Fréttablaðið - 21.11.2019, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 21.11.2019, Blaðsíða 10
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.isHöldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · BVA Egilsstöðum www.hekla.is/volkswagensalur Volkswagen T-Cross Volkswagen T-Cross er eyðslugrannur, afar sprækur og sérstaklega skemmtilegur. Hann er hægt að fá í þrenns konar útfærslum, beinskiptan og sjálfskiptan og sneisafullan af aðstoðarkerfum ásamt því að hann kemur einkar vel út búinn. Fullkominn frá öllum sjónarhornum Verð frá 2.990.000,- Samdráttur í útlánum til fyrirtækja og ákvarðanir íslenskra banka um að hækka vaxtaálag fyrirtækjalána eru merki um stefnubreytingu hjá íslensku bönkunum. Breytingarnar vekja spurningar um hvort íslensku bankarnir hafi lánað út of mikið og á of hagstæðum kjörum á síðustu árum. „Við erum að sjá aukna með- vitund hjá íslensku bönkunum um mikilvægi þess að einblína á arð- semi umfram vöxt. Í því samhengi má spyrja sig hvort útlánavöxturinn sem við sáum á síðustu árum hafi verið ákjósanlegur og hvort bank- arnir hafi einfaldlega verið að verð- leggja lánin of lágt,“ segir Kristrún M. Frostadóttir, aðalhagfræðingur Kviku banka, í samtali við Frétta- blaðið. Eins og greint var frá í Markað- inum í gær hefur Íslandsbanki fylgt í fótspor Arion banka með því að nýta ákvæði í lánasamningum við fyrir- tæki til þess að hækka vexti. Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, sagðist hafa heyrt dæmi hjá fyrirtækjum innan raða félagsins um að vaxtaálag ofan á Reibor-vexti hefði hækkað um allt að 1 prósentustig á lánum sem báru vaxtaálag á bilinu 1,2 til 1,5 pró- sentustig fyrir breytinguna. Hækk- unin væri því býsna drjúg. Arion banki tók af skarið fyrr á árinu þegar bankinn ákvað að byrja að nýta sér ákvæði um vaxtabreyt- ingardaga til þess að hækka vexti fyrirtækjalána. Í sumum tilfellum hækkaði vaxtaálagið um og yfir tvö prósentustig. Arion stefnir að því að minnka lánasafn bankans til fyrirtækja um 20 prósent fyrir árs- lok 2020 en útlánasafn bankans til fyrirtækja hefur dregist saman um tæplega sjö prósent á fyrstu þremur fjórðungum ársins. Á heildina litið hafa ný útlán íslensku bankanna til fyrirtækja dregist töluvert saman á milli ára. Kristrún segir að ástæðan fyrir auknu aðhaldi í útlánum til fyrir- tækja sé tvíþætt. Annars vegar hafi hægt á hagkerfinu og bankarnir dregið úr umsvifum sínum í takt. Áhættufælni aukist oft og tíðum hjá lánastofnunum á tímum niður- sveiflu. Hins vegar virðist aðhaldið endurspegla stefnubreytingu í rekstri bankanna. „Það má setja spurningarmerki við þá áherslu á útlánavöxt sem við sáum á síðustu árum áður en stefn- unni var breytt í ár. Útlánavöxtur einn og sér er ekki endilega mark- mið heldur að lánin séu arðbær og að hagkerfið geti staðið undir vext- inum,“ segir Kristrún. Og bendir á að útlánastarfsemi sé oftar en ekki sveifluaukandi. Hún ýki hagsveifl- una í báðir áttir. „Þegar vel gengur í hagkerfinu eykst útlánavilji að jafnaði, og sam- keppni um nýja viðskiptavini getur sett pressu á lánakjör. Hið öfuga á sér stað þegar hægir á. Þær áherslu- breytingar sem við sjáum nú benda til þess að líklega hafi útlánavextir verið of hagstæðir og útlánavöxtur- inn of mikill á undanförnum árum og að það sé að eiga sér stað leiðrétt- ing sem gerist samhliða niðursveiflu í hagkerfinu,“ segir Kristrún. Það sé þó ekki algjör tilviljun að ráðist sé í uppstokkun á bankastarfsemi núna, enda séu niðursveiflur oft nýttar í endurskoðun á rekstri. „Vissulega er óheppilegt að þessi stefnubreyting eigi sér stað á meðan Seðlabanki Íslands reynir að örva hagkerfið með vaxtalækkunum. Erf- itt er hins vegar að neyða bankana til að veita lán á kjörum sem standa ekki undir arðsemiskröfum, og eyða áhættufælni sem eykst á tímum niðursveiflu, nema arðsemiskröfur séu einfaldlega lækkaðar,“ bendir Kristrún á. Í þessu samhengi bendir hún einnig á að þegar stýrivextir eru orðnir jafn lágir og raun ber vitni geti reynst erfitt að lækka innlánsvexti. Þar myndist ákveðið gólf á kostn- aðarhliðinni sem geti leitt til þess að bankar þurfi að hækka vaxtaálag á grunnvexti. Ekki nýjar kvaðir Í samskiptum við fyrirtæki sem hafa þurft að sætta sig við hærra vaxta- álag hafa bankarnir borið fyrir sig bankaskattinn og háar eiginfjár- kröfur. Kristrún segir að þessir þættir hafi vissulega mikil áhrif en bendir á að þeir hafi verið til staðar um árabil. „Eiginfjárkröfur og bankaskatt- urinn eru ekki nýtilkomnar kvaðir þótt þær séu auðvitað íþyngjandi. Þegar bankarnir tóku ákvarðanir um útlánavöxt og útlánakjör þá vógu þessu þættir líka þungt. Það sem breyttist í ár var meðvitund um að undirliggjandi arðsemi væri ekki nógu góð. Þó að bankarnir búi við íþyngjandi regluverk þurfa þeir samt sem áður að horfa með gagn- rýnum augum á þau kjör sem þeir geta boðið,“ segir Kristrún. Lánuðu of mikið út á of lágum vöxtum Ný útlán íslensku bankanna til fyrirtækja hafa dregist töluvert saman á milli ára. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Það má setja spurningarmerki við þá áherslu á útlánavöxt sem við sáum á síðustu árum áður en stefnunni var breytt í ár. Kristrún M. Frostadóttir, aðalhagfræðing- ur Kviku banka Landsbankinn ekki á sömu línu Íslandsbanki og Arion banki hafa sem fyrr segir gripið til þess að nýta ákvæði í lána- samningum til að hækka vaxtaálag á fyrirtækjalánum. Árni Þór Þorbjörnsson, fram- kvæmdastjóri fyrirtækjasviðs hjá Landsbankanum, segir að bankinn sé ekki í neinum sér- tækum aðgerðum til að hækka vaxtaálag fyrirtækjalána. „Við höfum ekki verið að hækka vaxtaálag hjá fyrirtækj- um og engar slíkar sértækar aðgerðir eru á dagskrá. Arðsemi Landsbankans hefur verið ásættanleg á síðustu misserum og árum og það á einnig við um arðsemi af lánum til fyrir- tækja,“ segir Árni Þór í samtali við Fréttablaðið. Á fyrstu níu mánuðum ársins nam arðsemi eigin fjár bankans 7,9 pró- sentum, borið saman við 8,8 prósent á sama tímabili fyrir ári, en sé aðeins litið til þriðja ársfjórðungs þá var arðsemi Landsbankans 5,4 prósent. „Það er vissulega ákveðin áskorun fólgin í að halda viðunandi arðsemi á sama tíma og stýrivextir Seðla- bankans lækka því við erum ekki að sjá samsvarandi lækkun í allri fjármögnun bankans. Við höfum verið að veita samkeppnishæf kjör en á þeim forsendum að það sé til hagsbóta bæði fyrir bankann og viðskiptavini. Við tökum tillit til áhættu, viðskiptasögu, verkefnis og fjármögnunar við verðlagningu ásamt öðrum tilfallandi þáttum. Við erum sífellt að auka hagræði í rekstri bankans og það vegur á móti minnkandi vaxtamun,“ segir Árni. Breyttar áherslur við- skiptabankanna vekja spurningar um of mikinn útlánavöxt og of lág vaxtakjör á síðustu árum að sögn hagfræð- ings. Bankakerfið sé að ganga í gegnum leiðrétt- ingu. Landsbankinn ætlar ekki að hækka vexti fyrirtækjalána. Þorsteinn Friðrik Halldórsson tfh@frettabladid.is Árni Þór Þorbjörnsson. MARKAÐURINN 2 1 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 1 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :2 0 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 4 9 -3 0 1 4 2 4 4 9 -2 E D 8 2 4 4 9 -2 D 9 C 2 4 4 9 -2 C 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 2 0 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.