Skessuhorn - 13.06.2018, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2018 25
Nýfæddir Vestlendingar
Snæfellsbær –
miðvikudagur 13. júní
Víkingur Ó tekur á móti Leikni R í 1.
deild karla í knattspyrnu. Er þetta
fyrsti heimaleikur Víkings Ó þetta
sumarið á glænýju gervigrasi.
Leikurinn verður á Ólafsvíkurvelli
og hefst kl. 19:15.
Borgarnesi –
laugardagur 16. júní
B59 Hotel við Borgarbraut 59 í
Borgarnesi verður opnað þennan
dag. Í tilefni þess að fyrsti leikur
Íslands á HM í fótbolta verður
þennan sama dag verður HM
stemning á hótelinu.
Akranes – laugardagur 16. júní
Upphitun fyrir þjóðhátíðardaginn
á Smiðjuloftinu við Smiðjuvelli frá
kl. 11:00 – 14:00. Klifur, leiktæki og
fjör. Hæ, hó, jibbí jei söngstundir
á hálfa tímanum og opið í krakka-
karókí. Þátttökugjald er 800
krónur. Kaffi, kleinur og ávaxtavatn
til sölu. Börn yngri en 14 ára skulu
koma í fylgd með fullorðnum.
Skorradalshreppur –
laugardagur 16. júní
Opnun ljósmyndasýningarinnar
„Fuglar í Skorradal“ á
Stálpastöðum klukkan 17:00.
Sigurjón Einarsson tók myndirnar
og sýningin verður opin allan
sólarhringinn fram að hausti.
Stykkishólmur –
laugardagur 16. júní
Opið Gæðingamót og úrtaka
fyrir Landsmót Hestamanna hjá
Hestamannafélaginu Snæfellingi.
Akranes – sunnudagur 17. júní
Fjölbreytt hátíðardagskrá í tilefnið
þjóðhátíðardagsins. Frá kl. 10:00-
13:00 verður þjóðlegur morgun
á Byggðarsafninu. Akranesviti
verður opinn frá kl. 10:00-18:00
og frítt inn. Hátíðarguðsþjónusta
í Akraneskirkju kl. 13:00.
Skrúðganga frá Tónlistarskólanum
á Akranesi kl. 14:00. Fjölbreytt
hátíðardagskrá við Akratorg frá kl.
14:15-16:15 og margt fleira. Nánar
er hægt að lesa um dagskránna í
auglýsingu hér í Skessuhorni.
Borgarbyggð –
sunnudagur 17. júní
Víða í sveitarfélaginu verður
þjóðhátíðardagurinn haldinn
hátíðlegur. Í Borgarnesi
verður haldin íþróttahátíð á
Skallagrímsvelli og hefst hún kl.
10:00. Frítt verður í sund í tilefni
dagsins. Hátíðarguðsþjónusta
í Borgarneskirkju kl. 11:00.
Fornbílaklúbburinn og
bifhjólaklúbburinn Raftarnir
keyra um bæinn. Skrúðganga
frá Borgarneskirkju kl. 14:00,
gengið verður í Skallagrímsgerð
þar sem verður hátíðar- og
skemmtidagskrá. Á Hvanneyri
verður farið í skrúðgöngu frá
Sverrisvelli kl. 11:30 og gengið
verður að skjólbeltunum þar
sem verða mikil hátíðarhöld.
Ungmennafélag Reykdæla standa
fyrir hátíðarhöldum í Reykholtsdal.
Riðið verður til hátíðarmessu
í Reykholti. Hangikjötsveisla
og hátíðardagskrá í Logalandi
kl. 13:00. Í Lundareykjadal
hefst hátíðardagskrá kl. 14:00
með bátakeppni við ármót
Grímsár og Tunguár. Kaffistund
í Brautartungu. Nánari dagskrá
um hátíðarhöld í Borgarbyggð
má finna í auglýsingu hér í
Skessuhorni.
Akranes –
miðvikudagur 20. júní
ÍA tekur á móti Magna í 1. deild
karla í knattspyrnu. Leikurinn fer
fram á Akranesvelli og hefst kl.
18:00
Á döfinni
Skrifstofa til leigu
Til leigu 13 fm. skrifstofa við
Kirkjubraut á Akranesi. Sameiginleg
kaffi- og hreinlætisaðstaða með
annarri starfsemi í húsnæðinu. Uppl.
gefur Magnús í síma 894-8998.
Húsnæði í Borgarnesi
Óskum eftir 3-4 herbergja húsnæði
til leigu í Borgarnesi, í síðasta lagi frá
1. september nk. Langtímaleiga væri
kostur. Erum skilvís og reglusöm.
Upplýsingar á majahrund@simnet.is
eða í síma 848-2318, Þórir.
2-3 herb. íbúð nálægt Borgarnesi
Óska eftir 2-3 herbergja íbúð í
kringum Borgarnes. Einstaklingur
með öruggar greiðslur. Endilega
hafið samband í síma 697-6556.
Megas
Óska eftir kasettum með Megasi.
Upplýsingar á gunnidabb@gmail.
com.
Óska eftir sparikjól af stærri
gerðinni
Vantar sparikjól af stærri gerðinni
ódýrt eða að láni til prufu í smá
verkefni. Nánari upplýsingar hjá
Sveini Gunnari í síma 898-7526.
Markaðstorg Vesturlands
LEIGUMARKAÐUR
10. janúar. Stúlka. Þyngd: 4.155
gr. Lengd: 53 cm. Foreldrar:
Þórunn Káradóttir og Ólafur
Fannar Guðbjörnsson, Ólafsvík.
Ljósmóðir: Valgerður Ólafsdóttir.
Stúlkan heitir Birna Rós.
2. júní. Drengur. Þyngd: 3.480 gr.
Lengd: 49 cm. Foreldrar: Jónína
Sigríður Þorláksdóttir og Helgi
Eyleifur Þorvaldsson, Reykholti.
Ljósmóðir: Jóhanna Ólafsdóttir.
ÓSKAST KEYPT
Getir þú
barn þá
birtist það
hér, þ.e.a.s.
barnið!
www.skessuhorn.is
4. júní. Stúlka. Þyngd: 4.064 gr.
Lengd: 51 cm. Foreldrar: Sonja
Lind Estrajher Eyglóardóttir
og Pavel Estrajher, Borgarnesi.
Ljósmóðir: Hrafnhildur
Ólafsdóttir.
6. júní. Drengur. Þyngd: 3.988 gr.
Lengd: 50,5 cm. Foreldrar: Karen
Ósk Þorsteinsdóttir og Sigurður
Straumfjörð Pálsson, Mosfellsbæ.
Ljósmóðir: Hafdís Rúnarsdóttir.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
hefur auglýst eftir tilnefningum til
tvennra verðlauna sem afhent verða á
Degi íslenskrar náttúru. Annars veg-
ar er um að ræða Fjölmiðlaverðlaun
umhverfis- og auðlindaráðuneytisins
og hins vegar Náttúruverndarviður-
kenningu Sigríðar í Brattholti. Til-
nefningarfrestur er til 24. ágúst næst-
komandi.
Fjölmiðlaverðlaunum umhverfis-
og auðlindaráðuneytisins er ætlað að
hvetja til hverskyns umfjöllunar um
umhverfi og náttúru, hvort heldur
er í því skyni að vekja athygli á ein-
stakri náttúru landsins, benda á þær
ógnir sem steðja að umhverfi og nátt-
úru eða mikilvægi þess að vernda og
verja umhverfi og náttúru til fram-
tíðar. Umfjöllun um umhverfismál
og náttúru hefur aukist til muna á
undanförnum árum, bæði innanlands
sem og á alþjóðavísu. Má þar nefna
aukinn áhuga á íslenskri náttúru
samfara örum vexti í ferðamennsku,
loftslagsmálum og mikilvægi þess að
stemma stigu við ýmiskonar mengun
til að tryggja hreint og heilnæmt um-
hverfi.
Verðlaunin eru veitt á Degi ís-
lenskrar náttúru, 16. september ár
hvert, en þau geta hlotið fjölmið-
ill, ritstjórn, blaða- eða fréttamaður,
dagskrárgerðarfólk, ljósmyndari eða
rithöfundur sem hefur skarað fram úr
með umfjöllun sinni um umhverfis-
mál og/eða íslenska náttúru undan-
gengna tólf mánuði (tímabilið ágúst –
ágúst). Til greina koma einstök verk-
efni eða heildarumfjöllun um náttúru
og umhverfismál.
Þriggja manna dómnefnd skipuð
fagfólki á sviði fjölmiðla velur vinn-
ingshafa úr innsendum tilnefningum
en auk þess hefur dómnefnd svigrúm
til að taka til skoðunar fjölmiðlaum-
fjöllun um umhverfi og náttúru utan
tilnefninga.
Náttúruverndar-
viðurkenning Sigríðar
í Brattholti
Þá verður Náttúruverndarviður-
kenning Sigríðar í Brattholti veitt
einstaklingi sem hefur unnið mark-
vert starf á sviði náttúruverndar. Sig-
ríður Tómasdóttir, fæddist 24. febrú-
ar 1871 í Brattholti. Sigríður var bar-
áttukona og náttúruverndarsinni sem
lagði mikið á sig í baráttu gegn virkj-
un Gullfoss. Hún var því brautryðj-
andi á sviði náttúruverndarmála hér
á landi og hefur æ síðan verið ís-
lenskum náttúruverndarsinnum fyr-
irmynd.
Óskað er eftir tilnefningum til
beggja viðurkenninga í síðasta lagi
24. ágúst 2018. Tilnefningar með
rökstuðningi sendist umhverfis- og
auðlindaráðuneytinu, Skuggasundi 1,
101 Reykjavík, eða á netfangið post-
ur@uar.is.
-fréttatilkynning
Tilnefningar til verðlauna á
Degi íslenskrar náttúru