Skessuhorn


Skessuhorn - 01.11.2017, Qupperneq 13

Skessuhorn - 01.11.2017, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2017 13 inn á þing, þá fyrir VG. Aðspurður um væntanlega stjórnarmyndun segir Ásmund- ur Einar að þingflokkurinn hafi ákveðið að fela þá vinnu formanni og varaformanni flokksins. Al- mennir þingmenn haldi sig til hlés þar til línur taka að skýrast. „Aðrir flokkar sýndu strax mikinn vilja til að starfa með Framsóknarflokkn- um. Við munum í það minnsta axla þá ábyrgð ef til þess kemur að taka þátt í myndun ríkisstjórnar.“ Bergþór Ólason, oddviti Miðflokksins „Fjögurra vikna sprettur“ „Við vorum búnir að finna fyrir mjög góðum meðbyr dagana fyr- ir kosningar. Þessi niðurstaða var engu að síður betri en ég hafði þor- að að vona,“ segir Bergþór Óla- son oddviti Miðflokksins í Norð- vesturkjördæmi, en flokkur hans er nýr og fékk tvö menn kjörna, þá Bergþór og Sigurð Pál Jónsson í Stykkishólmi. „Þetta er búinn að vera sprettur í fjórar vikur og enn eru mörg handtök eftir í eðlilegum undirbúningi að stofnun stjórn- málaflokks. Raunar hefur þetta ver- ið spretthlaup í fjórar vikur og því ótrúlegt að við skyldum ná þessum árangri.“ Bergþór kveðst þakklát- ur fyrir stuðninginn. „Ég er þakk- látur fyrir þann mikla stuðning sem við fengum víðsvegar um kjördæm- ið og vil ég koma á framfæri þökk- um til allra sem studdu okkur og kusu. Það var óvænt en sérstaklega ánægjulegt að fá Sigurð Pál Jónsson inn í þingflokkinn. Þá sýnist mér Vestlendingar vera að fá sérstaklega góða niðurstöðu, hafa ekki haft svo mikinn þingstyrk, ef horft er út frá búsetu, síðan 1999.“ Aðspurður segir Bergþór það líklegan möguleika að flokkur hans komi að myndun ríkisstjórn- ar. „Framhaldið ræðst hins vegar af viðræður formanna flokkanna á næstu dögum.“ Lilja Rafney Magnúsdóttir, oddviti VG: „Bjarni hefði orðið öfl- ugur þingmaður lands- byggðarinnar“ „Fyrir okkur í Vinstri hreyfingunni grænu framboði er ánægjulegt að við bættum við okkur fylgi á lands- vísu. Ég hefði gjarnan viljað að við uppskærum meira hér í Norðvest- urkjördæmi og hefðum náð tveim- ur á þing. Okkar fylgi hér var nán- ast það sama og fyrir ári, en allt það umframfylgi sem ekki nýtt- ist flokknum hér, nýttist öðrum. Ég hefði virkilega viljað sjá Bjarna Jónsson á þingi og tel að hann hefði orðið afar öflugur þingmaður fyr- ir landsbyggðina. Ég er hins veg- ar ánægð með skemmtilega og gef- andi kosningabaráttu. Það var sam- stæður hópur sem tók sig saman frá VG, hitti fullt af fólki og gekk hús úr húsi. Þannig náðum við að ræða við fjölda fólks í kjördæminu og er ég þakklát fyrir góðar viðtök- ur hvarvetna sem við komum,“ seg- ir Lilja Rafney oddviti VG í Norð- vesturkjördæmi. Um hver óskastjórn hennar væri, svarar Lilja Rafney því til að hún vonist eftir að fyrrum stjórnarand- staða geti tekið höndum saman um myndun ríkisstjórnar sem entist í fjögur ár. „Ríkisstjórn frá vinstri og inn að miðju væri óskastaðan og þá með viðbót frá hægri ef þarf. Flokkarnir þurfa nú að sýna ábyrgð og mynda starfhæfa ríkisstjórn út frá þeim málefnum sem þeir standa fyrir. Ég vona að þetta samtal flokk- anna leiði til góðs,“ segir Lilja Raf- ney. Guðjón S Brjánsson oddviti Samfylkingarinnar: „Þurfum að styrkja flokkinn á öllum svæðum“ „Við erum giska sátt með útkomu flokksins bæði á landsvísu og hér í kjördæminu. Reyndar vonaðist ég eftir að ná 10% fylgi í Norðvest- urkjördæmi og það gekk ekki al- veg eftir. Samfylkingin tvöfaldaði styrk sinn og náði kjördæmakjörnu fólki í öllum kjördæmum. Fyrir það erum við þakklát og nú er flokkur- inn að nýju kominn á góðan rek- spöl. Framundan hjá okkur er að styrkja flokkinn allsstaðar í Norð- vesturkjördæmi. Það hefur gengið vel hér á sunnanverðu Vesturlandi en styrkur okkar er minni á Snæ- fellsnesi, Vestfjörðum og Norður- landi. Því munum við efla flokks- starfið innan kjördæmisins,“ segir Guðjón S Brjánsson alþingismað- ur Samfylkingarinnar sem nú er að hefja sitt annað kjörtímabil, en nú sem kjördæmakjörinn þingmaður. Aðspurður um næstu skref við myndun ríkisstjórnar segir hann að strax sé hafinn einhvers konar sam- kvæmisleikur en staðan sé býsna snúin með marga flokka. „Ég vona náttúrlega að félagshyggjuflokkar byrji að ræða saman um myndun öflugrar stjórnar frá vinstri og að miðju.“ mm Fjölbrautaskóli Vesturlands Innritun á vorönn 2018 Fjölbrautaskóli Vesturlands Vogabraut 5, 300 Akranesi Sími 433-2500 skrifstofa@fva.is www.fva.is Námsbrautir í boði Stúdentsbrautir – 3 ára brautir Náttúrufræðabraut Félagsfræðabraut Opin stúdentsbraut Listnámssvið Tungumálasvið Viðskipta- og hagfræðisvið Afreksíþróttasvið Iðnnám Húsasmíði Húsgagnasmíði Vélvirkjun Grunndeild bíliðngreina Rafvirkjun Sjúkraliðanám Framhaldsskólabraut Starfsbraut Viðbótarnám eftir iðn- og starfsnám Dagskóli Innritun fyrir nám í dagskóla á vorönn 2018 fer fram rafrænt á menntagatt.is eða á skrifstofu skólans dagana 1.-30. nóvember. Dreifnám Opnað hefur verið fyrir umsóknir í húsasmíðanám, vélvirkjanám og sjúkraliðanám í dreifnámi fyrir vorönn 2018. Umsóknareyðublað er að finna á heimasíðunni, www.fva.is og umsóknum skal skilað á skrifstofu skólans fyrir 1. desember 2017. Nánari upplýsingar gefa Guðrún Sigríður Guðmundsdóttir, náms- og starfsráðgjafi, gudruns@fva.is og Jónína Víglundsdóttir, áfangastjóri, jonina@fva.is. Ásmundur Einar Daðason o� Halla Si�ný Kristjánsdóttir Framsóknarflokki í Norðvesturkjördæmi Þökkum stuðnin�inn! Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is Minnum á óbreyttan skilafrest auglýsinga Auglýsingar í Skessuhorn þurfa að berast í síðasta lagi á hádegi á þriðjudögum á netfangið auglysingar@skessuhorn.is. Auglýsendum er einnig bent á heimasíðuna www.skessuhorn.is þar sem boðið er upp á helstu stærðir vefborða. Nánari upplýsingar í síma 433-5500.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.