Velferð - 01.06.2019, Síða 21
Velferð 21
17. til 24. ágúst fara fram heimsleikar líff æraþegar í Newcastle -
Gateshead og munu tveir íslenskir keppendur taka þátt að þessu
sinni.
Eru þetta órðu leikarnir þar sem Íslendingar taka þátt. Við tókum í
fyrsta skipti þátt í þessum leikum árið 2013, en þá voru þeir haldnir
í Durban í SuðurAfríku. Þar voru þrír Íslendingar meðal keppenda
og náði Laufey Rut Ármannsdóttir að krækja sér í verðlaun í 5 km.
götuhlaupi. Einnig tóku þá þátt þeir Björn Magnússon og Kjartan
Birgisson, kepptu þeir báðir í golfi auk þess sem Kjartan keppti í 5 km
og 100 metra hlaupum og badminton.
Næstu heimsleikar líff æraþega voru haldnir 2015 og fór Kjartan Birg-
isson þá einn til Argentínu, nánar til tekið til Mar del Plata og keppti í
golfi . Síðast voru leikarnir svo haldnir 2017 í Malaga á Spáni og aftur
fór Kjartan einn og tók þátt í golfi .
Nú í sumar eru Kjartan og Hjörtur Lárus Harðarson skráðir til leiks í
golfi og munu keppa í bæði einstaklings og liðakeppninni.
Það á að vera áhugi og spenna meðal líff æraþega að fá að taka þátt í
þessum leikum og nota tækifærið til að stunda íþróttir eftir ígræðslu.
Því viljum við kynna þennan möguleika á að taka þátt í skemmtilegu
íþróttamóti og hitta jafningja sína á þessum vettvangi.
Lög um „ætlað samþykki“ hafa tekið gildi
Þann 1. janúar 2019 tóku gildi á Íslandi ný lög um líff æragjafi r svo-
kallað ætlað samþykki til líff æragjafa. Með þessum lögum er gert ráð
fyrir að allir Íslendingar séu líff æragjafar nema þeir hafi tekið annað
fram sérstaklega. Eftir sem áður hvetjum við alla til að taka afstöðu
til líff æragjafa og ræða við sína nánustu um vilja sinn til málsins. Það
er nefnilega þannig að næstu aðstandendur eru alltaf spurðir um vilja
viðkomandi og geta slíkar upplýsingar, sem gefnar hafa verið, ráðið
úrslitum um hvort hægt verði að nýta líff ærin eða ekki.
Heimsleikar líffæraþega
Heimsleikar 2013. Laufey Rut á verðlaunapalli. Kjartan Birgisson við mótssetninguna
ásamt fylgdarkonu.
Kjartan Birgisson, Laufey Rut Ármannsdóttir og
Björn Magnússon.