Skessuhorn


Skessuhorn - 13.09.2017, Page 24

Skessuhorn - 13.09.2017, Page 24
MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 201724 Vörur og þjónusta Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 www.skessuhorn.is Þjónustuauglýsingar Skessuhorns Auglýsingasími: 433 5500 H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmar 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com SK ES SU H O R N 2 01 7 Sprautu- og bifreiðaverkstæði Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti Þjónustum öll tryggingafélög Borgarness Bygging Sementsverksmiðjunnar á Akranesi var stórvikri á sinni tíð og rekstur hennar stuðlaði mjög að upp- byggingu staðarins síðastliðna hálfa öld. En staðarval hennar, sem á sínum tíma var mjög umdeilt, mundi í dag vera kallað umhverfisslys. Á það bæði við um byggðina í bænum og náttúr- una. Staðsetning stórra húsa og ýmissa mannvirkja nánast ofan í miðju bæj- arins var hrapaleg og náttúruspjöll voru unnin með því að leggja undir skeljasandsþró stóran hluta af Langa- sandi, sem var og er einstakt náttúru- djásn, sem á sér ekki sinn líka í neinu bæjarfélagi hér á landi og þótt víðar væri leitað. Nú hefur starfsemi verksmiðjunn- ar verið hætt og fyrir liggur skipu- lagstillaga sem ætti m.a. að fjalla um hvernig megi endurheimta þau um- hverfisgæði sem spillt var. Lagt er til að rífa megnið af bygg- ingum verksmiðjunnar og nýta land- ið fyrir blandaða byggð í góðum tengslum við gamla miðbæinn, og er það vel. Verra er að samkvæmt skipulag- stillögunni á ekki að fjarlægja skelja- sandsþróna og endurheimta þannig mikilvægan hluta Langasands, sem er sunnan við Jaðarsbraut og nær allt að byggðinni í elsta hluta bæjarins. Þvert á móti er ætlunin að festa endanlega í sessi þessi náttúruspjöll og skemmd á útliti bæjarins með húsaþyrpingum sem eiga að rísa á sandþrónni. Með þessum húsaþyrpingum yrði einnig vegið að hinni gömlu og fal- legu bæjarmynd, þar sem þær myndu rísa fyrir framan húsin við Jaðars- braut, en þau hús mynda eina heild- stæðustu götumynd í bænum með húsum sem eru vel samræmd og í þeim stíl sem nefndur hefur verið hinn „íslenski funkisstíll“. Útsýn nið- ur á Langasand, til sjávar og allt til Reykjavíkur yrði einnig tekin af Jað- arsbrautarhúsunum. Með því að endurheimta vestur- hluta Langasands myndi gamla bæj- armyndin á þessu svæði njóta sín á ný, en hluti af henni eru Langisandur og Jaðarsbakkar. Til þess að svo megi verða þarf að breyta núverandi legu Faxabrautar þannig að hún færist nær Suðurgötu og Jaðarsbraut. Brautin mundi liggja lægra en þessar götur þannig að útsýni frá húsum við þær yrði óskert og hávaða frá umferð lít- ið gæta. Í þessari legu mundi einnig ágangi sjávar í stórviðrum gæta mun minna en í núverandi legu. Í stað mjúkrar beygju, áður en Fax- abrautin fer yfir Jaðarsbrautina, kæmi kröpp beygja með sama radius og er í hringtorginu litlu ofar. Umferð gangandi og hjólandi barna og fullorðinna um Jaðarsbraut að íþróttasvæðinu og baðaðstöðunni á Langasandi er og verður jafnan töluverð. Hraður akstur þungra bíla á þessum stað er því hættulegur. Með krappri beygju við Jaðarsbraut og hringtorginu litlu ofar yrði komið í veg fyrir hann. Með endurheimtu vesturhluta Langasands næði sandurinn upp- runalegri stærð og náttúrulegum glæsileik. Þannig myndi sandurinn teygja sig allt að nýrri uppbyggingu á Sementsreitnum og gamla kjarna bæjarins og verða með því móti aftur ríkur hluti af ímynd bæjarins. Langisandur er frábært útivist- arsvæði, til gönguferða, leikja og íþrótta, þar með töldum sjóböðum. Ómetanlegt er því að fá hann í náin tengsl við uppbygginguna á Sements- verksmiðjureitnum og byggðina þar í kring. Með tilliti til þess er mikilvægt að gera öruggar gönguleiðir að hon- um með göngum undir eða brúm yfir Faxabrautina. Meðfylgjandi á einni mynd sem fylgir þessari grein sést endurheimt- ur Langasandur og hugsanleg fram- tíðarlega Faxabrautar. Reykjavík 30. ágúst 2017 Már Karlsson verkfræðingur og Ormar Þór Guðmundsson arkitekt. Endurheimtum Langasand! Athugasemdir vegna aðal- og deiliskipulagstillögu fyrir Sementsverksmiðjureitinn á Akranesi Pennagrein Ormar Þór Guðmundsson. Már Karlsson. Langisandur sem yrði endurheimtur og bæjarmynd Skagans áður en Sementsverksmiðjan reis. Núverandi lega Faxabrautar, sem yrði óbreytt skv. deiliskipulagstillögunni. Lausleg tillaga að breyttri legu Faxabrautar og endurheimtum vesturhluta Langa- sands. „Húsin við Jaðarsbraut mynda eina heildstæðustu götumynd í bænum með húsum sem eru vel samræmd og í þeim stíl sem nefndur hefur verið hinn „íslenski funkisstíll“. Þessi mynd var tekin um 1940 og sýnir krikann á Langasandi sem yrði endurheitmtur með breyttri legu Faxabrautar. Myndin er tekin frá Suðurgötu. Ljósm. úr safni Helga Daníelssonar.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.