Velferð - 01.06.2019, Side 7

Velferð - 01.06.2019, Side 7
Velferð 7 Þórir Guðbergsson, félagsráðgjafi , kennari og rithöfundur tók við ritstjórn árið 2007 og gegndi því starfi út árið 2010. Þórir hafði áður verið ritstjóri tímarita, og bókafl okks sem út kom um margra ára skeið og skrifað barna- og unglingabæk- ur. Þórir lét af starfi ritstjóra í árslok 2010. Þá komu út hjá félögum sem höfðu með aðsetur í SÍBS húsinu og voru hluti af SÍBS alls fi mm tímarit og fréttabréf, tvisvar, þrisvar á ári. Eftir umræður innan og á milli félag- anna var ákveðið að leita samstarfs þeirra um sameiginlega blaðaútgáfu. Voru haldnir allmargir fundir um málið og það rætt fram og til baka, en ekki náðist samstaða um þetta sam- starf og var horfi ð frá því og hver sinnti sínu áfram. Sveinn Guðmundsson tók við ritstjórn Velferðar árið 2011. Hann var þá stjórnarmaður Hjartaheilla en var síður en svo óreyndur í félagsmálum og ritstörfum. Hann hefur verið framkvæmdastjóri Landssambands sumarhúsaeigenda um langt árabil og hefur ritstýrt og gefi ð út Sumarhúsahandbók- ina á vegum þess. Sveinn var ritstjóri til ársins 2014 að hann lét af starfi . Sveinn tók við embætti formanns Hjartaheilla árið 2015. Pétur Bjarnason tók við ritstjórninni árið 2015. Hann var ekki ókunnugur starfi Hjartaheilla, því hann var fram- kvæmdastjóri SÍBS og Happdrættis SÍBS frá árin 2000 til 2011 ásamt því að ritstýra SÍBS blaðinu á sama tíma. Pétur og Ásgeir Þór Árnason, framkvæmdastjóri Hjartaheilla höfðu starfað saman að ýmsum málefnum samtakanna um árabil, auk þess sem Pétur hafði skráð sögu Hjartaheilla, bæði í bókinni Sigur lífsins, SÍBS í 75 ár, 1938-2013 og í sérstöku afmælisblaði Velferðar árið 2014. Pétur hefur gegnt starfi ritstjóra Velferðar síðan. Eins og að framan segir þá er Velferð mjög gagnleg sem heimilda- og uppfl ettirit rit um sögu og starf Hjartaheilla. Blaðið er nú komið á vefi nn www.timarit.is og þar er hægt að lesa blaðið frá upphafi . og afrita efni yfi r í ritvinnsluskjöl Rétt þykir að geta þess hér, í yfi rliti um útgáfumál Hjarta- heilla, að einnig hefur verið gefi ð út mikið af fræðsluefni á vegum samtakanna ásamt því að styðja slíka útgáfu hjá öðrum. Ein fyrsta útgáfa LHS var kynningarrit um samtökin og hjartasjúkdóma, almenningi til upplýsingar. Þá var gefi ð út ritið Hjartasjúkdómar, varnir, lækning, endurhæfi ng, árið 1992. Það hefur síðan verið endurútgefi ð á nokkurra ára fresti og efnið uppfært. Eru ljón í veginum hefur verið einnig vinsælt rit. Samtökin hafa gefi ð út myndbandið Hjartans mál svo og Hjartabókina sem gefi n var til Hjartadeildar Landspítala háskólasjúkrahúss við Hringbraut og hefur ver- ið uppfærð eftir þörfum. Þá má nefna myndbönd svo sem Grettir Þroskasaga hjartasjúklings, Með hjartað úr takti, fræðslumynd um gáttatif, Lífæðar hjartans, fræðslumynd um hjarta- og æðasjúkdóma, Bara ég hefði aldrei byrjað, sem  allar um afl eiðingar reykinga. Auk þess hafa Hjartaheill komið að gerð fl eiri fræðslumynda með öðrum. Horfa má á allar þessar myndir á vefsíðu Hjartaheilla http://hjartaheill. is/fraedsla-17/fraedslalink en þar eru líka margar fræðandi greinar. Heimasíða samtakanna www.lhs.is kom til sögunnar nokkru fyrir síðustu aldamót og hefur verið að sækja í sig veðrið alla tíð síðan sem upplýsingamiðlun og fréttatorg. Nafn- breyting varð á síðunni eftir 2004 og heitir hún nú: www.hjartaheill.is. MÁLGAGN OG FRÉTTABRÉF HJARTAHEILLA 30. árg. 2. tbl. desember 2018 MÁLGAGN OG FRÉTTABRÉF HJARTAHEILLA 22. árg. 2. tbl. desember 2010 MÁLGAGN OG FRÉTTABRÉF HJARTAHEILLA 25. árg. 2. tbl. október 2013 Sveinn Guðmundsson var ritstjóri 2011-2014. Hann er nú formaður Hjartaheilla. Pétur Bjarnason hefur verið ritstjóri Velferðar frá árinu 2014. Hjartaheill hefur staðið að útgáfu fræðsluefnis allan þann tíma sem samtökun hafa starfað. Þórir Guðbergsson, ritstjóri 2007-2010.

x

Velferð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.