Skessuhorn - 13.09.2017, Síða 12
MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 201712
Orkuveita Reykjavíkur, í samstarfi
við Háskóla Íslands og erlendar
vísindastofnanir, hefur fengið tvo
styrki til að þróa áfram bindingu
koltvíoxíðs í grjót. Styrkirnir tveir
nema samtals 12,2 milljónum evra,
sem svarar til liðlega eins og hálfs
milljarðs króna. „Nýsköpunarverk-
efnin, sem hófust árið 2007, hafa
þegar leitt til verulegs samdrátt-
ar í losun jarðhitalofts frá Hellis-
heiðarvirkjun. Níu doktorsnemar
hafa varið ritgerðir sínar um kol-
efnisbindingu í bergi og starfa við
rannsóknir hér heima og erlend-
is. Framundan er meðal annars að
þróa bindingu koltvíoxíðs á sjávar-
botni. Dr. Edda Sif Pind Aradóttir
verkefnisstjóri segir styrkina, sem
dreifast á fjölda samstarfsaðila,
vera mikla viðurkenningu og auka
vægi verkefnanna í baráttunni við
loftslagsvandann,“ segir í tilkynn-
ingu frá Orkuveitu Reykjavíkur.
Gas í grjót
Frá árinu 2007 hafa vísindamenn, í
samstarfi við iðnaðar- og tæknifólk
Orkuveitu Reykjavíkur og dótt-
urfyrirtækjanna Orku náttúrunn-
ar og Veitna, unnið að þróun og
prófun á þeirri hugmynd að hægt
sé að taka koltvíoxíð sem kemur
upp með jarðhitavökvanum, blanda
það vatni og dæla aftur niður í jörð-
ina. Þar bindist það síðan varan-
lega í formi steinda. „Þetta heppn-
aðist. Sama aðferð er nú nýtt til að
hreinsa brennisteinsvetni úr út-
blæstrinum og er nú um 60% þess
sem upp kemur bundið sem steind-
ir í basaltberglögum djúpt í jörðu í
grennd virkjunarinnar. CarbFix er
heitið á upphaflega þróunarverk-
efninu með koltvíoxíð. SulFix er
heitið sem brennisteinsverkefnið
fékk og einu nafni ganga þau undir
heitinu Gas í grjót,“ segir í tilkynn-
ingu Orkuveitunnar.
Beina sjónum
að sjónum
Sökum þess að þær aðferðir sem
hafa verið þróaðar til að binda jarð-
hitaloftið í basaltslögum eru vatns-
frekar og að mikil basaltsberglög er
að finna á hafsbotni, þá beina vís-
indamenn í verkefninu nú sjón-
um sínum að bindingu koltvíoxíðs
í sjávarbotni. Verkefnið hefur vakið
heimsathygli síðsutu misseri, ekki
síst eftir að grein birtist um það í
hinu virta vísindatímariti Science
um mitt síðasta ár. Erlendir miðlar
hafa síðan þá gert sér ferðir hingað
til lands sérstaklega til að greina frá
verkefninu. kgk
Veglegir styrkir til loftslagsverkefna OR
Koltvísýringur bundinn í stein. Ljósm. Orkuveita Reykjavíkur.
Fjölbrautaskólinn á Akranesi, síðar
Fjölbrautaskóli Vesturlands (FVA),
fagnar 40 ára starfsafmæli í ár. FVA
var stofnaður formlega árið 1987
með undirritun samnings milli
32 sveitarfélaga á Vesturlandi og
menntamálaráðuneytis um rekst-
ur sameiginlegs framhaldsskóla.
Byggt var á grunni Fjölbrautaskól-
ans á Akranesi sem tók til starfa 12.
september 1977 þegar Gagnfræða-
skólinn á Akranesi og Iðnskólinn á
Akranesi sameinuðust. Samningur-
inn frá 1987 hefur tekið nokkrum
breytingum í gegnum tíðina, með-
al annars vegna breytinga á lögum
um framhaldsskóla. Nú standa sex
sveitarfélög að skólanum; Akranes,
Borgarbyggð, Dalabyggð, Eyja- og
Miklaholtshreppur og Hvalfjarðar-
sveit.
Opið hús á
laugardaginn
Í tilefni tímamótanna er boðið til af-
mælisveislu með opnu húsi og hátíð-
ardagskrá í húsakynnum FVA næst-
komandi laugardag, 16. september,
frá kl. 14 til 19. Dagskráin hefst á
stuttum hátíðarræðum á sal skólans.
Þar munu flytja ávarp Ágústa Elín
Ingþórsdóttir, skólameistari, Þórdís
Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráð-
herra ferðamála, iðnaðar og nýsköp-
unar og Sævar Freyr Þráinsson, bæj-
arstjóri á Akranesi. Auk þess munu
tveir fyrrum nemendur skólans
flytja ávarp, annar nýlega útskrifað-
ur en hinn úr fyrsta stúdentsárgangi
skólans. „Við ætlum að hafa dag-
skrána í léttum dúr og halda ræðu-
höldum í lágmarki,“ segir Ágústa
Elín Ingþórsdóttir skólameistari
í samtali við Skessuhorn. „Meiri
áhersla verður lögð á myndasýn-
ingar og myndbandasýningar sem
munu rúlla á nokkrum skjám í skól-
anum. Þar verður að sjá ýmislegt
skemmtilegt frá starfi skólans und-
anfarin 40 ár,“ bætir hún við. „Við
ákváðum að skipta sýningunum upp
eftir árum, þannig að á einum stað
verður sýnt frá fyrstu tíu árunum, á
þeim næsta frá ellefta til tuttugasta
starfsársins og svo framvegins. Ég
og fleiri erum búin að liggja yfir ljós-
myndum skólans, myndböndum frá
gömlum tónlistarkeppnum, leikrit-
um og fleiru. Þar er af ýmsu að taka
og margt mjög skemmtilegt að finna
sem verður til sýningar á laugardag-
inn,“ segir Birna Björk Sigurgeirs-
dóttir, verkefnisstjóri afmælishátíð-
arinnar. „Það er búið að vera mjög
skemmtilegt að undirbúa afmælið
ásamt góðu fólki og enginn dagur
leiðinlegur ennþá,“ segir hún.
Afmælisrit FVA
Í tilefni afmælisins verður gef-
ið út sérstakt afmælisrit FVA. „Sú
hugmynd kom upp að blaðið yrði
unnið í sérstökum fjölmiðlaáfanga
sem komið var á fót. Kristbjörn
Helgi Björnsson sögukennari og
Leó Jóhannesson íslenskukenn-
ari tóku að sér umsjón með áfang-
anum. Í hann skráðu sig 15 nem-
endur og viðtöl sem þau hafa tek-
ið mynda uppistöðuefni blaðsins,“
segir Ágústa. „Þetta er 60 síðna
rit, fullt af efni, gömlum mynd-
um og fleiru skemmtilegu úr starfi
skólans í gegnum tíðina. Verið er
að leggja lokahönd á blaðið þessa
dagana og það verður gefið út á af-
mælisdaginn, mun koma ferskt úr
prentvélunum á laugardagsmorg-
un,“ segir Birna. „Blaðið verður
sent út eftir helgi en mun að sjálf-
sögðu liggja frammi hér í skól-
anum á afmælishátíðinni. Þetta
er mjög skemmtilegt verkefni og
mikill spenningur fyrir útgáfu rits-
ins. Birna á heiður skilinn fyrir að
hafa haldið utan um útgáfuna, seg-
ir Ágústa.
Fjölbreytt og
skemmtileg dagskrá
Tónlist verður áberandi á afmæl-
ishátíðinni og mun fjöldi tónlist-
armanna á öllum aldri koma fram.
„Flestir þeirra, ef ekki allir, hafa
verið nemendur við skólann. Við
verðum með myndarlegt húsband
skipað kennurum og fyrrum nem-
endum,“ segir Ágústa. „Síðan mun
hljómsveitin Tíbrá koma fram og
e.t.v. fleiri hljómsveitir, Heiðmar
Eyjólfsson, Hrund Snorradóttir,
Orri Sveinn Jónsson og
Helga Ingibjörg Guð-
jónsdóttir, auk fleiri
söngvara. „Hallgrímur
Ólafsson, Halli melló,
verður veislustjóri og
ætlar að taka lagið,“
segir Birna „og þar
sem hátíðarhöldin fara
fram um allt hús verða
órafmagnaðir tón-
leikar í gamla sal skólans. Við ætl-
um að reyna að skapa létta stemn-
ingu þar, að formlegri dagskrá lok-
inni,“ bætir hún við. „Þetta verður
mjög skemmtilegur dagur og það
ríkir mikil eftirvænting meðal okk-
ar hér í skólanum. Dagskráin er
fjölbreytt og skemmtileg og boð-
ið verður upp á kaffiveitingar. All-
ir eru velkomnir og við vonumst
auðvitað til að sjá sem allra flesta
á laugardaginn,“ segja Ágústa og
Birna að endingu.
kgk
Fjölbrautaskóli Vesturlands er fertugur
Ágústa Elín Ingþórsdóttir,
skólameistari Fjölbrautaskóla
Vesturlands.
Birna Björk Sigurgeirs-
dóttir er verkefnisstjóri
afmælishátíðarinnar.
Forsíða afmælis-
blaðsins. „Þetta er 60
síðna rit, fullt af efni,
gömlum myndum og
fleiru skemmtilegu úr
starfi skólans í geg-
num tíðina. Verið er
að leggja lokahönd á
blaðið þessa dagana
og það verður gefið
út á afmælisdaginn,
mun koma ferskt
úr prentvélunum á
laugardagsmorgun.“