Skessuhorn


Skessuhorn - 01.11.2017, Side 12

Skessuhorn - 01.11.2017, Side 12
MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 201712 Kosið var til Alþingis Íslendinga síðastliðinn laugardag. Kjörsókn á landsvísu var 81,21%. Úrslit kosn- inganna urðu um margt söguleg. Aldrei áður hafa átta flokkar náð kjöri í þingkosningum hér á landi og óljóst hvernig meirihluti verð- ur myndaður. Engin tveggja flokka meirihlutastjórn er möguleg og að- eins er hægt að mynda þriggja flokka stjórnir ef bæði Sjálfstæðisflokkur- inn og Vinstri græn koma að borð- inu. Meirihlutastjórn þarf að ráða yfir 32 þingmönnum hið minnsta og fræðilega séð eru fleiri tugir mögu- leika í stöðunni; þriggja, fjögurra, fimm eða jafnvel sex flokka stjórnir, en út frá hugmyndafræði og sögu flokkanna á þingi er ljóst að margir þeirra möguleika eru æði langsótt- ir og ekki líklegir til að skapa sátt í fjögur ár. Í annan stað urðu þetta sögulegar kosningar því mikið bak- slag varð í kynjahlutfalli á þingi. Að- eins 24 konur eru í hópi nýkjörinna þingmanna, sex færri en í kosning- unum fyrir ári. Konur verða því 38% þingheims á komandi kjör- tímabili. Tveir nýir flokkar náðu mönn- um á þing. Miðjuflokkurnn fær sjö nýja þingmenn og Flokkur fólksins fjóra. Þá bætti Samfylking verulega við fylgi sitt frá síðustu kosningum, fær nú átta kjörna þingmenn í stað þriggja. Vinstri hreyfingin grænt framboð bætti lítillega við fylgi sitt á landsvísu, einu prósentustigi og fær ellefu þingmenn og er næst- stærsti flokkurinn á þingi. Sjálf- stæðisflokkur tapaði tæpum fjórum prósentustigum frá síðustu kosn- ingum, fær nú sextán þingmenn og tapar fimm. Framsóknarflokkur heldur þingmannafjölda sínum frá síðustu kosningum en tapaði tæp- lega einu prósentustigi í fylgi. Við- reisn tapar töluverðu fylgi eða tæp- um fjórum prósentustigum en held- ur þremur þingmönnum í stað fjög- urra frá síðustu kosningum. Píratar töpuðu rúmlega fimm prósentustig- um milli kosninga, fá nú fjóra þing- menn í stað sex við síðustu kosning- ar. Björt framtíð þurrkaðist nánast út, hlaut rúmlega eitt prósent í fylgi og tapar öllum fjórum þingmönn- um sínum. Aðrir flokkar fengu afar lítið kjörfylgi; Alþýðufylkingin sem bauð fram í fjórum kjördæmum og Dögun sem bauð fram í Suðurkjör- dæmi. Mest kjörsókn í NV Mesta kjörsóknin á landsvísu var í Norðvesturkjördæmi, eða 83,06%. Kosninganóttin var býsna spennandi og margir sem mátuðu sig í þingsæti meðan nóttin leið og úrslitin breytt- ust allt til síðustu stundar; á ellefta tímanum á sunnudagsmorgni. Þeg- ar síðustu atkvæði höfðu verið talin var ljóst að Sigurður Páll Jónsson, 2. maður á lista Miðflokksins, náði jöfnunarþingsæti í kjördæminu og ýtti með því út Evu Pandóru Bald- ursdóttur þingmanni Pírata sem síðust vermdi það um nóttina. Með- an kosninganóttin leið voru ýms- ir inni, en duttu síðan út þegar at- kvæði tóku að berast frá fleiri lands- hlutum. Þannig var Teitur Björn Einarsson Sjálfstæðisflokki lengi vel inni, Bjarni Jónsson VG um tíma, Eva Pandora Baldursdóttir Pírati og Magnús Þór Hafsteinsson Flokki fólksins í smástund. En niðurstaðan er það sem telur. Þrír flokkar í kjör- dæminu fá tvo þingmenn hver; Sjálf- stæðisflokkur, Framsóknarflokk- ur og Miðflokkur. Sjálfstæðisflokk- ur tapar manni frá síðustu kosning- um og það gera einnig Píratar. Mið- flokkurinn hreppti bæði þingsætin. Samfylking og VG fengu sitt hvorn þingmanninn og Framsóknarflokk- ur hélt tveimur þingmönnum í kjör- dæminu. Þingmenn kjördæmisins verða því: Haraldur Benediktsson, sem heldur stöðu sinni sem 1. þing- maður kjördæmisins, og Þórdís Kol- brún R Gylfadóttir Sjálfstæðisflokki; Ásmundur Einar Daðason og Halla Signý Kristjánsdóttir Framsóknar- flokki; Bergþór Ólason og Sigurð- ur Páll Jónsson Miðflokki; Guðjón S Brjánsson Samfylkingu og Lilja Rafney Magnúsdóttir VG. Atkvæði flokkanna féllu hlutfalls- lega þannig í NV kjördæmi: Björt framtíð fékk 0,78% fylgi, Fram- sóknarflokkur 18,42%, Viðreisn 2,45%, Sjálfstæðisflokkur 24,54%, Flokkur fólksins 5,28%, Miðflokk- urinn 14,24%, Píratar 6,78%, Sam- fylking 9,74% og Vinstri hreyfingin grænt framboð 17,78%. mm Norðvesturkjördæmi hefur átta þingmenn. Eftir kosningarnar á laugardaginn koma þeir úr fimm flokkum. Skessuhorn heyrði á mánudaginn hljóðið í oddvitum þeirra lista sem náðu kjöri á þing. Allir báru þeir sig vel og enginn skorast undan þeirri ábyrgð að tilheyra flokkum sem eru meira en tilbúnir að taka þátt í stjórn- arsamstarfi. Haraldur Benediktsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins: „Lýðræðið hefur talað“ „Ég er alltaf sáttur með niðurstöðu kosninga því þá hefur lýðræðið tal- að. Því er ég þakklátur fyrir það fylgi sem Sjálfstæðisflokkurinn fékk þótt auðvitað hefðum við stefnt á að halda inni þremur þingmönn- um. Staða flokksins í kjördæminu er engan vegin slæm þótt lukku- dísirnar hafi ekki fallið með okkur að þessu sinni. Flokkurinn á lands- vísu missti fimm þingmenn, en ekki nema þrjú prósentustig í fylgi og kannski má því segja að við höfum verið heppin fyrir ári en að sama skapi óheppin nú,“ segir Haraldur Benediktsson sem áfram er fyrsti þingmaður Norðvesturkjördæmis, en Sjálfstæðisflokkurinn er stærstur í öllum kjördæmum. Um næstu skref aðspurður um stjórnarmyndun svarar Haraldur: „Nú er sviðið óneitanlega miðj- unnar, enda er hún sigurvegari kosninganna. Framsóknarflokk- arnir munu ráða miklu, jafnvel öllu, um hvort haldið verður til vinstri eða hægri við myndun ríkisstjórnar. Það hljóta að vera mikil vonbrigði hjá VG fólki að vera ekki það aug- ljósa forystuafl sem stefndi í að flokkurinn yrði miðað við skoðana- kannanir,“ segir Haraldur. Ásmundur Einar Daðason, oddviti Framsóknarflokksins: „Mikilvægt að hafa tvo þingmenn í kjördæminu“ „Mér er efst í huga þakklæti fyr- ir stuðninginn í nýliðnum kosn- ingunum. Það er mikilvægt fyr- ir Norðvesturkjördæmi að Fram- sóknarflokkurinn fékk tvo menn kjörna en það auðveldar allt starf þingmanna fyrir íbúa í víðfeðmu kjördæmi að þeir séu tveir. En veg- semd fylgir ábyrgð hverri og okkur þingmönnum Framsóknar hlakk- ar til verkefna komandi missera og ára. Það var afskaplega ánægjuleg afmælisgjöf að vakna upp við þau tíðindi að Halla Signý hafi einn- ig komist á þing,“ segir Ásmund- ur Einar Daðason alþingismaður, sem einmitt fagnaði 35 ára afmæli sínu á sunnudaginn. Hann verður yngsti þingmaður þingflokksins, líkt og fyrst þegar hann var kjör- Næsta ríkisstjórn með þremur eða fleiri flokkum Sjálfstæðismenn og Píratar töpuðu í Norðvesturkjördæmi sitthvorum manninum til Miðflokksins en aðrir héldu sínu Atkvæði greidd í kjördeildinni í Borgarnesi um klukkan 14 á laugardaginn. Viðbrögð forystumanna í Norðvestur- kjördæmi við úrslitum kosninganna Haraldur Benediktsson - D Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir - D Ásmundur Einar Daðason og Halla Signý Kristjánsdóttir - B Bergþór Ólason og Sigurður Páll Jónsson - M Guðjón S Brjánsson - S Lilja Rafney Magnúsdóttir - V

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.