Velferð - 01.06.2019, Síða 25
Velferð 25
Upplýsingar um notkun salts og áhrif þess
á blóðþrýstinginn
Einn af áhættuþáttum heilaáfalls er hár blóðþrýstingur en
blóðþrýstingur meira en 140/90 í hvíld er talinn vera of hár.
Fyrri talan er slagbilsþrýstingur (hærri mörk) eða sá þrýsting-
ur sem er í slagæðunum þegar hjartað dælir blóði til líkam-
ans en seinni talan er lagbilsþrýstingur (lægri mörk) þ.e. sá
þrýstingur sem er í slagæðum þegar hjartað slakar á milli
slaga og fyllist af blóði. Að þróa með sér háan blóðþrýsting
getur gerst á öllum aldri, hjá konum og körlum. Ýmsir þættir
í lífstíl okkar geta valdið hækkun á blóðþrýstingi og er ofgnótt
salts í fæðu okkar einn af áhættuþáttum fyrir hækkun á blóð-
þrýstingi.
Þótt salt sé nauðsynlegt næringarefni er saltskortur afar
ólíklegur og eru fl estir Íslendingar að fá meira en nóg af
salti. Ástæðan fyrir þessari ofgnótt er að salti er bætt nán-
ast í allan mat. Talið er að um ¾ hlutar þess salts sem við
neytum sé til staðar í matvælunum þegar við kaupum
inn. Flest tilbúin matvæli eru saltrík t.d. unnar kjötvör-
ur, tilbúnar sósur eða súpur, pizza o.fl . og salt er einnig
í vörum eins og morgunkorni, kexi, brauði og osti.
Flestir Íslendingar eru að fá of mikið salt úr sínu fæði þó fl est-
um fi nnist þeir ekki vera með saltan mat. Það þarf ekki að
hætta að borða saltan mat heldur er mikilvægt að draga úr
saltneyslu með því að velja sambærilegar fæðutegundir sem
eru minna saltar eða borða minna af söltum matvælum. Sem
dæmi má benda á að í brauðsneið með viðbiti og osti eru 324
mg af natríum (Na+) eða 0,8 g af salti, ein pulsa með öllu gef-
ur um 1,7 grömm af salti og einn bolli af tilbúinni súpu gefur
um 1,5 gramm. Auðvitað á ekki að hætta að borða brauð með
viðbiti og osti heldur má stundum skipta út ostinum með
epli, bönunum eða grænmeti og er þá saltið komið niður um
þriðjung.
Hvað er hófl egt magn salts?
Næringarráðleggingar miða við að salt sé ekki meira en 6
grömm á dag sem samsvarar um einni teskeið sem segir fl est-
um afar lítið því megin partur þess salts sem við neytum er
falið í matvörunum. Hér á eftir koma nokkur ráð til að draga
úr saltneyslu;
• Lesa á umbúðir, og velja saltminni vörur
• Bera saman sambærilegar fæðutegundir og velja þá sem
inniheldur minna af salti.
• Minnka skammta af osti, kjöt- og fi skiáleggi sem al-
mennt er saltað þ.e. nota áleggið eins og krydd á brauðið
og nota með grænmeti eða ávexti.
• Borða minna og sjaldnar reyktan og saltan mat.
• Ekki salta með kjöt-, fi ski- eða grænmetiskrafti eða til-
búnum sósum og reyna að velja saltminni tegundir.
• Velja saltsnauð krydd og hrein jurtakrydd eins og
papriku, basilikum, karrí, hvítlauk, chilí, sítrónu eða mis-
munandi pipar.
• Velja ókryddað kjöt eða fi sk í stað forkryddaðra matvæla.
Þegar salt er minnkað má búast við að lítið bragð fi nnist af
matnum í nokkrar vikur enda bragðskynið orðið ónæmt vegna
saltnotkunar. Til að auka bragðið af matnum má marinera kjöt
eða fi sk fyrir eldun, nota hvítlauk, engifer og nota mismunandi
tegundir lauks í matargerðina. Á sjávarfang er gott að nota
sítrónu- eða limesafa. Einnig getur verið gott að rista í ofni
fennel, papriku, eggaldin, hnetur og fræ til að draga fram bragð
þeirra. Þegar bragðlaukarnir hafa jafnað sig á að saltið hafi
minnkað njótum við annars og ölbreyttara brags af matnum.
Gott er að hafa í huga að frá náttúrunnar hendi er lítið salt
í fl estum matvælum. Því er nokkuð einfalt að minnka salt-
neysluna með því að velja oftar ferskar og óunnar matvörur
eins og grænmeti, ávexti, kjöt- og fi skiafurðir.
Með því að minnka saltneysluna er möguleiki á því að lækka
blóðþrýstinginn, vernda þannig æðakerfi líkamans og draga
úr líkum á að fá heilaáfall.
Ýmsar algengar fullyrðingar um salt og blóðþrýsting
Ég get ekki verið að fá of mikið salt þar sem ég salta ekki mat-
inn minn! Þar sem um 75% af öllu salti sem við borðum er í
matnum sem við kaupum t.d. morgunkorni, brauði, brauðá-
leggi, tilbúnum matvælum er mjög auðvelt að fá meira en ráð-
lagt magn salts, enda neyta fl estir Íslendingar of mikils salts.
Það er ekkert bragð af matnum nema að salta hann! Ef við erum
vön að salta matinn er eins og að við venjumst saltbragðinu og
þurfum að auka saltmagnið til að fi nna bragð af matnum. Því
tekur það bragðskynið nokkrar vikur að aðlagast nýju og betra
bragði af matnum sem við fundum ekki áður vegna saltbragðs.
Við fi nnum það á bragðinu hvort matur sé saltur! Margar
tilbúnar sósur, súpur eða mjög kryddaðar eða sætar fæð-
utegundir geta verið saltar án þess að við fi nnum það
á bragðinu því sykur og önnur krydd fela saltbragðið.
Aðeins gamalt fólk þarf að hafa áhyggjur af salti! Salt getur
hækkað blóðþrýsting fólks á hvaða aldri sem er, auðvitað eru
minni líkur á að fá heilaáfall eða hjarta- og æðasjúkdóma þegar
maður er ungur, en lækkun blóðþrýstings á hvaða aldri sem
er hefur verndandi áhrif á hjarta- og æðakerfi til framtíðar.
Náttúrulegt salt er betra en venjulegt salt! Efnasamsetning
salts er alltaf sú sama hvort við erum að tala um sjávarsalt,
náttúrulegt salt eða að saltið hafi verið framleitt í verksmiðju
og því hefur saltið sömu áhrif á líkamann hvaðan sem það
Dr. Ólöf Guðný Geirsdóttir
Salt: Ertu að fá of mikið af því?