Velferð - 01.06.2019, Side 9
Velferð 9
Mikilvægt er að fólk kynni sér hvar tæk-
in er að fi nna, því það getur skipt sköp-
um um björgun. Um það vitna ölmörg
dæmi sem ég þekki sjálfur og ég hef
tekið á móti ótrúlega mörgum sjúkling-
um sem hafa fengið lífgjöf vegna réttra
viðbragða og oft hafa hjartastuðtækin
líklega gert gæfumuninn.
Tækin tala við okkur
Þessi tæki eru reyndar ótrúlega auð-
veld í notkun. Þegar þau hafa verið
opnuð og sett í gang byrja þau yfi r-
leitt að tala og leiða fólk með öryggi
í gegnum ferlið. Venjulega eru tveir
límpúðar með tækinu, sem eru settir
á sjúklinginn og alltaf á bera húð. Á
þeim sést með myndum hvar á að setja
þá og tækið gefur fyrirmæli um þetta.
Jafnframt því sem farið er að leiðbein-
ingum þarf stöðugt að halda áfram að
hnoða. Best er, ef tveir eru saman, að
annar hnoði áfram meðan hinn sinnir
tækinu. Tækið ákveður hvort það tel-
ur að sjúklingurinn sé í „stuðanlegum
takti“. Ef tækið metur að svo sé, biður
það nærstadda að færa sig ær og gefur
rafstuð. Sum tæki biðja reyndar um að
ýtt sé á takka til að virkja stuðið. Það
er þá rauður blikkandi takki og tækið
segir hátt og skýrt: „Ýtið á takkann“.
Flest stuðtæki hér tala íslensku, nema
t.d. þau sem eru í fl ugvélum og öðrum
stöðum sem telja má alþjóðlega, þar
er tungumálið yfi rleitt enska. Tækin
veita einnig leiðbeiningar með hnoð og
blástur og leiða viðkomandi í gegn um
ferlið. Oft er merki þar sem þessi tæki
eru til staðar, með grænu hjarta með ör
í gegn um, sjá mynd.
Þekkjum staðsetningu
tækjanna
Endurhæfi ngarráð hefur um nokkurra
skeið unnið að skrásetningu þessara
tækja, þannig að hjá Neyðarlínunni
112 sé ávallt vitneskja um hvar næsta
tæki sé að fi nna, komi hjálparbeiðni
til þeirra. Það getur skipt miklu um
endurlífgun að geta leiðbeint þeim sem
koma fyrstir á staðinn um það hvar
næsta tæki sé staðsett. Í nágrannalönd-
um okkar, t.d. Danmörku og Svíþjóð
fá menn, sem hafa farið á námskeið í
endurlífgun og látið skrá sig sem hjálp-
arliða, boð um að koma ef þeir eru
nálægt þeim stað sem hjálparbeiðni
hefur komið frá, og jafnframt fylgja
www.erc.edu | info@erc.edu
Útgefið Október 2015 af Evrópska endurlífgunarráðið vzw, Emile Vanderveldelaan 35, 2845 Niel, Belgía
Höfundaréttur: © Evrópska endurlífgunarráðið vzw Vörutilvísun: Poster_BLS_AED_Algorithm_ICE_20160407
Grunnendurlífgun
og sjálfvirkt
hjartastuðtæki
EUROPEAN
RESUSCITATION
COUNCIL
Kanna viðbrögð n Hrista varlega
n Kalla hátt “Er í lagi með þig?”
Ef engin viðbrögð eru til staðar n Opna öndunarveg og athuga öndun
Ef engin viðbrögð eru til
staðar og öndun óeðlileg Ef öndun er eðlileg
n Hringja í 112 og senda einhvern til
að sækja sjálfvirkt hjartastuðtæki
Setja í læsta hliðarlegu
n Hringja í 112
n Halda áfram að fylgjast með því hvort
öndun er eðlileg
Hefja strax hjartahnoð
n Setja hendur á miðjan brjóstkassa
n Hnoða 30 sinnum
- Þrýsta ákveðið a.m.k. 5 cm niður en
ekki meira en 6 cm
- Hnoða að lágmarki 100 sinnum á mínútu en
ekki hraðar en 120 sinnum á mínútu
n Ef þú ert þjálfaður skaltu veita öndunarhjálp
samhliða hjartahnoði, annars halda áfram
með hjartahnoð eingöngu
- Setja varir yfir munn viðkomandi
- Blása þar til brjóstkassi lyftist
- Blása aftur þegar brjóstkassi hefur hnigið
n Halda áfram með hnoð og blástur 30:2
Um leið og hjartastuðtæki kemur
- kveikja á því og tengja rafskaut
n Fylgja fyrirmælum tækisins
n Festa annað rafskautið í vinstri holhönd
n Festa hitt rafskautið undir hægra viðbein, næst
bringubeininu
n Ef fleiri en einn björgunarmaður; ekki trufla
hjartahnoð
Ef ábending fyrir rafstuði n Fara frá og gefa rafstuðn Halda áfram endurlífgun
Fylgdu fyrirmælum tækisins
Halda áfram endurlífgun nema þú sért viss um
að endurlífgun hafi borið árangur og öndun sé eðlileg