Skessuhorn - 01.11.2017, Page 4
MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 20174
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.835 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.457. Rafræn áskrift kostar 2.226 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.058 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Emilía Ottesen emilia@skessuhorn.is
Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Allflestir sigurvegarar
Til hamingju Íslendingar með kosningarnar á laugardaginn. Sjaldan á að
vera bjartara yfir lýðræðisríkinu en einmitt þegar þjóðin hefur tjáð hug
sinn í kosningum. Allir eiga að sætta sig við niðurstöðuna, enda er hún eins
nálægt því að endurspegla hug landsmanna og hugsast getur. Auðvitað er
hægt að andskotans yfir því að niðurstaðan sé verri en einhverjir hefðu ósk-
að sér, en það breytir ekki því að þetta er akkúrat það sem við eigum skilið.
Ekkert minna og ekkert meira. Því eigum við að vera glöð og sætta okkur
við niðurstöðuna.
Fyrir okkur íbúa í þessu fámenna kjördæmi er fróðlegt að velta úrslit-
unum fyrir sér. Mörgum finnst til dæmis skipta máli að fulltrúar þeirra
byggðarlaga taki sæti á þingi, allir eigi sína rödd, hvaða flokki sem þeir til-
heyra. Þannig trúi ég að íbúar í gamla Norðurlandskjördæmi vestra séu allt
annað en sáttir með sinn hlut. Fá nákvæmlega engan þingmann ef horft er
út frá búsetu. Páll á Höllustöðum er vafalítið óhress með þetta og það væri
einnig Pálmi heitinn á Akri ef hans nyti við. Þessir gömlu orginalar sem ólu
önn fyrir heimabyggð.
Það eru hins vegar Borgnesingar sem eru sigurvegarar þessara kosninga,
ásamt náttúrlega Útvarpi Sögu, sem vann fullnaðarsigur. Með góðri sam-
visku er hægt að segja að Borgnesingar eigi nú að minnsta kosti fjóra full-
trúa á hinu háa Alþingi, jafnvel fimm. Vonarstjarna margra sem arftaki
formanns Sjálfstæðisflokksins er einmitt Borgnesingur, þótt búsettur sé í
Reykjavík þar sem hann býður fram krafta sína. Oddviti Framsóknar er nú
búsettur í Borgarnesi, Dalamaður með allmiklar tengingar á Mýrarnar. Þá
eru hvorki fleiri né færri en báðir nýju Miðflokksmennirnir; Bergþór og
Sigurður Páll Borgnesingar, þótt annar sé nú búsettur á Akranesi og hinn
í Stykkishólmi. Góður maður lét þess getið eftir helgina að nú loksins væri
búið að jafna vægi Borgnesinga á þingi og minntist þeirra tíma þegar Hall-
dór E Sigurðsson var þingmaður þeirra. Það þyrfti jú fjóra til að vega karl-
inn upp, svo hlýtt minnast þeir Dóra og afreka hans. Annar bætti um betur
og sagði að miðað við óleyst verkefni í samgöngumálum nú veitti ekkert af
fjórum burðarstoðum í komandi verkefni, jafnvel enn stærri verkefni en ein
Borgarfjarðarbrú. Það lægi jú fyrir að tvöfalda þurfi Vesturlandsveg uppfyr-
ir Borgarnes, brúa haftið fremst í Grunnafirði, leggja nýja Sundabraut og
tvöfalda Hvalfjarðargöngin. Þessir fjórir þingmenn af slóðum Egils Skalla-
grímssonar gætu mögulega náð þessu í gegn á svosem eins og einu kjör-
tímabili ef þeir sýndu sama vilja til verka og Halldór E gerði á sínum tíma.
Vissulega er þetta áskorun, en henni er allavega hér með komið á fram-
færi.
En grínlaust þá skiptir það máli hvar menn eiga sínar rætur. Vestlend-
ingar eiga því að vera þakklátir þessari niðurstöðu um hverjir verða þing-
menn okkar. Þannig eigum við að sýna auðmýkt og vera sérlega góðir við
hina munaðarlausu Skagfirðinga hvar sem við hittum þá. Verðum að sýna
þeim alla þá alúð og elsku sem þeir eiga skilda. Ekki síður Húnvetningum
sem eru að verða fáskiptur minnihlutahópur án þess að hafa nokkuð gert af
sér, nema ef vera kynni að neyða okkur alltaf til að taka krók á ferð okkar
norður í land og þurfa að aka í gegnum Blönduós. Vestfirðingum hins vegar
þarf alls ekkert að vorkenna. Þeir geta glaðst yfir að hafa fengið tvær öfl-
ugar konur úr sinni sveit á þing, hundrað prósent kynjahlutfall þaðan, eins
og einhver sagði. Sömuleiðis ætti sveitafólk að getað andað léttar því býsna
mikið landsbyggðarhjarta slær í þeim þingmönnum sem við höfum valið
til forystu næstu fjögur árin, vonandi. Ég er allavega sáttur við allt, nema
eitt! Mér finnst dapurlegt að konur skuli ekki eiga fulltrúa á þingi í réttu
hlutfalli við fjölda þeirra. Þær eiga að vera brjálaðar yfir þessari snautlegu
niðurstöðu, rétt eins og ég reikna með að Húnvetningar og Skagfirðingar
séu með sinn hlut.
Magnús Magnússon
Leiðari
Ásmundur Einar Daðason, oddviti
Framsóknarflokksins í Norðvest-
urkjördæmi, fékk oftast að kenna á
blýantsstrikum kjósenda kjördæm-
isins í alþingiskosningunum síðast-
liðinn laugardag, miðað við þrjá
efstu frambjóðendur hvers lista.
Samtals var strikað 105 sinnum
yfir nafn Ásmundar Einars. Mbl.is
greindi frá. Næstoftast á eftir Ás-
mundi var strikað yfir nafn Guð-
jóns Brjánssonar, oddvita Samfylk-
ingarinnar, eða 48 sinnum. Bjarni
Jónsson, sem skipaði annað sæti á
lista Vinstri grænna, var með 40 út-
strikanir og Lilja Rafney Magnús-
dóttir, oddviti VG, með 39. Har-
aldur Benediktsson, oddviti Sjálf-
stæðisflokksins, kom næstur á eft-
ir þeim með 35 útstrikanir. Stef-
án Vagn Stefánsson, þriðji mað-
ur á lista Framsóknarflokksins var
strikaður 19 sinnum út, Rúnar
Gísla son, þriðji maður á lista VG,
17 sinnum og sömuleiðis Teitur
Björn Einarsson, þriðji maður á
lista Sjálfstæðisflokksins.
Halla Signý Kristjánsdóttir, sem
skipaði annað sæti á lista Fram-
sóknarflokksins, var fimmtán sinn-
um strikuð út, rétt eins og Bergþór
Ólason, oddviti Miðflokksins. Þór-
dís Kolbrún Reykfjörð Gylfadótt-
ir, sem var önnur á lista Sjálfstæð-
isflokksins, var strikuð 14 sinnum
út.
Fjórir strikuðu yfir Sigurð Pál
Jónsson, annan mann á lista Mið-
flokksins, og jafn margir strikuðu
yfir nafn Örnu Láru Jónsdóttur,
sem var önnur á lista Samfylking-
arinnar. Að lokum strikuðu þrír
yfir nafn Jónínu Bjargar Magn-
úsdóttur sem skipaði þriðja sæti á
sama lista.
Ekki voru teknar saman útstrik-
anir á listum þeirra flokka sem ekki
fengu þingmann kjörinn í kjör-
dæminu.
kgk
Oftast strikað yfir Ásmund
Við setningu menningarhátíðarinn-
ar Vökudaga á Akranesi, sem fram
fór síðastliðinn fimmtudag, er hefð
fyrir því að afhenda menningarverð-
laun Akraneskaupstaðar. Að þessu
sinni hlýtur þau Guðbjörg Árna-
dóttir; „fyrir framúrskarandi fram-
lag til menningarmála á Akranesi,“
eins og segir í umsögn menning-
ar- og safnanefndar. Það var Ing-
þór Bergmann Þórhallsson formað-
ur nefndarinnar sem afhenti Guð-
björgu verðlaunin.
„Guðbjörg Árnadóttir hefur um
áratuga skeið unnið ötullt og óeigin-
gjarnt starf fyrir Skagaleikflokkinn,
nú Leikfélagið Skagaleikflokkinn,
og komið að fjölmörgum leiklist-
artengdum viðburðum á Akranesi.
Guðbjörg varð formaður Skagaleik-
flokksins árið 1981 og gegndi því
embætti til ársins 1984. Hún var aft-
ur formaður frá árinu 1995 til árs-
ins 2001. Frá þeim tíma hefur hún
verið, að öðrum ólöstuðum, sá aðili
sem hefur haldið starfi leikflokksins
gangandi. Guðbjörg var formaður
stjórnar Bandalags íslenskra leik-
félaga árin 1987-1993.
Guðbjörg hefur tekið þátt í fjöl-
mörgum leiksýningum Skagaleik-
flokksins, ýmist sem leikari, leik-
stjóri, framkvæmdastjóri, hvíslari,
miðasöludama, kaffikerling og svo
mætti lengi áfram telja. Hún hef-
ur einnig kennt leiklist til fjölda ára
við Brekkubæjarskóla og staðið fyr-
ir leiklistarnámskeiðum á Akranesi.
Þá hefur hún á undanförnum árum
verið forsprakki í sögugöngum sem
hafa verið framkvæmdar með mis-
munandi áherslum frá ári til árs í
samstarfi við Bókasafnið á Akranesi.
Guðbjörg hefur jafnframt verið
ötul í starfi blakfélagsins Bresa og
iðkar blakíþróttina enn þann dag
í dag. Árlega er haldið svo kallað
Boggu-Bresa mót henni til heið-
urs. Guðbjörg er vel að Menning-
arverðlaununum komin og von-
andi eiga Skagamenn eftir að fá að
njóta óþrjótandi krafta hennar, hug-
myndaauðgi og elju um ókomna
framtíð,“ segir í umsögn menning-
ar- og safnanefndar. mm
Guðbjörg Árnadóttir hlýtur
menningarverðlaun Akraness
Guðbjörg Árnadóttir ásamt Ingþóri Bergmann Þórhallssyni formanni menningar-
og safnanefndar. Ljósm. ki.
Tröppustígurinn upp á Saxhól í Þjóð-
garðinum Snæfellsjökli hefur ver-
ið tilnefndur til norrænna verðlauna
í arkitektúr. Verðlaunin verða veitt
í tengslum við ráðstefnuna Nordic
Architecture Fair 2017, sem hald-
in verður í Gautaborg í Svíþjóð dag-
ana 7. og 8. nóvember næstkomandi.
Alls voru 134 verk send í keppnina
en aðeins átta tilnefnd til verðlauna.
Er stígurinn eina verk landslagsarki-
tekta sem tilnefnt er til verðlauna og
jafnframt eina íslenska verkið sem
komst í úrslit keppninnar.
Það var Landslag teiknistofa sem
hannaði stíginn fyrir Umhverfis-
stofnun. „Himnastiginn eins og
hann er stundum kallaður kom okk-
ur svo sannarlega upp í skýin með
þessari viðurkenningu, enda verk
keppinautanna hvert öðru glæsi-
legra,“ segir í tilkynningu frá Lands-
lagi teiknistofu. „Erum við í félags-
skap með mörgum af þekktustu arki-
tektastofum Norðurlanda.“
Saxhóll er 45 metra hár, keilulaga
gígur vestast á Snæfellsnesi, um níu
kílómetra sunnan Hellissands. Ofan
af honum er útsýni gott og er hann
því vinsæll viðkomustaður ferða-
manna. Hlíðar Saxhóls eru með lausu
og lítið grónu gjalli. Vaxandi umferð
ferðamanna á Saxhól hafði gert það
að verkum að sár hafði myndast í
hólinn. Ákvað Umhverfisstofnun því
að láta leggja áðurnefndan tröppu-
stíg upp á Saxhól og var hann lagður
eftir sárinu.
kgk/ Ljósm. Landslag teiknistofa.
Stígurinn upp á Saxhól tilnefndur til verðlauna
Svart stál sem ryðgaði fljótt var notað í tröppustíginn upp á
Saxhól svo stígurinn myndi samlagast litbrigðum hólsins.
Stígurinn fellur afar vel að umhverfinu.