Velferð - 01.06.2019, Side 18

Velferð - 01.06.2019, Side 18
18 Málgagn Hjartaheilla en ekki á stórgrýti. Svo ég sat þarna stórlega lemstruð, skrámuð og marin eftir átökin, beltin og loftpúðana, sem vafalaust hafa þó bjargað lífi mínu. Og auðvitað var ég í taugaáfalli. Það er skrýtið á svona augnabliki sem er þó bara örskotsstund hvað maður getur hugsað margt og ekki í samhengi. Ég hugsaði auðvitað til barnanna og  öl- skyldunnar en líka gat mér dottið í hug önnur eins vitleysa eins og að ergja mig yfi r því að núna færi ég að enda æv- ina þarna og gæti ekki einu sinni nýtt eftirlaunin mín sem ég ætlaði að taka þegar ég yrði sextug og kæmist á 95 ára regluna. Ég var hneyksluð á sjálfri mér á eftir, en líklega er ekkert rökrétt á svona stundum. Vesalings sölumaðurinn horfði upp á þetta allt saman þar sem hann stóð við bílinn sinn og honum hefur líklega ekki liðið vel. Hins vegar er líklegt að ef vörubíllinn hefði lent á honum hefði hann drepið hann, því hann var að bjástra við bílinn. Þarna hefur því bílstjóri vörubílsins líklega bjargað mannslífum með þessari ákvörðun og réttum viðbrögðum. Ég var ansi illa farin eftir þetta slys, rifbeinsbrotin, illa skrámuð á hnjám og marin um allan líkamann og var lengi að jafna mig eftir það. Bíllinn alveg gjörónýtur, en það skipti þó minnstu. En þrátt fyrir að líkamlegu áverkarnir væru sýnilegri og sárari í fyrstu, var það samt áfallið sem hafði mest eft- irköst. Ég gat ekki hugsað mér þetta lengur, að þurfa að keyra þessa erfi ðu  allvegi að vetrarlagi næstum hvernig sem viðraði, til viðbótar við það álag sem fylgdi starfi nu. Þó þetta væri eina alvarlega slysið sem ég lenti í á þessum ferðum var álagið mikið. Ég hafði oftar en einu sinni farið út af veginum, fest bílinn í skafl i og þurft að bíða eftir björgunarsveit eða öðrum hjálpar- mönnum. Fékk ég því að breyta um starfsvett- vang og hafa vinnuaðstöðu hérna á Bíldudal frá haustinu 2016 og þannig hefur það verið síðan. Mér fi nnst það dásamlegt og auðvitað miklu nær því sem hægt er að telja eðlilegt. Að lokum tel ég mig vera heppna að hafa fengið að fara í þessa aðgerð og þar með fá bót á því sem þá var komið fram. Mér fi nnst ég vera öruggari á eftir, því nú er ég undir reglubundnu eftirliti sérfræðilæknis og veit ýmislegt um hjartasjúkdóma og forvarnir gegn þeim. Pétur Bjarnason skráði. Vörubíll sömu gerðar og lenti á bíl Nönnu Sjafnar. Þetta er ekki árennilegt ferlíki að mæta í hálku. Blóðþrýstingsmælar • Sjálfvirkur mælir • Auðveldur í notkun • Minni fyrir 30 mælingar • Nemur hjartsláttaróreglu (PAD) • Íslenskar leiðbeiningar 500 kr. af hverjum mæli rennur til styrktar Hjartaheilla Fást í næsta apóteki! Microlife BP A6 - Vnr: 100101Microlife BP A2 - Vnr: 100099 • Sjálfvirkur mælir • Stilling fyrir tvo notendur • Nemur gáttatif (AFIB) • Val um eina mælingu eða þrjár mælingar í röð (MAM) • Íslenskar leiðbeiningar Microlife-blodthrystingsmaelir copy.pdf 1 18.2.2017 09:11

x

Velferð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.