Velferð - 01.06.2019, Side 17
Velferð 17
hjartalækninn minn, Ugga Agnarsson,
einu sinni á ári og hann fylgist með
mér og tékkar á heilsufarinu, sem veitir
mér visst öryggi.
Heilsugæslumál á Bíldudal eru þannig
að sækja þarf nær alla þjónustu til
heilsugæslunnar á Patreksfi rði. Lækn-
ir kemur núna einu sinni í viku til
Bíldudals og er með viðtalstíma á
fi mmtudögum. Eftir sem áður er öll
ly aafgreiðsla og önnur þjónusta á
Patró. Hjartastuðtæki er komið núna á
þessa stofu, og það á að vera aðgengi-
legt. En eins og ég sagði áðan tekur það
óhjákvæmilega nokkurn tíma að veita
bráðaþjónustu frá Patreksfi rði.
Sjúkraþjálfun er bara á Patreksfi rði
og mismunandi hvað er í boði hverju
sinni. Svo er yfi r tvo allvegi að fara
og ekki víst að fólk sé í standi til þess
að keyra þangað, nýkomið úr aðgerð.
Hér á Bíldudal er lítil aðstaða fyrir þá
sem þurfa endurhæfi ngu eða viðhalds-
þjálfun. Við hefðum til dæmis kosið
að hafa sundlaug hérna og vel búinn
tækjasal til að æfa í. Ég get samt farið á
göngubretti í íþróttahúsinu og geri það
oft. Næsta sundlaug er í Tálknafi rði en
á veturna er fólk ekki að stunda hana
reglulega og reyndar ekki á sumrin
heldur, því þetta eru 40-50 kílómetrar
fram og til baka, og yfi r háan allveg að
fara. Ég reyni samt að fara þangað eins
oft og ég get, því sund gerir mér mjög
gott. Svo fi nn ég mér ýmislegt að gera
sem virkar vel og er slakandi. Ég sauma
út og er líka svolítið að mála og föndra
með ýmislegt. Þetta er ágætt og gefur
mér slökun og hugarró. Útsaumur
getur alveg verið á við hugleiðslu. Ég bý
hér alveg niður við sjó með dásamlegt
útsýni og rólegu umhverfi og fer oft í
öruferðir hér um nágrennið.
Ég var ekkert að hugsa um það á þeim
tíma, en eftir á að hyggja þá sé ég að ég
hafði líklega of lítinn tíma til að sinna
sjálfri mér þegar ég kom heim eftir
aðgerðina og því tók það mig lengri
tíma en annars hefði verið að ná fullri
heilsu aftur. Í raun var maðurinn minn
sjúklingurinn frekar en ég. Ég náði
samt alveg ágætri heilsu þrátt fyrir allt,
en það tók nokkurn tíma.
Vinnan var áfram mikil næstu ár á eftir,
en nú hefur það breyst, því ég er farin
að taka hálf eftirlaun og er í hálfu starfi
sem fræðslustjóri Vesturbyggðar með
vinnuaðstöðu að mestu hér á Bíldudal.
En af því að ég var að tala um að-
stöðuleysi og fl eira hér á staðnum þá
er ýmislegt annað sem bætir það upp.
Samfélagið hér er ótrúlega hjálplegt
og sterkt og það gefur manni mikið að
fi nna hlýjuna sem umvefur mann það-
an. Ég komst t.d. að því, að á meðan ég
beið eftir aðgerðinni, þá bárust fréttir
vestur um að hún gæti brugðist til
beggja vona og ástandið væri alvarlegt.
Þá kom öldi manns saman í kirkjunni
hér og bað fyrir mér og því að allt
gengi vel. Það eru fl eiri dæmi um sam-
hug af þessu tagi þegar eitthvað bjátar
á. Þetta fi nnst mér afar dýrmætt og
gefur mér mikið.
Ég lenti í rosalegu bílslysi 2016, sem
varð til þess að ég hugsaði þetta allt
upp á nýtt, álagið, vinnuna og ferðalög-
in sem henni fylgdu. Ég var á leið heim
frá Patreksfi rði og það var blindbylur
og hálka. Ég fór heim í fyrra lagi því
veðrið var versnandi og yfi r tvo all-
vegi að fara. Þegar ég var komin upp
Mikladalinn keyrði ég fram á bíl sem
var á undan mér, þetta var sölumaður
sem var líklega ekki vanur svona að-
stæðum og hann hafði fest sig í þarna
í skafl i á öfugum vegarhelmingi. Ég
stoppaði góðan spöl fyrir aftan hann,
sat bara í bílnum, til þess að sjá hvað
yrði úr þessu. Hann stóð þarna fyrir
utan bílinn og var eitthvað að krafsa
í snjóinn að mér sýndist. Í því kemur
vörubíll með risastóran tengivagn nið-
ur brekkuna með fullfermi af laxi, sem
er 40 tonn. Bílstjórinn sá bílinn þarna
fastan á öfugum vegarhelmingi, gat
ekki stöðvað og skellti sér yfi r á hinn
helming vegarins til að forðast árekstur
við þann sem var fastur. En ég beið í
kófi nu á réttum vegarhelmingi neðar í
brekkunni og vörubílstjóranum tókst
ekki að stöðva né fara yfi r á réttan
vegarhelming, og lenti því beint fram-
an á bílinn hjá mér. Þetta eru risastórir
bílar með langan tengivagn og alls eru,
held ég, 22 hjól undir svona ferlíki.
Höggið var gífurlegt, en það hjálpaði
þó að undir snjóþekjunni á veginum
var fl ughált. Bíllinn minn fl aug því
afturábak niður brekkuna og það hefur
eitthvað dregið úr högginu, sem var
þó mikið. Svo reyndi bílstjórinn að ná
valdi á bílnum og koma honum yfi r á
réttan vegarhelming fram hjá mér. Við
það slóst tengivagninn í hliðina á bíln-
um mínum og henti honum langt út
fyrir veg, sem betur fer í skafl inn þar,
Nanna Sjöfn með dætrum sínum, Önnu Vilborgu og Lilju Rut, í þjóðbúningum og á gufupönkhátíð.