Skessuhorn


Skessuhorn - 13.09.2017, Page 17

Skessuhorn - 13.09.2017, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2017 17 Anna Rún Kristbjörnsdóttir er ungur hönnuður frá Bóndhól í Borgarfirði. Hún hefur tekið upp listamannanafnið BláRún og býr nú til skartgripi úr bláskel. „Ég er búin að vera að þróa þetta í nokkur ár en fór ekki af stað af neinni al- vöru fyrr en í fyrrahaust, þegar ég ákvað að setja þetta í framleiðslu,“ segir Anna Rún í samtali við blaða- mann Skessuhorns. „Þetta er mik- il þolinmæðisvinna og langt ferli fyrir hverja skel. Ég pússa þær í þremur verkferlum, með mismun- andi grófleika. Svo þarf að bora gat fyrir festuna og pússa sjálfa festuna í rétta stærð fyrir hverja skel, því skeljarnar eru mismunandi þykkar. Allt tekur þetta töluverðan tíma. Ég er ekki viss um að ég hefði lagt í þetta ef ég hefði gert mér grein fyrir hversu mikil vinna þetta væri,“ segir Anna Rún og hlær. Í fyrrahaust fékk Anna Rún at- vinnu- og nýsköpunarstyrk úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands og þá fór boltinn að rúlla. „Það var þvílík viðurkenning fyrir mig að fá þennan styrk og það veitti mér meiri trú á verkefnið. Skartgripa- línan heitir Blue shell of Iceland og fyrst á markað eru hálsmen- in Ocean, Wave, Tide og Beach. Þó allar flokkist undir þessi heiti er enginn þeirra eins, hver og ein hefur sitt sérkenni og sína náttúru- legu litafegurð,“ segri Anna Rún. Aðspurð hvenær vörurnar komi á markað segir Anna Rún að það verði vonandi fljótlega. „Það stendur yfir söfnun til 4. októ- ber inni á Karolina fund til þess að klára lokaskrefið áður en varan kemst á markað. Karolina fund er íslensk söfnunarsíða þar sem fólk getur sett inn verkefnin sín og beðið um ákveðna upphæð innan ákveðins tímaramma. Ef upphæð- in næst gekk söfnunin upp en ef ekki fær umsækjandi ekki neitt af því sem safnaðist, og styrktaraðilar borga heldur ekkert.“ Anna Rún kveðst hafa fengið ótrúlega góðar viðtökur frá fólki. „Það er bara spennandi að sjá hver framtíð Blue shell mun verða. Eftir að söfnuninni á Karolina fund lýk- ur, hvort sem hún næst eða ekki, stefni ég á að koma vörunni minni inn í fallegar verslanir með hönn- unarvörur,“ segir Anna Rún og bætir því við að hægt sé að fylgjast með gangi mála á Facebook undir nafninu BlaRun.artist og á Karol- ina fund söfnunarsíðunni, https:// www.karolinafund.com/project/ view/1784 arg/ Ljósm. Anna Rún Kristbjörnsdóttir Vinnur skartgripi úr bláskel Anna Rún Kristbjörnsdóttir hönnuður er frá Bóndhól í Borgarhreppi. Hálsmen sem Anna Rún Kristbjörnsdóttir býr til úr bláskel. Ocean sem er fest í sitthvorn endann er lárétt, oftast langt og mjótt form. “Fyrir mér er formið og litirnir í Ocean eins og að horfa yfir hafið og sjá sjóndeildar- hringinn.” Stjórn Uppbyggingarsjóðs Vesturlands hefur ákveðið að veita afar áhugaverðu verkefni/verkefnum allt að 14 m.kr. styrk. Verkefnið þarf að grundvallast á vel unninni viðskiptaáætlun, sem hefur skírskotun til svæðisins og nýsköpunar í atvinnulífi eða menningu þess, ásamt því að skapa störf og verðmæti. Ferli umsóknar verður með þeim hætti að skila þarf inn hugmyndalýsingu til stjórnar Uppbyggingarsjóðs Vesturlands fyrir 10. október n.k. Þar þarf að koma fram á 2-3 blaðsíðum lýsing á hugmyndinni, gróf áætlun um hversu mörg störf verkefnið geti skapað, hversu mikla fjárfestingu sé um að ræða og áætlaða tímasetningu framkvæmda. Stjórn Uppbyggingarsjóðs Vesturlands mun velja úr allt að fjórar umsóknir og veita þeim styrk að upphæð 500 þús. kr. til að ljúka við gerð viðskiptaáætlunar. Skilafrestur endanlegrar viðskiptaáætlunar verður síðan 15. nóvember nk. og niðurstöður um styrkveitingar kynntar í desember 2017. Nánari upplýsingar veitir Ólöf Guðmundsdóttir atvinnuráðgjafi, netfang olof@ssv.is eða í síma 433-2310/898-0247. UPPBYGGINGARSJÓÐUR VESTURLANDS AUGLÝSIR EFTIR GÓÐUM VIÐSKIPTAHUGMYNDUM SK ES SU H O R N 2 01 7 Umsóknir í Uppbyggingarsjóð Vesturlands Veittir verða styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar Á heimasíðu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, www.ssv.is/uppbyggingarsjodur-vesturlands, er að finna upplýsingar um umsóknarferli, reglur og viðmið varðandi styrkveitingar. Nánari upplýsingar veitir Ólöf í síma 898-0247/433-2319 Netfang: olof@ssv.is Frestur til að skila umsóknum er til 2. október 2017. AUGLÝST EFTIR UMSÓKUM Í UPPBYGGINGARSJÓÐ VESTURLANDS SK ES SU H O R N 2 01 7 Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.