Skessuhorn - 06.12.2017, Page 30
MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 201730
Krossgáta Skessuhorns
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að spreyta sig á. Auk þess birtum við lausn
á krossgátu síðustu viku. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á
netfangið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15 á mánudögum. Athugið
að fullt nafn og heimilisfang þarf að fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa
aðgang að tölvupósti sendi lausnir á: „Skessuhorn - krossgáta, Kirkjubraut
56, 300 Akranesi (póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á föstudegi). Dregið
verður úr réttum innsendum lausnum og fær vinningshafinn bókargjöf frá
Skessuhorni.
Alls bárust 93 lausnir við krossgátunni í blaðinu í síðustu viku. Lausnin
var: „Spakmæli.“ Vinningshafi er Inga S Ingvarsdóttir, Kveldúlfsgötu 8, 310
Borgarnesi.
Máls-
háttur
Amboð
Skel
Spyr
Gaddur
Fjöldi
Sló
Hestur
Mynni
Smálest
Kelda
Á skipi
Fiskur
Óleyfi
Reiður
Kveikur
Bor
Kjánar
Vatns-
ból
Étandi
Vagga
Berg-
mál
Varmi
Tók
Sk.st.
Hylur
Slitnar
Einkum
Ávalur
Vatna
Óna
Illgresi
Hælir
5
Prútt
Glöggur
Tauta
1
Þátt-
taka
Gabbar
8 Fæddi
Önugur
Örn
Kæpan
Sléttur
3
500
Rúlluðu
Selur
Fljótur
Saddar
Magi
Áhald
Vein
Afar
For
Líka
Gljái
Spil
Rugga
6 Otar
Sérhlj.
Tónn
Veisla
Læti
Röð
Ánægð
Viðmót
Arður
Erfiði
Korn
Fjötrar
Auðug
Haka
Hryðja
Rán
Niður
2 Finnur
leið
Grip
Kvað
Rasar
Makar
Óreiða
Botn-
fletir
Hópur
Þar til
Eiði
Dvali
Sóta
4
Gat Trjóna
Tvíhlj.
Sérhlj.
Skjól
Ver
Leyfist
Kantur
Bleikja
Frjó
Friður
Hátíð
Kl..3
Klafi
Elska
Eyða
Brall
Trýni
Martröð
Grípa
Ósk
Stafur
Spil
Sefa
Reipi
Ferð
Seður
Lít
Bindi
Óttast
Ætla
7
1 2 3 4 5 6 7 8
Æ
F R A M T Í Ð A R
Ú Ð A R T R O S
M E L T A A U Ý
B I L R Ó N
F O R N A A L L A
J A K A R P A S S T E M U R
Ö L Á L Ó S P A U G M Á
L I T A M Ó K A S U N U N
S N I Ð U G Æ S T U R A R G
K E R I Ð Á T T M E G I N
Y S K L T U S L I G L Æ
L J Á D Ý K R U M M A G
D A S F Ó R M A U R Ó Ð
U N S H I M I N N K R Ú N A
H Á A R N A N Á A L A F
Ú L P A N G L Æ R A F R Æ
S Æ Ú Ð A R L A S R Á T
G L I T Ó A R T S T A R A
H Ú S N Æ Ð I
L
A
U
S
N
Ú
R
S
ÍÐ
A
S
T
A
B
L
A
Ð
I
Vísnahorn
Einhvern tímann var
þessum fyrriparti sleg-
ið fram og óskað eftir
botni:
Hefur einhver ennþá gert
allt svo mönnum líki?
Indíana Sigmundsdóttir botnaði:
Ég held það ekki opinbert
í okkar smáa ríki.
Ætli þetta eigi ekki allavega við í stjórnmál-
unum og kannske víðar. Blessaðir útrásarvík-
ingarnir okkar sem allir dáðust að fyrir nokkr-
um árum eru nú orðið í hugum okkar eitthvað
líkt og gamalt fyllirí sem okkur langar ekkert
að muna en einhvern tímann orti Jón Ingvar:
Meðan okkar þjóðarþing
þarf að halda á lausnum
enginn grætur auðkýfing,
einan sér á hausnum.
Eru ekki annars alltaf allir á hausnum hvort
sem er? Annaðhvort í raun og veru eða þykjast
vera það. Og ef menn verða fyrir því óláni að
eignast peninga taka við eilífar áhyggjur um
að tapa þeim aftur. Enda svo sem fjölmargir
sem ekkert kunna með þá að fara frekar en
önnur andleg og veraldleg verðmæti. Allavega
orti Bjarni frá Gröf:
Handa minni heimsku þjóð
hamast ég við að yrkja ljóð
en heldur er það hlálegt grín
að henda perlum fyrir svín.
Og svo önnur eftir Bjarna og þætti mér ekki
ólíklegt að hann hafi haft þá merku stofnun
Alþingi í huga við tilurðina:
Flónskan verður meiri og meiri
og minna viti alltaf sáð
eftir því sem fleiri og fleiri
fara saman heimskra ráð.
Það ég best veit mun eftirfarandi vísa ort
á tímum seinni heimsstyrjaldar og höfund-
ur líklega Steinn Steinarr en hann og Guð-
mundur Sigurðsson voru góðkunningjar og
ortu reyndar ýmislegt saman eða sitt í hvoru
lagi þannig að ekki var alltaf glöggt að greina
milli:
Kallio á kafi í snjó
kalsaði nóg við Rússa þó,
en þó bar hróið þrengstan skó
þegar hann dó í Petsamo.
Kyosti Kallio var forseti Finnlands á þess-
um árum og hafði víst í nokkur horn að líta í
samskiptum sínum við Rússa enda vissara að
fara gætilega í kringum þá póla báða sem þá
réðu hvað mestu. Eitt smáríki gat vel fuðrað
upp í skammhlaupi þar á milli.
Í Múla í Biskupstungum var eitt sinn statt
allmargt fólk samtímis bæði gestir og heima-
menn og lögðu fjórir í púkk til þessarar vísu.
Sína hendinguna hver:
Hér eru skáld og skipstjórar,
skartmeyjar og ritstjórar,
heyrnarsljóir heildsalar,
heiðarlegir vegfarar.
Eitt og annað gerist nú þar sem mörgu fólki
slær saman. Sumt siðsamlegt en annað synd-
samlegt eða svona sitt lítið af hvoru. Stundum
verður fólki á að iðrast eftir syndina en þýð-
ir það svosem nokkuð? Hvað veit maður um
það? Ekkert man ég hver orti:
Hví að binda hug við kross
hel og lyndisundir
fyrst að syndin færir oss
flestar yndisstundir.
Hjálmar Þorsteinsson á Hofi á Kjalarnesi
var vel þekktur hagyrðingur á sinni tíð og til
Ólínu Andrésdóttur gerði hann þessa:
Hennar þýðu hyggjutún
hlynir prýða ljósir.
Upp á hlíðar efstu brún
á hún víðirósir.
Kaupfélag Borgfirðinga var um tíma ansi
umsvifamikið fyrirtæki og hafði mikið um-
leikis. Skal þó ekki dregið úr núverandi gæð-
um þess þó umsvifin séu minni en voru. Ein-
hvern tímann var á kaupfélagsfundi mikið rætt
um hugsanleg útibú í dreifbýlinu og höfðu
menn ýmsar skoðanir á málinu. Þá kvað Leif-
ur í Hítardal:
Útibú vilja flestir fá,
finnst mér það að vonum.
En eitt er það sem allir þrá
að það sé hjá honum.
Guðmundur Albertsson á Heggsstöðum
bað eitt sinn Ólaf Andrésson að taka frá fyrir
sig verkfæri og kvaðst mundu láta vita fljót-
lega. Eftir nokkra daga fékk Ólafur svohljóð-
andi bréf:
Smergelrokk mig fýsir fá
sem fyrir nokkru tókst þú frá
honum stokk í stinga má
og stíla af þokka nafn mitt á.
Björn Pétursson var um tíma skrifstofu-
maður hjá Síldar- og fiskimjölsverksmiðju
Akraness og sendi þá Kaupfélagi Borgfirðinga
svohljóðandi víxiltilkynningu:
Á skrýtnum stað á Skagakrók
skaust upp víxilblað.
Áttu ekki á bankabók
svo borgað getir það?
Guðmundur Sigurjónsson frá Valbjarnar-
völlum svaraði fyrir hönd Kaupfélagsins:
Í vanda og neyð ég víxil tók,
verð hann nú að greiða.
Mína kæru bankabók
á blóðvöll skal því leiða.
Oft verður okkur á að velta fyrir okkur
verðhlutföllum á vörunni. Einu sinni þótti
það nokkur eign að eiga eins og gripsverð til-
tækt en ekki víst að öllum þyki það nú orðið.
Man að við vinur minn vorum einhvern tím-
ann að velta fyrir okkur að þá kostuðu keðjur
undir dráttarvél kýrverð og startari í Ferguson
dráttarvél eins og tvær kýr. Jón S. Bergmann
yrkir um verðlagningu á hinu og þessu:
Dýrtíðin var mjög til meins,
margan snauðan gerði,
en manngildið er ávallt eins
undurlágt í verði.
Betri manna bættust kjör
borgum í og dölum,
ef að væri vit og smjör
virt með sömu tölum.
Jón Bergmann var náttúrlega snillingur og
fara ekki allir í sparigallann hans en einhvern
tímann varð þessi til hjá óþekktum höfundi:
Því er hnípinn þanki minn
og þorir ekki að múðra,
að á mig spilar andskotinn
alíegro með lúðra.
Það er greinilegt að höfundur lokavísunnar
hefur ekki haft skaðvænlega mikið álit á kveð-
skap sínum en trúlega verið slæmur í skrokkn-
um:
Gigt ófétið tók mér tak.
Tólin lagði fjögur.
Yrki ég fyrir aftan bak,
allar mínar bögur.
Með þökk fyrir lesturinn
Dagbjartur Dagbjartsson,
Hrísum, 320 Reykholt.
S 435 1189 og 849 2715
dd@simnet.is
Yrki ég fyrir aftan bak - allar mínar bögur