Skessuhorn


Skessuhorn - 06.12.2017, Síða 2

Skessuhorn - 06.12.2017, Síða 2
MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 20172 Vetur konungur er hingað kominn og hef- ur gert norðurhvel jarðar að konungsríki sínu. Veður og vindar lúta nú vilja hans og búast má við frosti og kulda næstu daga. Sá er þetta ritar er annáluð kuldaskræfa og beinir því þess vegna til lesenda að klæða sig vel á næstunni. Það verður víða norðanátt, 10-18 m/s á morgun, fimmtudag en 18-23 m/s á suð- austurhorninu. Lægir eftir því sem líður á daginn, fyrst um landið vestanvert. Él fyr- ir austan en bjartviðri á Suður- og Vestur- landi. Talsvert frost. Hæg breytileg átt og víða léttskýjað á föstudag, en norðvestan strekkingur og él fyrir austan. Kalt í veðri. Vaxandi suðaustanátt með hlýnandi veðri og rigningu á Suður- og Vesturlandi á laug- ardag. Bjartviðri og talsvert frost annars staðar. Austlæg átt og rigning eða slydda með köflum á sunnudag, en að mestu þurrt fyrir norðan. Hiti nálægt frostmarki en frost 2 til 7 stig inn til landsins norðan heiða. Á mánudag er útlit fyrir norðaust- anátt með éljum við norður- og austur- strönd landsins, en yfirleitt léttskýjað syðra. Frost 3 til 8 stig. „Er jólabaksturinn hafinn á þínu heimili?“ var spurt á vef Skessuhorns í vikunni. „Nei, en hefst innan tíðar“ var algengasta svar- ið, en 32% þátttakenda völdu þann mögu- leika. „Það verður ekkert bakað“ sögðu næstflestir, 25% og „já, nýbyrjaður“ sögðu örlítið færri, 24%. „Já, fyrir löngu“ og „Nei, langt í hann“ fengu 10% atkvæða hvor svarmöguleiki. Í næstu viku er spurt: „Ferð þú til kirkju á aðventunni eða á jólum?“ Hjónin Sesselja Jóna Helgadóttir og Hörð- ur Jóhannesson á Akranesi eiga króndem- antsbrúðkaup í dag, en þau hafa verið gift í 65 ár. Geri aðrir betur! Þau eru Vestlend- ingar vikunnar. Spurning vikunnar Til minnis Veðurhorfur Vestlendingur vikunnar Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar síðastliðinn fimmtudag var samþykkt að ganga til viðræðna við Ragn- ar Frank Kristjánsson um að taka við stöðu sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs sveitarfélagsins. Tíu sóttu um starfið og var ráðgjafi frá Intellecta sem stýrði viðtölum við þá tvo sem metnir voru hæfastir. Byggð- arráð var samdóma í niðurstöðu sinni. Ragnar Frank hefur um ára- bil starfað sem lektor við Umhverfis- og auðlindadeild LbhÍ á Hvanneyri. Hann er jafnframt fulltrúi VG í sveit- arstjórn Borgarbyggðar og mun nú víkja sæti í sveitarstjórn og varamað- ur taka sæti hans þar. Fyrsti varamað- ur er Sigríður Júlía Brynleifsdóttir en annar varamaður er Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir. Halldóra Lóa sagði í samtali við Skessuhorn að ekki liggi fyrir á þessari stundu hvor þeirra taki sæti í sveitarstjórn eða hvort þær skipti með sér verkum. Fleiri breytinga er að vænta á um- hverfis- og skipulagssviði. Stutt er í að ráðið verði í starf byggingafull- trúa, en umsóknarfrestur um það starf rann út fyrr í vikunni. Þá hefur verið ráðinn starfsmaður í tímabund- ið starf til nokkurra mánaða og verð- ur verkefni hans að yfirfara og leið- rétta skráningar fasteigna í sveitarfé- laginu. mm Ragnar Frank ráðinn sviðsstjóri og víkur úr sveitarstjórn Ragnar Frank Kristjánsson tekur við starfi sviðs- stjóra en víkur sæti úr sveitarstjórn á sama tíma. Á aðalfundum í hestamannafélög- unum Skugga í Borgarnesi og Faxa í Borgarfirði, sem haldnir voru sam- tímis síðastliðið fimmtudagskvöld, var samþykkt með yfirgnæfandi fjölda atkvæða að stofna nýtt hestamanna- félag og leggja gömlu félögin nið- ur. Hjá Faxa fór atkvæðagreiðsla um sameininguna þannig að 28 greiddu atkvæði með tillögu sameiningar- nefndar og fimm voru á móti. Hjá Skugga fór atkvæðagreiðsla þann- ig að 52 voru fylgjandi sameiningu, tíu voru á móti og tveir tóku ekki afstöðu. Framhald málsins verður þannig að bæði félög skipa tvo full- trúa í nefnd til að vinna að undirbún- ingi stofnunar nýs hestamannafélags og Ungmennasamband Borgarfjarð- ar tilnefnir oddamann. Gert er ráð fyrir að stofnfundur nýs félags geti farið fram í byrjun næsta árs. Undanfarin misseri hefur verið unnið að undirbúningi málsins og skipuðu bæði félögin fimm fulltrúa í nefnd sem hafði það hlutverk að vinna tillögu um hugsanlega sam- einingu. Nefndin tók til starfa eftir aðalfundi félaganna beggja. Það var tillaga nefndarinnar að kosið yrði samtímis í báðum félögum um sam- einingu. Hestamannafélögin Faxi og Skuggi eru svipuð að stærð, en um 280 félagar eru skráðir í Skugga og 270 í Faxa. „Sameiningarnefndir félaganna telja að töluverður vilji sé til staðar meðal félagsmanna að sameina fé- lögin á grundvelli þess að þar með verði öflugra félag starfandi í Borg- arfirðinum og komið sé þannig til móts við kröfur um meiri samstöðu og samtakamátt hestamanna á svæð- inu. Stærra félag verði öflugra í innra starfi og útávið á landsvísu. Vísa nefndirnar til greinagerðar sem unn- in hefur verið upp um sameiningu félaganna, kosti þess og galla,“ segir í tillögu sameiningarnefndar. Lagði sameiningarnefndin jafn- framt til að sameinað félag fái nýtt nafn sem valið verði af félagsmönn- um hins nýja félags. Ekki verði notast við nöfnin Faxi eða Skuggi. mm Samþykkt að sameina hestamanna- félögin Skugga og Faxa Startup Tourism er tíu vikna viðskiptahraðall sem er sniðinn að þörfum nýrra fyrirtækja í ferðaþjónustu. Tíu sérvalin sprotafyrirtæki fá ár hvert tækifæri til að þróa áfram viðskipta- hugmyndir sínar undir leiðsögn reyndra frumkvöðla, fjárfesta og annarra sérfræðinga þeim að kostnaðarlausu. Við leitum að verkefnum sem stuðla að allan ársins hring og nýjum lausnum sem styðja innviði ferðaþjónustunnar. Hraðallinn hefst 15. janúar 2018 og fer fram í Reykjavík. Nýsköpun í ferðaþjónustu Umsóknarfrestur til 11.desember Taktu næsta skref með Startup Tourism Startuptourism.is

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.