Skessuhorn


Skessuhorn - 13.09.2017, Side 7

Skessuhorn - 13.09.2017, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2017 7 Minnum á óbreyttan skilafrest auglýsinga Auglýsingar í Skessuhorn þurfa að berast í síðasta lagi á hádegi á þriðjudögum á netfangið auglysingar@skessuhorn.is. Auglýsendum er einnig bent á heimasíðuna www.skessuhorn.is þar sem boðið er upp á helstu stærðir vefborða. Nánari upplýsingar í síma 433-5500. Einkunnarorð sveitarfélagsins eru jákvæðni, metnaður og víðsýni. Íbúaþing um farsæl efri ár á Akranesi Allir íbúar á Akranesi eru velkomnir á íbúaþingið. Sérstaklega er óskað eftir þátttöku eftirtalinna: • Íbúum í aldurshópum 75 ára og eldri • Íbúum í aldurshópnum 60 til 75 ára • Íbúum í aldurshópnum 50 til 60 ára • Starfsfólki sem vinnur í öldrunarþjónustu • Fulltrúum frá stofnunum og félagasamtökum sem vinna að málefninu Unnið verður í hópum út frá þjóðfundarfyrirkomulagi og verða niðurstöður íbúaþingsins notaðar sem innlegg í stefnumótunarvinnu í málefnum aldraða. Akraneskaupstaður býður þátttakendum upp á léttar veitingar. Skráning fer fram á heimasíðu Akraneskaup- staðar en einnig er hægt að skrá sig í þjónustuveri Akraneskaupstaðar að Stillholti 16-18, 1. hæð. Skráning er til og með 20. september 2017. Vilt þú hafa áhrif – mættu þá á þingið Íbúaþing um farsæl efri ár á Akranesi verður haldið þann 27. september næstkomandi frá kl. 17:00-21:00 í Grundaskóla. Markmið íbúaþingsins er að leita svara við eftirfarandi spurningum: Hvað er gott við að eldast á Akranesi? Hvernig viltu sjá málefni eldri borgara á Akranesi þróast? Hvernig getur Akraneskaupstaður stuðlað að farsælum efri árum? Hvað getum við sem einstaklingar gert til að stuðla að farsælum efri árum? Ferðafélag Íslands býður upp á lýð- heilsugöngur í flestum sveitarfé- lögum landsins nú í september. Til- efnið er 90 ára afmæli ferðafélagsins 27. nóvember næstkomandi. Geng- ið er í flestum sveitarfélögum á Vest- urlandi, meðal annars í Snæfellsbæ. Var fyrsta gangan farin þar miðviku- daginn 6. september. Vel var mætt en gengnir voru Öndverðarneshólar undir fararstjórn Árna Guðjóns Að- alsteinssonar með þátttöku ríflega tuttugu garpa. Tilgangur lýðsheilsugöngunn- ar er að hvetja fólk til útivistar og hreyfingar í góðum félagsskap. Vill ferðafélagið með þessu leggja sitt af mörkum til að stuðla að bættri lýðu- heilsu íbúa landsins og auka líkam- lega, andlega og félagslega vellíðan ásamt meðvitund um umhverfið. Farnar verða fjórar göngur í Snæ- fellsbæ. Önnur verður í dag, mið- vikudaginn 13. september að Búða- kletti í fararstjórn Rósu Erlends- dóttur. Fararstjóri í 3. og 4. göng- unum verður Elfa Eydal Ármanns- dóttir og verður Bugshringurinn genginn 20. september og Presta- stígurinn 27. september. þa Lýðheilsugöngur í Snæfellsbæ Fimmtudaginn 7. september síðastliðinn var opnaður vef- ur um íslensk- ar skáldkonur, www.skald.is . Að verkefninu standa Ásgerð- ur Jóhannsdótt- ir og Jóna Guð- björg Torfa- dóttir. Vefur- inn hverfist um konur og skáld- skap þeirra og verður leitast við að birta þar viðburði, frétt- ir, greinaskrif og fagurfræðilega texta um konur, eftir konur. Þar er einnig að finna skáldatal íslenskra kvenskálda. Vefurinn er unninn í sjálfboða- vinnu og af hugsjón einni saman; lagt er upp í langferð sem sér ekki fyrir endann á svo lengi sem kon- ur stinga niður penna - hvergi sést hilla undir síðustu skáldkonuna. Von þeirra sem að vefnum standa er að hann eigi eftir að stækka og dafna og verða verðugur vettvangur fyrir íslenskar skáldkonur. Skálda- talið er í vinnslu og bætast ný skáld við vikulega. Allar konur sem skrif- að hafa um kvennabókmenntir eða gefið út skáldskap eru hvattar til að senda inn efni til birtingar á skald@ skald.is. -fréttatilkynning Vefsetur um íslenskar skáldkonur BAULAN BORGARFIRÐI Eldhússtarfsmenn / Kitchen Staff Almenn afgreiðsla / General Commercial Works Baulan leitar að harðduglegum og jákvæðum starfs- mönnum bæði í eldhús sem og almenna afgreiðslu, bæði í fullt starf og hlutastarf. Umsóknir ásamt ferilskrá og mynd sendist á: baulan@baulan.is eða hafa samband við Elmar í síma 777 4692 The Baulan needs hard working and ambitious employees, for both kitchen and general commercial works full time jobs and part time jobs. Please send your application via email to baulan@baulan.is or call Elmar in 777 4692

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.