Skessuhorn


Skessuhorn - 01.11.2017, Side 21

Skessuhorn - 01.11.2017, Side 21
MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2017 21 Into the Glacier Er vaxandi fyrirtæki í ferðaþjónustu með starfsstöð bæði í Reykjavík og Húsafelli. Félagið starfrækir ísgöngin á Langjökli og er með daglegar ferðir þangað allt árið um kring. Hjá fyrirtækinu starfar þéttur hópur af hæfileikaríku fólki sem tekst á við margs konar verkefni á næst stærsta jökli Íslands. Starfsmannabílar fara á hverjum degi til og frá Húsafelli - og henta störfin því bæði fólki á Vesturlandi og í Reykjavík. Auk þess erum við með frábæra svefnaðstöðu í nýjum starfsmannahúsum á Húsafelli fyrir starfsmenn á vaktalotum. Starfsmaður í viðhaldsteymi á Langjökli Viðhaldsteymið: Sér um eftirlit og viðhald með ísgöngunum, öllum tækjum, trukkum, bílum og húsnæði. Verkefnin eru krefjandi og skemmtileg – og fáir dagar eru eins. Hæfniskröfur: Við leitum að starfsmönnum sem eru vanir ýmiss konar vélavinnu og því eru vinnuvélaréttindi skilyrði (stóra prófið) og reynsla æskileg. Viðhaldsteymið á jafnframt stóra bíla og tæki og því eru aukin ökuréttindi (C & D) afar mikilvæg. Eins þykir okkur mikilvægt að þekking og reynsla af viðgerðum og bilanagreiningu bíla og tækja sé til staðar – og almennt verkvit líka. Að öðru leyti er gott að viðkomandi sé duglegur til verka, stundvís og góður í teymisvinnu. Helgarstarfsmaður í móttöku Into the Glacier í Húsafelli Into the Glacier leitar eftir hressum og duglegum einstaklingum til að starfa í móttöku félagsins í Húsafelli. Starfið felst í móttöku ferðamanna, sölu á varningi, ýmissi aðstoð við starfsmenn á vakt ásamt öðrum verkefnum. Um er að ræða helgarstarf - með möguleika á að verða annað og meira ef áhugi er fyrir hendi. Hæfniskröfur: Nauðsynlegt er að viðkomandi starfsmaður tali og skrifi mjög góða ensku, sé með ríka þjónustulund og góða samskiptafærni. Reynsla af störfum innan ferðaþjónustu er mikill kostur, góð tölvufærni er nauðsynleg og reynsla af sambæri- legum störfum er kostur. #intotheglacier Into the Glacier leitar að starfsmanni í viðhaldsteymi og helgarstarfsmanni í móttöku á starfsstöð sína á Húsafelli Umsóknir Áhugasamir mega senda umsókn með ferilskrá á gulli@intotheglacier.is eða með því að hringja í síma 578-2550 og jafnvel með því að mæta á skrifstofuna okkar að Klettagörðum 12, 104 Reykjavík. Stafholtskirkja 140 ára Vígsluafmæli sun. 5. nóv. kl. 14.00 Frú Agnes M. Sigurðardóttir biskup prédikar. Sr. Elínborg Sturludóttir sóknarprestur þjónar fyrir altari. Kirkjukór Stafholtskirkju leiðir söng undir stjórn Jónínu Ernu Arnardóttur. Að messu lokinni verður boðið upp á kaffiveitingar á prestssetrinu. Sóknarprestur/sóknarnefnd SK ES SU H O R N 2 01 7 Mikil vakning er varðandi menn- ingararfleifð víkinganna. Við sjáum sjónvarpsþáttasamning Paramount Pictures við Bergsvein Birgisson um Svarta víkinginn og Rokkóperu byggða á Eddukvæðum í uppsetn- ingu Þorleifs Arnar í Þýskalandi. Heiminn þyrstir í að fræðast meira um þennan forna menningarheim. Hinn heimfrægi rithöfundur Neil Gaiman gaf á þessu ári út bókina Norse Mythology þar sem hann vinnur með arfinn úr Eddukvæð- unum. Í vikunni fyrir kosningar var haldin hér á landi ráðstefnan, Follow the Vikings, sem vert er að segja frá. Samnefnt verkefni hófst árið 2015 og stendur í fjögur ár. Verk- efnið hlaut veglegan styrk úr menningarsjóði ESB, en markmið verkefnisins er að skapa tengla- net milli þeirra safna og setra sem sinna þessu tímabili víkinganna og efla kynningu á þessu stórmerki- lega tímabili í sögu Evrópu. Einn hluti verkefnisins er að hrinda af stað nýrri myndasögu, sem ætluð er börnum eldri en 10 ára en að því verki vinna nánir samverkamenn Neil Gaiman þau Cat Mihos frá Bandaríkjunum og Jouni Kopo- nen frá Finnlandi. Á ráðstefnunni kynntu þau myndasöguna. Aðilar að verkefninu, Follow the Vikings, eru; Fotevikens Mu- seum, Vikingagården Gunnes Gård, Trelleborgmuseet, Natio- nalmuseet i København, Shetland heritage and Culture, Concello De Catoira, Waterford Treas- ures, Rosalia, Museum Vest Sjæll- and, Bengtskår Finland, Avaldsnes Norges eldste kongesete, Dublinia, Jorvik, Lofotr Vikingmuseum, Sør Troms Museum og síðast en ekki síst fyrir Íslands hönd, Samtök um söguferðaþjónustu. Haldnar eru tvær ráðstefnur á ári hverju og að þessu sinni var komið að okkur hér á landi að halda slíka ráðstefnu. Upphaf ráðstefnunnar þriðjudaginn 24. október var heim- sókn stjórnar verkefnisins á Bessa- staði. Um 89 manns voru skráð- ir til leiks og næsta dag hófst sjálf ráðstefnan formlega í Norræna húsinu með fyrirlestrum. Þar hélt Inga Hlín Pálsdóttir frá Íslands- stofu kynningu fyrir Íslands hönd. Seinni daginn lögðu ráðstefnu- gestir land undir fót upp í vígi Snorra Sturlusonar í Reykholti. Þar tók Snorrastofa á móti gestum og hýsti fyrirlestra og hressingu. Fosshótel Reykholt sá um hádeg- isverðinn og rekstur slíks heilsárs- hótels á staðnum rennir enn frek- ari stoðum undir dvöl svo margra á staðnum. Kristján Guðmunds- son frá Markaðstofu Vesturlands hélt fyrirlestur ásamt Óskari Guð- mundssyni rithöfundi og Gísla Sigurðssyni prófessor við Stofn- un Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Einnig héldu kynning- ar Emely Lethbridge, sem kynnti vef sinn um landakort fornsagna (http://sagamap.hi.is/is/) og Stein- unn Anna Gunnlaugsdóttir frá fyr- irtækinu Locatify sem kynnti nýja tækni innihljóðleiðsagnar sem sett hafði verið upp á sýningu Snorra- stofu, Saga Snorra, í tilefni dags- ins. Snorrastofa kynnti einnig nýja hljóðleiðsögn frá Locatify um staðinn, sem gestum þar stendur framvegis til boða. Þá gekk sr. Geir Waage um svæðið með ráðstefnu- gestum, sýndi þeim fornleifarnar og sagði frá eins og honum einum er lagið. Heimsóknin hingað á Vestur- land vakti mikla hrifningu hinna erlendu gesta, sem voru ánægðir með móttökur allar og dagurinn endaði með veglegum kvöldverði og skemmtun í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Það er jákvætt að Samtök um söguferðaþjónustu skuli leiða til Íslands svo metnaðarfullt, alþjóð- legt verkefni, sem við getum stolt tekið á móti. Þeir sem starfa í sam- Vakning í menningar- arfleifð víkinganna tökunum á Vesturlandi sýndu að þeir geta með góðu móti hýst slík verkefni og heimsókni var öll hin ánægjulegasta. Sigrún Þormar, verkefnisstjóri hjá Snorrastofu. Ljósm. Guðlaugur Óskarsson Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.