Velferð - 01.06.2019, Side 16

Velferð - 01.06.2019, Side 16
16 Málgagn Hjartaheilla Við þetta varð hún eitthvað hugsi og svo sagði hún: „Það er kannske rétt að ég sendi þig í ómskoðun, svona til ör- yggis.“ Jú, ég var svo sem alveg til í það. Svo fór ég í ómskoðun og síðan heim samdægurs. Læknirinn hringdi í mig morguninn eftir og sagði að ég yrði að koma strax suður aftur, því það hefðu komið í ljós stífl ur í kransæðum í ómskoðuninni. Þannig að ég dreif mig suður aftur og var lögð beint inn. Morguninn eftir var ég send í þræðingu. Mér fannst þetta allt heldur einkennilegt, því eftir þræðinguna var mér bara rúllað fram á gang og þar beið ég og vissi ekkert hvað var að gerast. Svo eftir nokkra stund kom þarna læknir og ég spurði hann hvað væri um að vera og hvað ætti að gera við mig. Hann sagði: „Ja, þú átt að fara beint í aðgerð því þú ert með 90% stífl u í kransæðum“. Svo labb- aði hann í burtu en ég lá þarna í sjokki yfi r þessum tíðindum og leið satt að segja ekki vel. Aðgerðin var undirbúin fl jótlega eftir það, en hún fólst í því að það voru teknar æðar úr hægra fæti og þeim skipt út fyrir hinar stífl uðu að mér skilst. Það voru  órar kransæðar sem voru meðhöndlaðar þannig. Aðgerðin tók sinn tíma en gekk vel og allt eins og til stóð. Á meðan ég lá og var að jafna mig eftir aðgerðina, komu tvisvar læknar með hóp af læknanem- um og báðu mig að lýsa aðdragandan- um, hvernig einkennin hefðu verið fyr- ir aðgerðina og hvernig mér hefði liðið, til sannindamerkis um að einkenni hjá konum væru allt önnur en hjá körlum. Ég var notuð svolítið sem dæmi um þetta, svo þeir yrðu meðvitaðri um þetta læknanemarnir. Það vakti sér- staka athygli að ég var einkennalaus, kom vel út í áreynsluprófi og var ekki með verki út í handleggina, eins og var talið dæmigert, hafði stundað göngur og það eina sem ég hafði tekið eftir var þessi þyngslatilfi nning fyrir brjóstinu. Eftir hefðbundinn tíma var ég útskrifuð af sjúkrahúsinu og fór heim. Þessi saga sem ég sagði lækninum, um möguleika Bílddælinga sem fengju hjartaáfall, varð til þess að ég fékk frek- ari rannsóknir. Þær leiddu í ljós að lík- lega hefði ég fengið hjartaáfall á Bíldu- dal þá um sumarið eða veturinn eftir, hefði ekkert verið gert, og þá er ekki að vita hvernig hefði farið. Ég bar þessa sögu mína undir yfi rlögregluþjóninn á Patreksfi rði, en þeir hafa annast sjúkra- fl utninga, og hann sagði þá alveg vera meðvitaða um þessa hættu. Nokkru fyrr en þetta var greindist maðurinn minn, Jón Rúnar Gunnars- son, með erfi ðan sjúkdóm, MSA, sem er svipaður og MND, og veikindin drógu hann að lokum til dauða árið 2012. Við eigum tvær dætur, Önnu Vilborgu og Lilju Rut. Þær búa báðar á Bíldudal með  ölskyldur sínar. Nokkru eftir aðgerðina hjá mér fórum við Rúnar bæði á Reykjalund í endur- hæfi ngu í fi mm vikur og áttum þar mjög góðan tíma, sem mér fannst afar gagnlegur fyrir mig og ég var miklu hressari þegar ég kom þaðan. Aðstaða þar, aðbúnaður og starfsfólk reyndist okkur afar vel. Fyrst eftir aðgerðina var ég frekar dugleg að fara í gönguferðir og passaði mjög vel upp á mataræðið, en með tímanum hefur slaknað heldur á þessu og maður rennur inn í daglegar venjur. Samt fi nnst mér að ég hugsi betur um heilsuna og næringu en ég gerði áður en þetta varð og ég reyni að stunda gönguferðir eftir föngum. Mætti samt vera duglegri. Ég hitti Nanna Sjöfn með eiginmanni sínum Rúnari Gunnarssyni. Fjölskyldan fyrir meira en áratug. Ásthildur Sturludóttir færir Nönnu Sjöfn viðurkenningu frá Vesturbyggð við skólaslit 2016.

x

Velferð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.