Velferð - 01.06.2019, Blaðsíða 6
6 Málgagn Hjartaheilla
Fyrsta tölublaðið var 20 síður og ritstjóri var Alfreð Georg
Alfreðsson. Blaðið var veglegt og að hluta prentað í lit og
þannig var það fyrstu árin, en svo tók fl jótlega við litprentun
á öllu blaðinu, enda hafði tækninni fl eygt fram á þessum
tíma. Í ritstjórnargrein þessa fyrsta tölublaðs er í raun fram-
tíðarstefna blaðins mörkuð. Þar segir m.a.:
Tilgangur blaðsins er að vera málgagn og frétta-
bréf landssamtakanna, þ.e. að koma á framfæri
fræðslu um hjarta- og æðasjúkdóma og helstu
nýjungum í meðferð á þeim, miðla hvers konar
upplýsingum um starfsemi samtakanna og að
vera tengiliður stjórnarinnar við hina almennu
félagsmenn víðs vegar um landið. [...]
Áætlað er að blaðið komi út 2svar3svar á ári og
mun það verða sent ókeypis til allra félagsmanna
og velunnara samtakanna, auk þess sem það mun
gefi ð öllum sjúkrahúsum landsins, heilsugæslu-
stöðvum, læknastofum, apótekum og fl eiri stofn-
unum og aðilum, sem kunna að óska eftir því að
það liggi frammi til lesturs. Fjármögnun blaðsins
er fyrirhuguð með auglýsingum og sölu styrkt-
arlína, og er þetta fyrsta tölublað þannig ár-
magnað.
Skemmst er frá því að segja að þessi áform sem ritstjórinn
setur fram í leiðara hafa gengið fyllilega eftir. Næsta tölublað
var einungis órar síður en þrjú tölublöð komu út þetta
fyrsta ár. Hallur Hermannsson tók við ritstjórn með jóla-
blaðinu 1990 en stefna ritstjórnar var óbreytt. Yfi rleitt var
reynt að hafa fræðigreinar frá læknum eða öðru heilbrigð-
isstarfsfólki í blaðinu, allað um mataræði og hollustu, þá
voru reynslusögur og frásagnir af ýmsum toga og fréttir af
áröfl un og félagsstarfi . Á þessum árum var útlit blaðsins
ekki óáþekkt því sem það hefur verið undanfarin ár, með
fallega litmynd á forsíðunni og yfi rleitt ekkert annað efni
þar, nema jóla-eða hátíðakveðja þegar það átti við. Á 10 ára
afmæli LHS 1993 var gefi ð út veglegt 50 síðna litprentað af-
mælisblað. Þar var ri uð upp saga landssamtakana og öldi
góðra greina var í blaðinu.
Sigurjón Jóhannsson tók við ritstjórn af Halli Hermannssyni
1995, en hafði þá verið í ritnefnd blaðsins um árabil. Sigur-
jón var reyndur blaðamaður og kenndi ölmiðlun í fram-
haldsskóla svo hann var á heimavelli, enda átti hann fyrir
höndum langan og farsælan starfsferil sem ritstjóri. Fljótlega
breytti Sigurjón forsíðunni og gerði hana upplýsinga- og
fréttasíðu með fl eiri myndum en áður. Sigurjón lagði mikla
áherslu á fréttir frá félögunum og af starfsemi landssamtak-
anna, sem hefur reyndar allan tímann verið sterkur þáttur
í útgáfu blaðsins. Fyrir bragðið er þar að fi nna traustan
heimildabanka um sögu samtakanna og viðfangsefni þeirra í
áranna rás.
Eggert Skúlason, frétta og blaðamaður tók við ritstjórn Vel-
ferðar af Sigurjóni árið 2002. Á árunum 1996 – 2005 komu
út 24 tölublöð á ári, oftast þrjú, að vori, hausti og jólablað.
Fljótlega eftir að Eggert tók við eða árið 2004 fékk blaðið það
yfi rbragð á forsíðu sem hefur haldist síðan, ein mynd sem
fl æðir yfi r alla forsíðuna og yfi rleitt ekki annað efni, nema
þá yfi rlit um efnisinnihald. Frá árin 2006 hefur Velferð ávallt
komið út tvisvar á ári, blað að vori og annað ýmist í nóv-
ember eða í desember. Þess má geta að frá árinu 2004 varð
breyting á nafni Landssamtaka hjartasjúklnga, LHS, og heita
þau nú Hjartaheill.
Alfreð G. Alfreðsson var
fyrsti ritstjóri Velferðar.
Fyrsta tbl. 1999. Útlitið
dæmigert á þeim tíma.
Sigurjón Jóhannsson, ritstjóri 1995-2002.
Eggert Skúlason, ritstjóri 2002-2007.
Hallur Hermannson, ritstjóri 1990-1995.