Skessuhorn


Skessuhorn - 13.09.2017, Síða 4

Skessuhorn - 13.09.2017, Síða 4
MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 20174 Virðisaukaskattur á ferðaþjónustu mun hækka í 22,5% um áramót- in 2018/2019 samhliða almennri lækkun efra virðisaukaskattsþreps úr 24% í 22,5%. Áður hafði ver- ið stefnt að því í fjármálaáætl- un að færa gistiþjónustu og aðra ferðaþjónustutengda starfsemi úr neðra þrepi í þrep almenns virðis- aukaskatts 1. júlí 2018. Sú breyt- ing frestast því um hálft ár. Þetta er meðal þess sem kom fram þeg- ar Benedikt Jóhannesson fjármála- ráðherra kynnti fjárlög ársins 2018 í gærmorgun. Markmiðið með færslu ferða- þjónustunnar í almennt þrep virð- isaukaskatts er að stuðla að sjálf- bærari vexti atvinnugreinarinnar, bættri skilvirkni virðisaukaskatt- skerfisins og samræmingu rekstrar- skilyrða atvinnugreina, þannig að ferðaþjónustan ryðji ekki öðrum at- vinnugreinum úr vegi. „Með þessu uppleggi erum við að koma til móts við gagnrýni sem kom við um- fjöllun um fjármálaáætlun, einkum hversu flókið það er að breyta um skattþrep tvisvar á hálfu ári. Neyt- endur munu fagna lægri virðisauka- skatti og Ísland verður samkeppn- ishæfara bæði hvað varðar lífskjör og starfsskilyrði fyrirtækja,“ segir Benedikt. Framkvæmdasjóður ferðamanna- staða mun hafa tæpar 800 milljónir til ráðstöfunar á árinu 2018. Nemur það aukningu upp á um 200 millj- ónir. Enn fremur segir í kynningu fjárlaga á vef stjórnarráðsins að auknu fé verði varið til rannsókna og gagnaöflunar í ferðaþjónustu. Þá verði stuðningur við Markaðs- stofur landshlutanna aukinn veru- lega. kgk Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá- auglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 2.835 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 2.457. Rafræn áskrift kostar 2.226 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.058 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Emilía Ottesen emilia@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Við erum Íslendingar Haustverk Íslendinga eru líklega álíka misjöfn og við erum mörg. Raunar er haustið sú árstíð sem flestir miða við að hefja eitthvað eða ljúka, breyta til eða setja markmið. Á haustin hefst til dæmis skólastarf, unga fólkið lýk- ur sumarstörfum sínum og sest á skólabekk. Eldri bóka sig sömuleiðis á námskeið í þeim tilgangi að bæta þekkingu og fjölga tækifærum. Við upp- skerum úr görðum því sem til var sáð að vori og í byrjun september hefja sjómenn og sjávarútvegsfyrirtæki nýtt tímabil veiða og vinnslu. Loks er haldið til fjalla og þangað sótt fé sem rekið er til rétta og í kjölfarið hefst sláturtíð. Samkvæmt venju reyna hagsýnir að koma sér upp vetrarforða í kistuna, kartöflur eru teknar upp og settar í geymslu og berin eru sultuð í óteljandi krukkur. Haustið er því tími anna og gleði yfir fengnum hlut. Öll erum við afkomendur fólks sem þurft hefur að berjast fyrir lífinu. Ekki þarf að leita langt aftur í tímann til að heyra um ótrúlega lífsbaráttu fólks; að eiga til hnífs og skeiðar, hlý híbýli til að hafast við í, eða næga at- vinnu. Til er fólk niður undir sjötugt sem ólst upp í torfbæjum og kynnt- ist aðstæðum eins og forfeður okkar lengra aftur í aldir bjuggu við. Elstu núlifandi Íslendingarnir muna margir þá tíð að föt voru ekki til skiptanna og matur af skornum skammti. Aðstæður hafa þannig breyst gríðarlega á innan við einum mannsaldri. Þetta er okkur hollt að rifja upp nú á tímum þegar kvart og kvein heyr- ist víða yfir því sem flokka mætti sem smámuni eða hégóma í samanburði við þau kjör sem margir af forfeðrum okkar þurftu að búa við. Þess vegna eigum við að gleðjast yfir því sem við höfum og draga úr óánægju eða öf- und í garð annarra. Vissulega er gæðunum afskaplega misskipt og líklega mun ekkert okkar lifa þann dag þegar jöfnuður verður milli þegna þessa lands. Slíkt hefur aldrei verið og mun ekki verða því fólk reynir í krafti afls peninga sem það á, að halda yfirráðum sínum, peningalegu forskoti. Sem betur fer getur það ekki keypt hamingjuna af öðrum, því hún er ekki föl, hversu hátt sem boðið er. Hins vegar ber okkur að berjast gegn því öllum stundum að fólk líði skort og æskunni sé mögulega ekki búin jöfn tækifæri til náms og sjálfsbjargar síðar á lífsleiðinni. Þannig vil ég meina að haustið sé og eigi að vera gleðitími jafnt inn til lands og út til stranda. Þessi tími öflunar matar til að byggja upp vetrar- forða á að vera bundið í gen okkar. Þess vegna hætti ég til dæmis fyrir löngu síðan að veiða lax þegar komið var á því galna fyrirkomulagi að veiða og - „sleppa.“ Að sleppa bráð sem búið er að fanga er andstætt veiðieðli hvers manns og það mega aðrir en ég haga sér þannig úti í nátt- úrunni. Hins vegar er gaman að upplifa gleðina þegar vænn dilkur kemur af fjalli, fallegur þorskur er dreginn úr sjó, silungur úr tjörn, bústin ber tínd af lyngi eða þegar bóndinn þreskir fallegt korn. Allt er þetta í þeim tilgangi gert að búa í haginn fyrir veturinn. Við söfnum forða, hjálpumst að í réttunum, eða við sultugerðina. Við svíðum svið, tökum slátur og steikjum fiskibollur í kistuna. Við erum einfaldlega að feta í fótspor for- feðra okkar sem nákvæmlega með þessum hætti tókst að draga fram lífið, þreyja þorrann og góuna, allt þar til birta sólar að vori hóf að kveikja nýtt líf til að hringrásin gæti haldið áfram. Það hvernig tókst til við haust- verkin skildi einfaldlega á milli feigs og ófeigs. Tímabundið verðfall eins og nú er á dilkakjöti, lágt verð fyrir fisk á markaði eða gæftaleysi er bara ástand, eitthvað sem lagast eða verður leyst. Tímabundið ástand sem ekki má skyggja á tilganginn með þessu öllu saman og gleðina við að fá að upp- lifa haustið með allsnægtum þess. Við ætlum nefnilega áfram að eiga hér heima. Við erum Íslendingar. Magnús Magnússon. Leiðari Hækkun virðisaukaskatts á ferðaþjónustu frestast Ferðamenn á gangi við Hraunfossa í Borgarfirði. Ljósm. úr safni. Framlög til byggingar nýs Land- spítala verða 2,8 milljarðar króna á árinu 2018. Er það hækkun um 1,5 milljarð frá fjármálaáætlun. Bygg- ing spítalans hefst seinni hluta næsta árs og þá verður sömuleiðis haf- ist handa við byggingu meðferðar- kjarna við Hringbraut. Þetta kemur fram í kynningu á fjárlögum ársins 2018 á vef stjórnarráðsins. Þar segir að haldið verði áfram með átak til að bæta núverandi húsnæði Landspít- ala. Alls hækka útgjöld til heilbrigð- is- og velferðarmála um 4,6% um- fram launa- og verðlagsþróun. „Hugað er að geðheilbrigðis- málum víða í kerfinu. Heilsugæsl- an um land allt verður styrkt áfram sem fyrsti viðkomustaður, t.d. með fjölgun sálfræðinga. Barna- og ung- lingageðdeild Landspítala verður styrkt sérstaklega og sálfræðingum á heilsugæslu, geðheilsuteymum og meðferðarúrræðum við geðvanda fjölgað,“ segir á vef stjórnarráðsins. Samkvæmt fjármálaáætlun er gert ráð fyrir því að framlög til geðheil- brigðisþjónustu, þ.m.t. barna- og unglingageðdeildar, verði aukin í áföngum til ársins 2022. kgk Tæpir þrír milljarðar í nýjan Landspítala Teikning að nýjum Landspítala við Hringbraut í Reykjavík. Skipt hefur verið um veiðarfæri á Saxhamri SH í Rifi sem gerð- ur hefur verið út á línu- og neta- veiðar af Útnesi ehf. Mun nú verða hætt á línu og byrjað á dragnót. Er þetta í fyrsta sinn í sögu útgerðar- innar að báturinn verður gerður út á dragnót. Búnaður til línuveiða hefur verið fjarlægður úr bátn- um og hann nú útbúin fyrir drag- nótina. Við þessar breytingar fækk- ar í áhöfn bátsins úr fjórtán niður í átta. Saxhamar verður því hér eftir gerður út á dragnót og net. Ástæð- ur fyrir því að rekstrarmynstri báts- ins er breytt með þessum hætti eru að fiskverð hefur lækkað, veiðigjöld hækkað og beitukostnaður sömu- leiðis. Eftir breytingarnar verður Saxhamar SH orðinn meðal stærstu dragnótarbáta í flota landsins en hann er 393 brúttótonn og um 40 metra langur. þa Saxhamar útbúinn til dragnótarveiða

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.