Skessuhorn


Skessuhorn - 01.11.2017, Page 8

Skessuhorn - 01.11.2017, Page 8
MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 20178 Fjölmennt útkall á Ströndum LANDSBJÖRG: Rétt fyrir klukkan níu í fyrrakvöld voru björgunarsveitir frá Vestur- landi, Ströndum, Vestfjörðum og sveitir við Húnaflóa, kallað- ar út vegna týndra smala í Sel- árdal á Ströndum. Þeir höfðu ekki skilað sér á réttum tíma til byggða. Fyrstu hópar leit- armanna fóru úr húsi klukkan níu og rétt fyrir hálf tíu voru mennirnir tveir fundnir heilir á húfi. 17 björgunarsveitir voru kallaðar út og voru fleiri hópar á leið á svæðið þegar mennirnir fundust. -mm Fækka gámum í dreifbýli BORGARBYGGÐ: Nú hafa gámar fyrir almennt heimilis- sorp verið fjarlægðir af fleiri gámastöðvum í dreifbýli í Borgarbyggð. Í tilkynningu frá sveitarfélaginu segir: „Öll heimili í dreifbýli hafa tunnur fyrir almennan úrgang og end- urvinnsluúrgang og rekstrar- aðilar bera ábyrgð á að koma sínum úrgangi í réttan farveg, enda greiða þeir ekki sorp- hirðugjöld til sveitarfélags- ins. Gámar fyrir heimilisúr- gang eru því einungis ætlaðir fyrir sumarhúsahverfi og mið- að er við hverfi þar eru sem 20 hús eða fleiri í samræmi við lög og reglugerðir. Umgengni við gámaplön hefur á tíðum ekki verið góð og flokkun ábóta- vant, enda of mikið af úrgangi sem óheimilt er að urða skv. lögum, sem ratar í gámana. Móttaka úrgangs er á ábyrgð sveitarfélagsins en mikilvægt er að sú þjónusta samræmist þeim lögum og reglum sem um meðferð úrgangs gilda.“ -mm Vilja selja elds- neyti í Búðardal DALABYGGÐ: Sveitar- stjórn Dalabyggðar tók á síð- asta fundi sínum fyrir umsókn Skeljungs hf. um lóð við Vest- urbraut í Búðardal til að koma þar upp sjálfsafgreiðslustöð. Lóðin sem Skeljungur sækir um er um 0,1 hektari að stærð, þar sem nú er bílastæði fyr- ir hópferða- og flutningabíla. Í aðalskipulagi er á þeim stað gert ráð fyrir um 1,4 ha lóð fyrir þjónustuhús sem tengist tjaldsvæði og smáhýsasvæði á Fjósatúni. Byggðarráð hafði áður lagst gegn umsókninni þar sem hún samræmdist ekki aðal- skipulagi Dalabyggðar, en vís- að málinu áfram til afgreiðslu sveitarstjórnar. Sveitarstjórn telur staðsetninguna sömuleið- is óheppilega og hafnaði því umsókn Skeljungs en fól um- hverfis- og skipulagsnefnd að kanna aðra möguleika að stað- setningu sjálfsafgreiðslustöðv- ar. Skeljungur er ekki vera eina olíufélagið sem rennir hýru auga til Búðardals með það fyr- ir augum að selja þar eldsneyti. Í desember á síðasta ári sam- þykkti sveitarstjórn, með fyrir- vara, umsókn Olís um að koma upp sjálfsafgreiðslustöð með þremur til fimm dælum á lóð- inni við Vesturbraut 15. Upp- setning þeirra stöðvar hefur ekki komið til framkvæmdar. Í dag er N1 eina olíufélagið sem selur eldsneyti í Búðardal. -kgk Sögufélag Dalamanna bauð síðast- liðinn miðvikudag upp á viðburð í Auðarskóla þar sem Vilborg Dav- íðsdóttir sagði sögu Auðar djúp- úðgu. Vilborg sagði þarna frá land- námskonunni Auði og nýrri bók sinni sem heitir Blóðug jörð. Með útgáfu bókarinnar lýkur Vilborg þríleik um konuna sem á engan sinn líka í landnámssögu Íslands. Fyrri bækurnar tvær, Auður og Ví- groði, hlutu góðar viðtökur lesenda og gagnrýnenda og var sú fyrri til- nefnd til Íslensku bókmenntaverð- launanna. sm Vilborg sagði frá bók sinni um Auði djúpúðgu Úthlutað var í fyrsta sinn úr styrkt- arsjóði Steingríms Arasonar í síð- ustu viku, en markmið sjóðsins er að efla sérfræðiþekkingu í menntun- ar- og kennslufræðum. Athöfnin fór fram við hátíðlega athöfn í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Í fréttatilkynningu um úthlutun úr sjóðnum segir að veittir hafi verið styrkir til sérfræðinga og nemenda í framhaldsnámi, þar sem sérstaklega hafi verið horft til rannsókna sem fela í sér nýsköpun þekkingar og til þróunarverkefna sem efla fræðilegt og faglegt framlag til menntunar- og kennslufræða, samkvæmt stofnun sjóðsins. Heildar styrkfjarhæð var ein milljón króna og voru fimm verkefni styrkt að þessu sinni. Þar af hlutu Bergrós Ólafsdóttir, sérfræðingur á skóla- og frístundasviði Akranes- kaupstaðar, og Bjarney Snorradóttir, sérfræðingur á skrifstofu fræðslu- og frístundasviðs Hafnarfjarðar, styrk til að þróa námskeið og handbók þar sem kynntar verða hagnýtar aðferð- ir við málörvun barna og undirbún- ing lestrarkennslu, þar sem sérstak- lega verður fjallað um börn sem eru í áhættuhópi fyrir lesblindu og þurfa stuðning til að ná tökum á lestri. arg Hlutu styrk úr sjóði Steingríms Arasonar Styrkþegar ásamt forseta Menntavísindasviðs og rektor HÍ. Frá vinstri: Jóhanna Einarsdóttir, forseti Menntavísindasvið og formaður sjóðsins, Eygló Rúnarsdóttir, Ragný Þóra Guðjohnsen, Eva Harðardóttir, Hákon Sæberg, Ásthildur Bjarney Snorradóttir, Bergrós Ólafsdóttir og Jón Atli Benediktsson rektor HÍ. Ljósm. Kristinn Ingvarsson Ljósmyndari rakst á þennan haf- örn nýverið þar sem hann stoppaði undir Ólafsvíkurenni. Örninn átti stutta viðdvöl og hélt eftir stutt fyrirsætustörf á brott. Flaug fugl- inn lágt og hvarf að lokum sjónum handan Ólafsvíkur. Ekki er algengt að sjá haferni svo nálægt byggð. Engu að síður eru helstu heim- kynni arnarins hér á við Breiða- fjörð og því var hann á heimaslóð- um ef svo má segja. þa Haförn heilsar upp á Ólsara Síðastliðinn föstudag var fyrsti leyfilegi rjúpnaveiðidagurinn á þessu hausti. Fjölmargir veiði- menn héldu til fjalla. Flestir skil- uðu sér heim án aðstoðar, en þó ekki allir. Á Suðurlandi var leit- að að tveimur mönnum á Heklu- slóðum. Björgunarsveitarmenn á fjórhjólum fundu mennina og komu þeim blautum og köldum til byggða. Björgunarsveitir á Vest- urlandi voru sama kvöld kallaðar til leitar að rjúpnaskyttu á Holta- vörðuheiði. Fannst maðurinn eftir skamma leit. Slysavarnafélagið Landsbjörg vill árétta nokkur atriði sem rjúpna- skyttur verða að hafa í huga: -Að kynna sér aðstæður og veð- urspá -Vera vel útbúnir -Gera ferðaáætlun og skilja eftir hjá aðstandendum -Vera með nauðsynlegan ör- yggisbúnað eins og GPS tæki eða neyðarsendi -Einnig getur skipt sköpum að hafa auka rafhlöðu fyrir farsíma. mm Leitað að skyttum að kvöldi fyrsta veiðidags Meðfylgjandi mynd sendi Landsbjörg, en hún sýnir þegar björgunarsveitarmenn frá Hellu höfðu fundið mennina við Heklurætur.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.