Velferð - 01.06.2019, Qupperneq 4

Velferð - 01.06.2019, Qupperneq 4
4 Málgagn Hjartaheilla Velferð er 30 ára. Blaðið sem geymir sögur okkar, fræði, vangaveltur og stiklur liðins tíma. Líf okkar mannanna er ofi ð úr sögum. Á hverju andartaki bætist nýr þráður við þær sögur og smám saman dragast þeir allir í ákveðna mynd og oft birtast þær í Velferð úr félagsstarfi nu. Það er saga okkar, um félagslífi ð og starf sem Hjartaheill hefur haldið utan um. Þegar við horfum á þræðina tvinnast saman og þekkjum svip okkar sem þar er íofi nn koma í ljós myndir liðins tíma. Já, jafnvel ógrynni mynda sem segja sögur. Sögur sem geyma gleðilegt atvik og hressileg. Aðrar sögur eru um sorg og ri a upp daprar stundir í lífi okkar, en fl estar geyma sögurnar atvik úr litskrúðugum hversdeginum sem er vettvangur okk- ar. Líðandi stund í önnum dagsins er hin mikla sögusmiðja og þar verða til sögur sem fela í sér markmið, vonir okkar og þrár. Sögur sem fl eyta áfram metnaði okkar, samúð og samkennd með þeim sem minna mega sín. Samtökin okkur leggja sig fram og allt frá stofnun hafa þau beitt sér fyrir fræðslu og forvörnum varðandi hjartasjúkdóma, veitt aðstoð og ráðgjöf og staðið fyrir margvíslegum umbótum í þágu hjartasjúklinga og sinnt jafningjafræðslu. Hjartaheill eru samtök sem vilja láta gott af sér leiða í nær- samfélagi sem og víðar. Við viljum skapa tækifæri fyrir hjartasjúklinga og þá sem vilja bæta heilsuhag sinn. Lífs- hættir nútímafólks einkennast mjög af vanþjálfun eða hreyf- ingarleysi, ofnæringu og streitu. Mikið verk ef fyrir höndum og nauðsynlegt að ná fram breytingum á óheppilegum lífs- háttum. Safnast hefur á einn stað  öldi upplýsinga sem má nota til að læra af. Velferð hefur í gegnum tíðina birt  ölda greina um hjarta-og æðasjúkdóma eftir leika og lærða. Við eigum að horfa til framtíðar, nestuð af reynslu fortíðar með það mark- mið að læra af reynslunni. Sá mikli auður sem samtökin hefur safnað sér í gegnum tíð- ina er fólkið sem hefur unnið án endurgjalds fyrir samtökin, þ.e. sjálfboðaliðarnir. Fólk fer í sjálfboðaliðastörf af ýmsum ástæðum. Mörgum fi nnst starfi ð áhugavert og gefandi, aðrir vilja láta gott leiða af sér. Sjálfboðaliðastarf getur nefnilega verið lærdómsríkt og þroskandi. Hjartaheill hefur treyst á sjálfboðaliða í sínum röðum frá stofnun samtakanna. Við höfum í því sambandi verið hepp- in að hafa fengið í raðir okkar virka þátttakendur sem hafa mótað umhverfi sitt og samfélagið okkar. Því ber að þakka. Að sýna þakklæti er afar mikilvægt í mannlegum samskipt- um og felur í sér jákvæðan hug til þeirra sem þakklætið beinist að. Almennt þarf ekki mikið til. Nóg er að segja orðin „takk fyrir“, það er að minnsta kosti ágæt byrjun. Þakklæti er innri upplifun og ytri tjáning. Innra þakklæti lýtur að því sem við erum, eigum, höfum og því sem við verðum ekki fyrir, t.d. áföllum og fáum að halda heilsu. Þakklæti felst í því að kunna að bera kennsl á það sem virðist sjálfsagt og læra að meta það mikils. Fyrir hönd samtaka okkar vil ég nota tækifærið og þakka öllum þeim einstaklingum sem hafa lagt fram sinn skerf að móta sögu okkur frá liðnum tíma og gert allt það sem við höfum framkvæmt, mögulegt. Það fer vel á því að vitna til Melody Beattie þegar hún segir; „Þakklæti fær okkur til að skilja það liðna, færir okkur gleði og frið í dag og skapar bjarta sýn fyrir morgundaginn.“ Með afmæliskveðju Sveinn Guðmundsson, formaður Hjartaheilla og SÍBS Velferð geymir sögu okkar Frá formanni

x

Velferð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.