarness
Bygging Sementsverksmiðjunnar á
Akranesi var stórvikri á sinni tíð og
rekstur hennar stuðlaði mjög að upp-
byggingu staðarins síðastliðna hálfa
öld.
En staðarval hennar, sem á sínum
tíma var mjög umdeilt, mundi í dag
vera kallað umhverfisslys. Á það bæði
við um byggðina í bænum og náttúr-
una.
Staðsetning stórra húsa og ýmissa
mannvirkja nánast ofan í miðju bæj-
arins var hrapaleg og náttúruspjöll
voru unnin með því að leggja undir
skeljasandsþró stóran hluta af Langa-
sandi, sem var og er einstakt náttúru-
djásn, sem á sér ekki sinn líka í neinu
bæjarfélagi hér á landi og þótt víðar
væri leitað.
Nú hefur starfsemi verksmiðjunn-
ar verið hætt og fyrir liggur skipu-
lagstillaga sem ætti m.a. að fjalla um
hvernig megi endurheimta þau um-
hverfisgæði sem spillt var.
Lagt er til að rífa megnið af bygg-
ingum verksmiðjunnar og nýta land-
ið fyrir blandaða byggð í góðum
tengslum við gamla miðbæinn, og er
það vel.
Verra er að samkvæmt skipulag-
stillögunni á ekki að fjarlægja skelja-
sandsþróna og endurheimta þannig
mikilvægan hluta Langasands, sem er
sunnan við Jaðarsbraut og nær allt að
byggðinni í elsta hluta bæjarins.
Þvert á móti er ætlunin að festa
endanlega í sessi þessi náttúruspjöll
og skemmd á útliti bæjarins með
húsaþyrpingum sem eiga að rísa á
sandþrónni.
Með þessum húsaþyrpingum yrði
einnig vegið að hinni gömlu og fal-
legu bæjarmynd, þar sem þær myndu
rísa fyrir framan húsin við Jaðars-
braut, en þau hús mynda eina heild-
stæðustu götumynd í bænum með
húsum sem eru vel samræmd og í
þeim stíl sem nefndur hefur verið
hinn „íslenski funkisstíll“. Útsýn nið-
ur á Langasand, til sjávar og allt til
Reykjavíkur yrði einnig tekin af Jað-
arsbrautarhúsunum.
Með því að endurheimta vestur-
hluta Langasands myndi gamla bæj-
armyndin á þessu svæði njóta sín á
ný, en hluti af henni eru Langisandur
og Jaðarsbakkar. Til þess að svo megi
verða þarf að breyta núverandi legu
Faxabrautar þannig að hún færist nær
Suðurgötu og Jaðarsbraut. Brautin
mundi liggja lægra en þessar götur
þannig að útsýni frá húsum við þær
yrði óskert og hávaða frá umferð lít-
ið gæta. Í þessari legu mundi einnig
ágangi sjávar í stórviðrum gæta mun
minna en í núverandi legu.
Í stað mjúkrar beygju, áður en Fax-
abrautin fer yfir Jaðarsbrautina, kæmi
kröpp beygja með sama radius og er í
hringtorginu litlu ofar.
Umferð gangandi og hjólandi
barna og fullorðinna um Jaðarsbraut
að íþróttasvæðinu og baðaðstöðunni
á Langasandi er og verður jafnan
töluverð. Hraður akstur þungra bíla
á þessum stað er því hættulegur. Með
krappri beygju við Jaðarsbraut og
hringtorginu litlu ofar yrði komið í
veg fyrir hann.
Með endurheimtu vesturhluta
Langasands næði sandurinn upp-
runalegri stærð og náttúrulegum
glæsileik. Þannig myndi sandurinn
teygja sig allt að nýrri uppbyggingu
á Sementsreitnum og gamla kjarna
bæjarins og verða með því móti aftur
ríkur hluti af ímynd bæjarins.
Langisandur er frábært útivist-
arsvæði, til gönguferða, leikja og
íþrótta, þar með töldum sjóböðum.
Ómetanlegt er því að fá hann í náin
tengsl við uppbygginguna á Sements-
verksmiðjureitnum og byggðina þar í
kring. Með tilliti til þess er mikilvægt
að gera öruggar gönguleiðir að hon-
um með göngum undir eða brúm yfir
Faxabrautina.
Meðfylgjandi á einni mynd sem
fylgir þessari grein sést endurheimt-
ur Langasandur og hugsanleg fram-
tíðarlega Faxabrautar.
Reykjavík 30. ágúst 2017
Már Karlsson verkfræðingur og
Ormar Þór Guðmundsson arkitekt.
Endurheimtum Langasand!
Athugasemdir vegna aðal- og deiliskipulagstillögu fyrir
Sementsverksmiðjureitinn á Akranesi
Pennagrein
Ormar Þór
Guðmundsson.
Már Karlsson.
Langisandur sem yrði endurheimtur og bæjarmynd Skagans áður en Sementsverksmiðjan reis.
Núverandi lega Faxabrautar, sem yrði óbreytt skv. deiliskipulagstillögunni. Lausleg tillaga að breyttri legu Faxabrautar og endurheimtum vesturhluta Langa-
sands.
„Húsin við Jaðarsbraut mynda eina heildstæðustu götumynd í bænum með húsum
sem eru vel samræmd og í þeim stíl sem nefndur hefur verið hinn „íslenski funkisstíll“.
Þessi mynd var tekin um 1940 og sýnir krikann á Langasandi sem yrði endurheitmtur
með breyttri legu Faxabrautar. Myndin er tekin frá Suðurgötu.
Ljósm. úr safni Helga Daníelssonar.