Skessuhorn


Skessuhorn - 01.11.2017, Blaðsíða 23

Skessuhorn - 01.11.2017, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2017 23 Viðhorf almennings til lífrænna matvæla eru æði misjöfn og oft byggð á misskilningi. Marg- ir halda að hinn lífræni lífsstíll gangi út á það að borða baunir og grænmeti, aðrir halda að líf- rænt sé sykurlaust og enn aðr- ir standa í þeirri meiningu að líf- rænt sé nýleg tískubylgja sem erfitt sé að tileinka sér. En út á hvað gengur þá lifrænn lífsstíll ef það eru ekki þessir þættir? Upphafið af lífrænum lífsstíl má rekja til aldamótanna 1900 sem andsvar við þeim breytingum sem urðu á landbúnaði í kjölfar fyrstu iðnbyltingarinnar. Strax í upphafi hennar sáu nokkrir hug- sjónamenn fyrir hvert stefndi og í framhaldi var búin til umgjörð um gömlu gildin sem í dag kall- ast lífræn ræktun. Með seinni iðn- byltingunni í kringum 1960 verð- ur lífræn ræktun enn fastmótaðra hugtak því á þeim tímapunkti þurftu margir ræktendur og framleiðendur að velja hvaða leið þeir vildu fara þ.e. magnfram- leiðsla með sínum vanköntum eða gamla hefðbunda aðferðin að viðbættum tækninýjungum. Flestir völdu magn framleiðsluna því hún var talin gefa meira af sér fjárhagslega. Í framhaldinu hefur sú aðferð orðið „hefðbundin aðferð“ í huga fólks. Lífræn ræktun er því engin ný- lunda heldur eru þetta aldagamlar aðferðir sem hafa fengið nýtt nafn til að geta aðgreint sig frá þeim breyt- ingum sem hafa átt sér stað síðast- liðin 60-70 ár. En hvaða breytingar eru þetta? Jú, helstu breytingar má rekja til eit- urefna- og áburðarnotkunar. Svo ber að nefna GMO eða erfabreytt matvæli. Eiturefnanotkun í nútíma ræktun felst í notkun á skordýra-, illgresis- og sveppaeitri en þessi efni m.a. safnast upp í matvælum og berast í okkur þegar við neyt- um þeirra. Rannsóknir Dana á þvagi barna og fullorna hafa sýnt fram á leifar af þessum efnum séu til stað- ar þegar neytt er ólífrænna mat- væla. Eitur er engum gott að inn- byrða sama hversu skammtarnir eru litlir. En eitrið stoppar ekki hjá okkur því þvagið fer svo í sjóinn þar sem uppsöfnun eiturefna heldur áfram og því er spurningin hversu lengi hafið geti tekið við. Varðandi erfða- breytt matvæl þá er verið að blanda saman ólíkum þáttum. Sem dæmi má nefna er eiturefnið Round-up innræktað í maís sem veldur því að maísplantan þolir eitrið á með- an aðrar plöntur drepast. Round-up er talið skemma miðtaugakerfi ein- staklinga í uppvexti og hafa sum- ar þjóðir bannað þetta eitur, m.a. Danir. Annað dæmi um erfðabreyt- ingu er tómatplanta sem hefur ver- ið erfðabreytt með fiskipróteini sem gefur henni þann eiginleika að þola kulda betur. Reglur um innihalds- lýsingu ná ekki yfir erfðabreytt mat- væli og fólk hefur því í raun og veru ekki hugmynd um hvað matvar- an inniheldur. Út frá þessum staðreyndum er það nokkuð ljóst að lífrænn lífs- stíll felst m.a. í því að lifa í sátt og samlyndi við náttúruna, nýta ekki landið meira en það þolir, stunda sjálfbæra ræktun/skiptirækt- un og passa upp á að auðlindir okkar spillist ekki af skammtíma gróðahugsjónum. Ef þetta er tekið saman þá fel- ur lífræn ræktun m.a. í sér: Ræktun án eiturefna eins • og skordýra-, illgresis- og sveppaeiturs Ræktun án tilbúins áburðar• Ræktun án erfabreytinga • GMO Matvæli framleidd án ónátt-• úrulegra aukaefna Dýravelferð, m.a. náttúru-• legt fóður og án hormóna og sýklalyfja Hérlendis byggist lífræn rækt- un upp með frumkvöðlinum Sesselju Hreindísi Sigmunds- dóttur sem stofnaði Sólheima í Grímsnesi. Hún kynntist kenn- ingum hugsjónamannsins Ru- dolfs Steiner á námsárum sín- um úti í Þýskalandi í kringum 1930. Hennar framlag til lífrænn- ar ræktunar á Íslandi verður seint metið til fjár, en Sólheimar hafa frá upphafi verið leiðandi í rækt- un og framleiðslu á lífrænum matvælum á Íslandi. Veljum lífrænt umhverfinu okkar til heilla. Kveðja, Kaja Frumkvöðladagur SSV verður haldinn í Hriflu í Háskólanum á Bifröst miðvikudaginn 8. nóvember nk. Dagskrá hefst kl.14.00. Dagskrá Ávarp Vilhjálms Egilssonar, rektors Háskólans á Bifröst Úthlutað verður styrkjum til nýsköpunar og atvinnuþró- unar úr Uppbyggingarsjóði SSV Viðar Reynisson hjá Náttskugga (Ljótu kartöflurnar) ásamt frumkvöðlum af Vesturlandi verða með erindi um starfsemi frumkvöðla Afhending frumkvöðlaverðlauna SSV 2017 Að lokinni dagskrá verður boðið upp á veitingar á Hótel Bifröst. Allir velkomnir. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi. SK ES SU H O R N 2 01 7 Frumkvöðladagur SSV 2017 Hunda- og kattaeigendur athugið SK ES SU H O R N 2 01 7 Laugardaginn 4. nóvember næstkomandi verður seinni hunda- og kattahreinsun í þjónustumiðstöð Akraness að Laugarbraut 6 (gamla slökkvistöðin). Samkvæmt 15. kafla reglugerðar um hollustuhætti nr. 941/2002 er hunda- og kattaeigendum skylt að láta ormahreinsa dýr sín árlega og er það innifalið í leyfisgjaldi. Gunnar Gauti Gunnarsson dýralæknir annast hreinsunina. Hundahreinsun verður frá kl. 9:00-12:00 og kattahreinsun verður frá kl. 13:00-15:30. Dýralæknir býður einnig upp á bólusetningar (ath. að greiða þarf með peningum): Bólusetningu við Smáveirusótt (Parvo), lifrarbólgu, hótelhósta og • hundafári, verð kr. 3.000. Örmerkingu hunda og katta, verð kr. 4.500.• Perlutex ófrjósemistöflur fyrir hunda og ketti, verð kr. 1.500.• Bólusetningu gegn kattafári, verð kr. 3.000.• Óskráðir hundar og kettir eru velkomnir og geta eigendur þeirra nálgast skráningargögn á staðnum. Dýraeigendur hunda og katta eru hvattir til að kynna sér samþykktir um hunda- og kattahald á Akranesi á vef Akraneskaupstaðar. Nánari upplýsingar veitir dýraeftirlitsmaður í síma 898-9478 eða dýralæknir í síma 892-3230. Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is Að afloknum alþingiskosning- um vil ég nota tækifærið og þakka öllum þeim sem veittu mér stuðning með atkvæði sínu á laugardag. Í aðdraganda kosninganna ræddi ég á ferðum mínum við fjölmargt fólk, rifjaði upp gömul kynni og hitti aðra sem ég hef ekki áður rætt við. Allt var þetta mjög gefandi og gagnlegt í þeim verkefnum sem okkur hefur verið trúað fyrir. Þá vil ég ekki síður þakka öllum þeim sem lögðu hönd á plóg með mikilli vinnu og skipulagningu, bæði fyrir kosningar og á kjördag. Framundan eru krefjandi verkefni á þingi og spennandi upp- byggingarstarf okkar félaga um allt kjördæmið. Til þess að vel takist til, þá þarf að rækta gott samband við kjörna fulltrúa á Alþingi. Ég beini því til íbúa kjördæmisins að hika ekki við að hafa samband, annað hvort símleiðis eða með skeyti. Með kveðju og bestu framtíðaróskum, Guðjón S. Brjánsson 6. þingmaður NV-kjördæmis Sími: 8974661 Netfang: gudjonb@althingi.is SK ES SU H O R N 2 01 7 Takk fyrir stuðninginn! Við nýkjörnir þingmenn Miðflokksins þökkum fyrir þann mikla stuðning sem kjósendur veittu okkur á laugardaginn. Við ætlum að standa okkur - fyrir kjördæmið - fyrir landið allt - fyrir ykkur! Bergþór Ólason og Sigurður Páll Jónsson Lífrænt vottað hollt eða hollara Heilsuhorn Kaju

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.