Velferð - 01.06.2019, Page 32
Stuðningsnet sjúklingafélaganna
Hjartaheill er aðili að Stuðningsnetinu sem er samstarfsvettvangur
íslenskra sjúklingafélaga sem byggir á faglegum ferlum við
jafningjastuðning við sjúklinga og aðstandendur þeirra studningsnet.is
Stuðningsnet sjúklingafélaganna | studningsnet.is | 888-6623
Faglegt og gæðastýrt ferli við jafningjastuðning
Aðildarfélög Stuðningsnetsins óska eftir sjálfboðaliðum sem vilja gerast
stuðningsfulltrúar.
Verðandi stuðningsfulltrúi fer gegnum ítarlegt viðtal til að ganga úr skugga um
hvort viðkomandi hefur unnið úr eigin málum og er í stakk búinn að aðstoða aðra.
Stuðningsfulltrúar sitja 2 x 4 klukkustunda námskeið í jafningjastuðningi sem byggir
á þrautreyndri fyrirmynd frá Krafti, stuðningsfélagi fyrir ungt fólk sem greinst hefur með
krabbamein og aðstandendur þeirra.
Skjólstæðingar leita til Stuðningsnets sjúklingafélaganna gegnum studningsnet.is.
Fagmenntaðir umsjónaraðilar velja skjólstæðingi stuðningsfulltrúa við hæ að
undangengnu viðtali og mati.
Stuðningurinn getur farið fram í síma, tölvupósti eða augliti til auglitis, samkvæmt
samkomulagi skjólstæðings og stuðningsfulltrúa.
Umsjónaraðilar aa endurgjafar um hvernig til tókst hjá bæði skjólstæðingi og
stuðningsfulltrúa og grípa til viðeigandi ráðstafana ef frávik koma upp.
Stuðningsfulltrúar hljóta viðeigandi símenntun með reglulegu millibili.
Jafningjastuðningur
• Hefur þú þörf fyrir að tala við aðra sem hafa verið
í sömu aðstæðum?
• Veltir þú fyrir þér hvernig aðrir hafa tekist á við
að greinast með sjúkdóm?
• Ertu hugsi yr því hvaða áhrif sjúkdómurinn muni
hafa á daglegt líf þitt eða ölskyldu þinnar