Velferð - 01.06.2019, Qupperneq 10

Velferð - 01.06.2019, Qupperneq 10
10 Málgagn Hjartaheilla skilaboð um hvar næsta hjartastuð- tæki sé að fi nna. Það er aðallega tvennt sem bjargar sjúkling um sem fara í hjartastopp. Það er að fá hjartahnoð, að það sé gert fl jótt og rétt og ekki vera hræddur um að beita hnoðinu, því það er í raun engar líkur á að maður geti gert skaða. Mögulega geta brotnað rifbein, sem er bara minni háttar mál í stóra samhenginu. Alls ekki hika við að byrja að hnoða og gera það af þrótti eftir því sem hægt er. Hitt atriðið er að fá rafstuðtæki sem allra fyrst. Fyrstu viðbrögð mikilvæg Þetta eru fyrstu nauðsynlegu viðbrögð in og þau geta skipt sköp- um. Síðan koma yfi rleitt sérhæfðir sjúkra fl utningamenn eða heilbrigðis- starfsfólk á staðinn. Ef sjúklingurinn hefur náðst í gang er hann fl uttur á sjúkrahús og þá hefst næsta stig með- ferðarinnar, sem er sérhæfð endurlífg- un sem getur innifalið ýmsar ly agjafi r og t.d. hjartaþræðing ef grunur leikur á að orsökin sé kransæðastífl a. Oft er tekin sneiðmynd af höfði til að ganga úr skugga um að ekki sé blæðing í heil- anum. Síðan hefst gjörgæslumeðferð sjúklings ins, sérstaklega ef um er að ræða meðvitundarleysi. Það er alltaf ótti við skemmdir á heila, því hann þol- ir mjög stuttan tíma án blóðfl æðis. Sem dæmi má nefna, að við blóðtappa í heila stöðvast fl æði í einni æð, sem er mjög alvarlegt, en við hjartastopp stöðvast allt blóðfl æði til heilans. Sé ekkert að gert er stutt í óafturkræfar skemmdir. Hlutverk hjartahnoðsins er ekki síst að halda blóðfl æði til heilans. Ef tekst að koma hjartanu í takt með rafstuði þá tekur það sjálft við dælingunni, sem er auðvitað það æskilegasta. Kæling hjálpar Oft hefur orðið einhver skerðing, því sjúklingar geta verið meðvitundarlaus- ir í einhvern tíma. Þá hafa verið reyndar ýmsar aðferðir til að minnka skaða. Ein aðferðin er t.d. kæling, að kæla sjúk- linginn allan. Það sést mjög greinilega að þegar heilinn er kældur þá minnkar orkunotkun heilans sem getur numið allt að 10% fyrir hverja gráðu sem kælt er. Þannig er maður að hvíla heilann á meðan hann er að jafna sig. Ennþá er nokkuð umdeilt hversu mikil kæling er heppileg og hefur verið talað um allt frá 33° upp í jafnvel 36°. Öll kæling virðist þó hjálpa og það er afar mikilvægt að geta haft hitastjórnun á heilanum eftir hjartaáfall. Eitt frægasta dæmið um kælingu er af kollega mínum, konu sem var í NorðurNoregi ásamt fl eiri læknum að kenna endurlífgun. Þau fóru á skíði í frítíma sínum þar, hún féll í á og kóln- aði niður í 13,6°, sem er eitt lægsta þekkta hitastig sjúklings sem þó bjarg- aðist. Líkur benda til þess að hún hafi verið látin í allt að tveimur tímum, en endurlífgun tókst vel og líklegt var talið að þessi mikla kæling hafi bjargað heilastarfsemi hennar. Þessi saga sem er afar merkileg verður ekki rakin hér frekar, en þessi kona náði góðri heilsu og hefur m.a. komið hingað til lands og fl utt fyrirlestur hér. Að lokum vil ég árétta nokkur atriði. • Hringið strax í 112 ef hjálpar er þörf • Ekki hika við að beita hjartahnoði af krafti og festu • Sækið endurlífgunarnámskeið ef þið hafi ð möguleika á því • Kynnið ykkur hvar hjartastuðtæki eru staðsett nálægt ykkur • Munið alltaf að fyrstu viðbrögð geta bjargað mannslífi Sími 555 3100 www.donna.is Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Skjót fyrstahjálp, hjartahnoð og hjartastuðtæki björguðu lífi mínu Ég lifði af

x

Velferð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.