Fréttablaðið - 21.11.2019, Page 18

Fréttablaðið - 21.11.2019, Page 18
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Jón Þórisson jon@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Það blasir við að þetta ríkisstjórnar­ samstarf er lýjandi fyrir flokkinn. Áhersla Barnasátt­ málans á þátttöku barna er eitt mikilvægasta framlag hans til að vald­ eflingar barna. Í dag verður fyrsta barnaþingið sett í Hörpu með sér-stakri hátíðardagskrá. Á þinginu verða börn í aðal-hlutverki, fulltrúar úr ráðgafarhópi umboðsmanns barna munu sjá um fundarstjórn á hátíðardagskránni í dag og hópur barna sem valinn var með slembivali úr þjóðskrá mun leiða umræður um þau málefni sem á þeim brenna á þingi barna á morgun. Verndari barnaþings er frú Vigdís Finnbogadóttir og verður hún viðstödd hátíðardagskrá og setningu þingsins. Barnaþingið er skipulagt af umboðsmanni barna en á síðasta ári samþykkti Alþingi breytingar á lögum um umboðsmann barna þar sem kveðið var á um að umboðsmaður barna boði annað hvert ár til barna- þings þar sem farið verði yfir stöðu og þróun í mál- efnum barna á helstu sviðum samfélagsins en gert er ráð fyrir því að niðurstöður þingsins verði kynntar ríkisstjórn og hlutaðeigandi ráðherrum. Það er emb- ættinu mikill heiður að fá að standa að svo metnaðar- fullu verkefni sem án efa mun valda straumhvörfum í samráði við börn hér á landi. Embættið vinnur einnig að tillögum að aðgerðaráætlun um samráð við börn fyrir ríkisstjórnina, samkvæmt samningi við félags- og barnamálaráðherra, og mun barnaþingið verða mikil- vægur þáttur í samráði við börn á komandi árum. Í gær var haldið upp á þrjátíu ára afmæli Barnasátt- málans með margvíslegu móti, meðal annars héldu margir grunnskólar lýðræðisþing nemenda. Þetta er afar jákvæð þróun en innleiðing Barnasáttmálans gerir kröfu um aukna samfélagslega þátttöku barna og aðild þeirra að ákvarðanatöku í nærsamfélagi þeirra. Áhersla Barnasáttmálans á þátttöku barna er eitt mikilvægasta framlag hans til að valdeflingar barna. Segja má að ákvörðun ríkisstjórnarinnar um mótun sérstakrar aðgerðaráætlunar um þátttöku barna og ákvörðun Alþingis um að halda skuli barnaþing annað hvert ár með þátttöku barnanna sjálfra, sé ein mikil- vægasta gjöf þeirra til íslenskra barna, nú þegar því er fagnað að 30 ár eru liðin frá því að Barnasáttmálinn var samþykktur. Barnaþingið mun valda straumhvörfum Salvör Nordal umboðsmaður barna Þegar stofnað var til núverandi ríkis-stjórnarsamstarfs voru ekki aðrir skyn-samlegri kostir í boði. Vitað var að þetta samstarf yrði áhættusamt fyrir Vinstri græna en flokksmenn bitu á jaxlinn. Þeim fannst ýmislegt á sig leggjandi til að formaður þeirra yrði forsætisráðherra og Katrín Jakobsdóttir hefur staðið sig með mikilli prýði í því embætti. Það er þó orðið deginum ljósara að þessi ríkisstjórn er einnota. Henni verður kastað í næstu kosningum. Þetta hljóta Vinstri grænir að vita og helsta áhyggjuefni þeirra hlýtur að vera hversu mikið þetta ríkisstjórnarsamstarf hefur skaðað þá. Á bjartsýnisdögum sínum á velmeinandi fólk sem ekki styður Sjálfstæðisflokkinn það til að hugsa sem svo að þessi stærsti f lokkur landsins sé ekkert svo slæmur. Það er til dæmis fínt að trúa á frjálst framtak einstaklingsins meðan viðkomandi er ekki að svína á öðrum. Það er líka allt í lagi að einhverjir auðgist meir en aðrir meðan þeir skila sínu til samfélagsins en eru ekki að skjóta gróðanum undan. „Það má alveg vinna með þessum flokki eins og öðrum,“ hugsar bjartsýnismaðurinn. En það bregst vart að þegar þessi hugsun er farin að hreiðra um sig, gera og segja forystumenn Sjálfstæðisflokksins hluti sem ekki er hægt að sætta sig við. Hið skelfilega Samherjamál kom upp og formaður Sjálfstæðisflokksins lét hafa eftir sér í erlendu blaði að í því máli væri spilltum stjórnvöldum í Namibíu hugsanlega um að kenna. Rétt eins og Samherja- menn hafi ekki átt annan kost en að ganga inn í spillt kerfi og vinna innan þess þar sem það sé eiginlega eina leiðin til að geta grætt í landi eins og Nami- bíu. Þannig gerast nú bara kaupin á eyrinni, hugsar frjálshyggjufólkið í Sjálfstæðisflokknum, sem lítur svo á að gróði sé alltaf góður. Formaður Samfylkingarinnar, Logi Einarsson, ákvað að forvitnast á þingi um skoðun forsætisráð- herra á þessum orðum fjármálaráðherra landsins. Forsætisráðherra svaraði spurningu hans ekki beint. En það er ómögulegt annað en að ætla að Katrínu Jakobsdóttur hafi verið brugðið vegna þess viðhorfs sem opinberaðist í orðum manns sem hún ákvað á sínum tíma að ganga til samstarfs við. Það getur heldur ekki verið að henni þyki eðlilegt að sjávar- útvegsráðherra landsins, Kristján Þór Júlíusson, sitji sem fastast á ráðherrastóli, þrátt fyrir að vera tengdur Samherja ofur sterkum böndum. Allir vita að Vinstri grænir hefðu í stjórnarand- stöðu gagnrýnt Bjarna Benediktsson af sömu hörku og Samfylkingin vegna orða hans og jafnframt þrumað að sjávarútvegsráðherra yrði að stíga til hliðar. Flokksforysta Vinstri grænna gerir það vitan- lega ekki, hún ætlar sér að þrauka í ríkisstjórnar- samstarfi sem er orðið þrúgandi fyrir f lokkinn. Hinir almennu flokksmenn hljóta að vera miður sín. Skiljanlega. Það blasir við að þetta ríkisstjórnarsamstarf er lýjandi fyrir f lokkinn og dregur úr honum þrótt og kjark. Fjölmargir kjósendur hans eru farnir að líta í aðrar áttir. Samstarfið – við Laugalæk Ekkert hveiti Ekkert soyja Enginn sykur Ekkert MSG Íslenskt kjöt Íslensk framleiðsla Osta- pylsur sem slá í gegn. Mannasættir óskast Enn einn stólaleikurinn er hafinn, nú um stól ríkissátta- semjara. Bryndís Hlöðvers- dóttir hverfur á braut um áramótin og verður enn merkilegri embættismaður en áður. Viðkomandi þarf að fylla stórt skarð enda er mikið að gera í húsakynnum sáttasemjara. Það er einn augljós valkostur á lausu, það er mannasættirinn Ólína Þor- varðardóttir. Mjög gagnlegt Ríkisútvarpið hefur aldrei haft það opinbera hlutverk að stuðla að læsi þjóðarinnar. Þvert á móti tryggir RÚV að ólæsir landsmenn eigi greiðan aðgang að upplýsingum í útvarpi og sjónvarpi. Það er hins vegar áhyggjuefni að ólæsir einstaklingar sjái um að stjórna batteríinu. Síðustu sex ár hefur staðið í lögum: „Ríkisútvarpið skal stofna og reka dótturfélög.“ Þessa stafa- súpu hefur engum í stjórninni tekist að leysa á öllum þessum tíma. Ráðuneytið kann hins vegar að lesa og var f ljótt að átta sig á að ráða sama spunameistara og LÍN. Var fyrirsögnin „Gagnleg úttekt Ríkisendurskoðunar á rekstri Ríkisútvarpsins“. Fyrsta niðurstaðan er að fara þurfi að lögum. Mjög gagnlegt. bjornth@frettabladid.is 2 1 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R18 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 2 1 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :2 0 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 4 9 -5 2 A 4 2 4 4 9 -5 1 6 8 2 4 4 9 -5 0 2 C 2 4 4 9 -4 E F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 2 0 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.