Velferð - 01.06.2019, Blaðsíða 5
Velferð 5
Stofnfundur Landssamtaka hjartasjúklinga (LHS)var haldinn
í Domus Medica 8. október 1983. Mættu til fundarins 230
stofnfélagar og var það umfram bjartsýnustu vonir. Fyrstu
stjórn LHS skipuðu Ingvar Viktorsson, formaður, Alfreð G.
Alfreðsson varaformaður, Björn Bjarman ritari, Jóhannes
Proppé gjaldkeri og Sigurveig Halldórsdóttir. Lög fyrir sam-
tökin voru samþykkt á stofnfundinum.
Markmið LHS var frá upphafi að standa fyrir áröfl un, til
þess að vinna að markmiðum samtakanna með fræðslu
um hjartasjúkdóma, upplýsingaöfl un og miðlun, styrkja
menntun sérfræðinga og að efl a samvinnu við önnur samtök
hjartasjúklinga. Í upphafi var hafi st handa um áröfl un, fyrst
með sölu minningarkorta, sem gekk strax vel. Næst var safn-
að fé til að kaupa hjartasónartæki og þá hjartaþræðingar-
tæki, og síðan tók hvert verkefni við af öðru.
Fljótlega eftir stofnun samtakanna var tekið upp kynningar-
og upplýsingastarf í húsnæði Hjartaverndar að Lágmúla 9.
Var samstarf þessara tveggja samtaka mjög gott að þessari
starfsemi. LHS kom sér upp eigin skrifstofuaðstöðu 1985 í
Hafnarhúsinu við Tryggvagötu. Þegar hér var komið sögu
var talið brýnt að koma málefnum hjartasjúklinga betur á
framfæri og fá að gang að prentmiðli, sem þá var helsti og
næstum eini vettvangurinn til kynningar- og upplýsinga-
starfs.
Blaðið Reykjalundur, sem gefi ð var út af SÍBS, birti grein
eftir Ingólf Viktorsson árið 1984 um fyrstu ár LHS og fl jót-
lega eftir það var LHS boðið að vera þáttakandi í útgáfu
SÍBS frétta og birta þar efni um starfsemi sína. Blaðið yrði
sent ókeypis til allra félaga SÍBS og LHS. Þessi boði var tekið
með þökkum, enda töldu landssamtökin sig enn ekki hafa
bolmagn til eigin útgáfu. Var fréttapistill frá LHS fastur liður
í SÍBS fréttum á næstu árum, sem þar með bárust til félags-
manna.
Á aðalfundi 1985 var samþykkt
að ráða starfsmann á skrif-
stofu samtakanna. Var Hallur
Hermannsson ráðinn og jafn-
framt tók hann sæti í ritnefnd
SÍBS frétta. Var sá vettvangur
nýttur eftir föngum til að færa
félagsmönnum fréttir af starfi
LHS. Samstarfi ð við SÍBS um
útgáfu SÍBS frétta gekk mjög vel
og var LHS hagstætt. Þar var
opin leið til að koma fréttum af
starfseminni til félagsmanna,
en þeim fór ört ölgandi, voru
orðnir 1.400 á aðalfundi 1989. Þar að auki hafði LHS ekki
þurft að bera neinn kostnað af útgáfunni. En þrátt fyrir allt
var þetta ekki sérstakt málgagn landssamtakanna og SÍBS
var aðalútgefandi SÍBS frétta. Því var ekki óeðlilegt að fl eiri
möguleikar yrðu skoðaðir.
Á fi mm ára afmælisári LHS kom upp hugmynd um að gefa
út eigið blað í tilefni afmælisins. Blaðið hlaut nafnið Velferð
og kom fyrst út árið 1989. Sú útgáfa gekk mjög vel og var
ákveðið að halda henni áfram. Velferð var strax ætlað að vera
málgagn og fréttabréf samtakanna og var blaðið frá upphafi
ármagnað með auglýsingum, og sent öllum félagsmönnum
og velunnurum, auk þess sem því var dreift á sjúkrastofnanir
og biðstofur. Skemmst er frá því að segja að blaðið Velferð
hefur komið út óslitið síðan og alla tíð gegnt því hlutverki
sem því var í upphafi ætlað.
Þannig var blaðið strax gagnleg fréttaveita og einnig var afl -
að ár með auglýsingum í blaðið. Má með réttu segja að það
hafi aldrei verið baggi á samtökunum, sem nú heita Hjarta-
heill, heldur þvert á móti stutt árhagslega við reksturinn
auk þess að vera fréttaveita og upplýsingamiðill. Allt frá upp-
hafi hefur verið árlegur ágóði af útgáfunni.
Pétur Bjarnason
Velferð í þrjátíu ár
Fyrstu fréttir af LHS voru í
SÍBS fréttum hjá SÍBS.