Skessuhorn


Skessuhorn - 01.11.2017, Blaðsíða 25

Skessuhorn - 01.11.2017, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2017 25 Hrekkjavaka hefur verið að ryðja sér til rúms á Íslandi undanfarin ár en margir þekkja hátíðina úr amerískum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Í Borgarnesi er hrekkjavaka komin til að vera en undanfarin ár hafa fyr- irtæki og grunnskólar í Borgarbyggð tekið þátt í hátíðinni en að þessu sinni á að virkja íbúa. Allir eru hvattir til að skreyta og vera tilbúnir með nammi því börnin ætla að taka svokallaða „grikk eða gott“ göngu í heimahús þriðjudaginn 31. október, á milli klukkan 18 og 20 og biðja um sæl- gæti. Íbúar sem vilja vera með og taka á móti börnunum eru hvattir til að setja skraut eða miða á hurðina sína og vera tilbúnir með góðgæti fyrir börnin þegar bankað verður uppá. Í Grundarfirði á einnig að halda hrekkjavöku hátíðlega en þar sem rigningu er spáð á sjálfan hrekkja- vökudaginn, 31. október, var ákveðið að „grikk eða gott“ ganga barnanna yrði farin á miðvikudeginum, 1. nóvember, á milli klukkan 18 og 20. Þar eru íbúar hvattir til að setja kerti út og hengja blöðru eða poka á úti- dyrnar ef þeir vilja taka á móti börn- unum. „Hrekkjavaka er fyrir alla, óháð aldri, eina skilyrðið er að vera í búningi og hafa poka undir góðgæt- ið,“ segir í tilkynningu um hátíðina. Á Akranesi var hrekkjavaka haldin í Skógarhverfinu á Akranesi síðast- liðinn föstudag. Biðlað var til þeirra sem vildu fá börn í heimsókn til að merkja útidyrahurðir með tilheyr- andi skrauti. Meðfylgjandi myndir voru teknar á Akranesi síðastliðinn föstudag. arg/ Ljósm. ki. LEKTOR Í BÚVÍSINDUM TVÆR STÖÐUR STARF LEKTORS Í BÚVÍSINDUM I Laust er til umsóknar 100% starf lektors í búvísindum - skyldur sem lúta að rannsóknum, kennslu og stjórnun MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR: Samstarfshæfni og lipurð í samskiptum er algjört skilyrði og ætlast er til að umsækjandi sýni fram á þessa færni í umsóknarferlinu. Doktorspróf í búvísindum, dýralækningum eða skyldum greinum. Góð grunnþekking og reynsla af rannsóknum á líffræði eða ræktun búfjár. Þekking á landbúnaði á norðlægum slóðum er æskileg. Reynsla af rannsóknum á sviði kynbótafræði eða atferlis og aðbúnaðar búfjár er kostur. Reynsla og þekking á virðisaukningu landbúnaðarafurða í gegnum nýsköpun er kostur. Reynsla af kennslu og geta og vilji til þess að þróa nýjar aðferðir til þekkingarmiðlunar á fræðasviðinu. Stjórnunarreynsla og íslenskukunnátta er æskileg. STARF LEKTORS Í BÚVÍSINDUM II Laust er til umsóknar 100% starf lektors í búvísindum sóknum og kennslu með áherslu á sjálfbærni í land- búnaði en einnig að stjórnun. Fræðasvið sem til greina koma eru t.d. líffræði eða lífeðlisfræði plantna og dýra, búvísindi (búfjárrækt/jarðrækt), landbúnaðarvistfræði, landbúnaðarhagfræði og landbúnaðarverkfræði. Fleiri fræðasvið koma þó til greina. MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR: Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum er algjört skilyrði og ætlast er til að umsækjandi sýni fram á þessa færni í umsóknarferlinu. Doktorspróf í búvísindum eða skyldum greinum. Góð grunnþekking og reynsla af rannsóknum á sjálfbærum landbúnaði. Þekking á landbúnaði á norðlægum slóðum er æskileg. Reynsla af nýsköpun í landbúnaði er kostur. Reynsla af kennslu og geta og vilji til þess að þróa nýjar aðferðir til þekkingarmiðlunar á fræðasviðinu. Stjórnunarreynsla og íslenskukunnátta er æskileg. FREKARI UPPLÝSINGAR UM BÁÐAR STÖÐUR ER AÐ FINNA Á LBHI.IS Umsóknarfrestur er til 27. nóvember 2017. Umsóknir sendist til Landbúnaðarháskóla Íslands b/t Arna Garðarsdóttir Ásgarði – 311 Hvanneyri eða í tölvupósti arnag@lbhi.is. gróska, virðing, viska. Hrekkjavakan hefur verið hald- in hátíðleg í Ameríku um áratuga- skeið og er þessi siður alltaf að fær- ast í aukana hérna á Íslandi. Víða má skjá útskorin grasker við úti- dyr og hryllilega skreytt hús enda felst hrekkjavakan í því að hræða og vekja óhug. Það vakti athygli frétta- ritara er hann sá fólksbíl á hliðinni í einni innkeyrslunni í Grundarfirði á laugardaginn. Þegar betur var að gáð var þarna á ferðinni hrekk- javökuskreyting, eða gjörningur. Þá hafði bílhræi verið komið fyrir og brúðu undir eins og sjá má á mynd- inni. tfk Hrekkjavökugjörningur vakti athygli Hrekkjavaka að ryðja sér til rúms

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.