Fréttablaðið - 21.11.2019, Blaðsíða 30
Það var því viðbúið
að spiltími minn
myndi minnka hjá Leipzig
þar sem við vorum orðnir
þrír í vinstri skyttustöð-
unni hjá liðinu.
Úrslitin í deildinni í
lok síðasta keppnis-
tímabils og byrjun þessa
tímabils hafa verið þvílík
vonbrigði.
Daniel Levy,
framkvæmda-
stjóri Tottenham
Miðað við fjármagn
er ótrúlegt hvað
hann gerði. Tottenham var
topp sex félag. Hann gerði
það að topp
fjögur félagi.
Jamie Carragher,
sparkspekingur
2 1 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R22 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
FÓTBOLTI Tottenham Hotspur hefur
aðeins unnið þrjá titla á síðustu 28
árum. Það er ekki nóg fyrir eigendur
sem hafa byggt nýjan völl og eru
með lið fullt af landsliðsmönnum
víða að og gæði innan vallar sem
utan. Félagið rak stjóra sinn, Arg-
entínumanninn Mauricio Pochett-
ino, á þriðjudagskvöldið og réð José
Mourinho. Mourinho hefur unnið
titla alls staðar þar sem hann hefur
drepið niður fæti og á að dusta rykið
af bikaraskápum Tottenham.
Það voru ekki endilega mikil
tíðindi að Pochettino hefði verið
rekinn heldur tímasetningin á
brottrekstri hans. Pochettino hefur
aðeins náð í 24 stig í síðustu 25
deildarleikjum. Hann tapaði 7-2
fyrir FC Bayern í Meistaradeildinni
og það virtist augljóst eftir úrslita-
leikinn gegn Liverpool að Argent-
ínumaðurinn væri kominn á enda-
stöð með liðið. Leikmenn vildu
annaðhvort fara eða ekki semja og
spilamennskan var eftir því. Með
þessu fylgdu úrslit sem hæfa ekki
liði sem spilar á einum flottasta velli
Evrópu og telur sig vera eitt af stóru
liðunum. En þeir hafa líka litlu eytt
í leikmenn. Mourinho mun ekki líða
það. Það hefur sagan sýnt. Á þeim
fimm árum sem Pochettino var
við stjórnvölinn eyddi Tottenham
engum stórkostlegum upphæðum
og frægt að félagið eyddi engu í 18
heila mánuði. Það mun ekki gerast
á vakt Mourinho.
Í grein The Athletic kemur fram
að Argentínumaðurinn hafi verið
búinn að tapa klefanum og leik-
menn virtu hann sífellt minna. Þeir
voru orðnir þreyttir á kröfum hans
og undruðust taktík hans fyrir leiki.
Fyrir einn leik fengu þeir einmitt
lítil sem engin fyrirmæli og töpuðu.
Þó stukku leikmenn til samfélags-
miðla og þökkuðu fyrrverandi
stjóra sínum fyrir tímann og óskuðu
honum alls hins besta.
Fyrir tíma Pochettino hafði Tott-
en ham aðeins endað tvisvar á meðal
fjögurra efstu síðan enska úrvals-
deildin hóf göngu sína. Argentínu-
maðurinn kom og gerði félagið að
einu af stóru félögunum en nú vilja
eigendurnir meira. Og leita til Mour-
inho sem vinnur bikara hvar sem
hann drepur niður fæti.
Á að setja bikara í tóma bikarskápa
Tottenham kom mörgum á óvart þegar félagið rak Mauricio Pochettino og réð Jose Mourinho. Liðið hefur fengið 24 stig í síðustu 25
leikjum. Liðið spilar á nýjum velli og er með leikmenn í heimsklassa. Eigendurnir vilja ekki bara vera með heldur vinna eitthvað líka.
HANDBOLTI Viggó Kristjánsson
færði sig fyrr í þessari viku um set
innan þýsku úrvalsdeildarinnar í
handbolta karla. Viggó sem gekk til
liðs við Leipzig í vor ákvað að fara til
Wetzlar en hann samdi við félagið
til næsta vors.
„Ég hafði verið í viðræðum við
forráðamenn Leipzig og ég hafði
hug á að vera þar áfram. Ég hef verið
að spila þó nokkuð í upphafi keppn-
istímabilsins og naut mín bæði
innan vallar og utan. Þeir sögðu mér
hins vegar að þeir ætluðu að veðja á
unga þýska skyttu sem er uppalin
hjá félaginu,“ segir Viggó í samtali
við Fréttablaðið um vistaskiptin.
„Það var því viðbúið að spiltími
minn myndi minnka hjá Leipzig þar
sem við vorum orðnir þrír í vinstri
skyttustöðunni hjá liðinu. Wetzlar
vantaði vinstri skyttu og spurðist
fyrir um hvort möguleiki væri á að
ég kæmi þangað. Mér fannst það fín
lending að semja við þá fram á vorið
og skoða svo stöðuna þegar þegar að
kemur með framhaldið,“ segir hann
enn fremur.
„Þetta er lið sem er um miðja
þýsku efstu deildina og ég sé fram á
að vera í stóru hlutverki hjá liðinu.
Það var svo sem ekki skortur á spil-
tíma hjá Leipzig og ég átti til að
mynda góðan leik á móti Melsung-
en um síðustu helgi. Sú staða var
hins vegar líklega að fara að breyt-
ast þannig að ég ákvað að breyta til,“
segir þessi f linka skytta.
„Það er töluvert öðruvísi að búa í
Leipzig sem er stórborg en Wetzler
sem er lítill og afar rólegur bær.
Umgjörðin hjá Wetzlar er eins og
best verður á kosið en bærinn er
ekki eins stór og Leipzig. Það er
gaman að hafa upplifað báðar hlið-
ar af Þýskalandi og að hafa prufað
að búa bæði í Austur- og Vestur-
Þýskalandi. Við búum flestir í liðinu
í sömu blokkinni sem er bara fínt
upp á að koma mér inn í hópinn. Ég
er að taka við af portúgalskri skyttu
hérna sem náði ekki að finna sig,“
segir Viggó sem spilaði sína fyrstu
landsleiki þegar íslenska liðið mætti
Svíþjóð í vináttulandsleikjum fyrr í
þessum mánuði.
„Mig langar auðvitað að fara
með á Evrópumótið í janúar og
vonandi náði ég að standa mig vel í
leikjunum á móti Svíum og í næstu
leikjum með Wetzlar þannig að ég
verði í hópnum þegar þar að kemur.
Möguleikinn á að komast í lands-
liðið hafði einhver áhrif á þessi
félagaskipti en þó ekki úrslitaáhrif.
Ég hlakka mjög til þess að sýna mig
og sanna með Wetzlar og sjá hvort
það skilar mér í EM-hópinn,“ segir
Viggó en fyrsti leikur hans með
Wetzlar verður á móti Minden á
laugardaginn kemur. – hó
Sá fram á að fá minni spiltíma hjá Leipzig innan tíðar
José Mourinho hefur tekið við stjórnartaumunum af Mauricio Pochettino hjá Lundúnarliðinu Tottenham Hotspur. NORDICPHOTOS/GETTY
Viggó vonast til þess að fara með Íslandi á EM. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Mourinho stýrði æfingum í gær
enda leikjaprógramm Tottenham
ekkert grín. West Ham um helgina
en liðin eru engir perluvinir. Mið-
vikudaginn 4. desember er það svo
Old Trafford, 11. desember fer liðið
til Bayern og 22. desember er það
Stamford Bridge. Mourinho hefur
verið að búa til nýja ímynd af sér
með því að sitja í sjónvarpinu og
er nánast búinn að þurrka af sér
fýlukalla stimpilinn. Eitt er víst, þó
að Tottenham sé nú í 14. sæti er liðið
skyndilega til alls líklegt.
Hvað næst fyrir Pochettino?
Argentínumaðurinn hefur staðið
sig vel hjá Tottenham þrátt fyrir
skor t á verðlaunapening um.
Enginn skyldi dæma hann á
genginu undanfarna átta mánuði
í deildinni. Frá því að hann tók við
Totten ham hefur félagið orðið eitt
af þeim stóru á Englandi. Það er
vissulega laust starf hjá FC Bayern
í Þýskalandi, sem vann Tott-
enham 7-2 í Meistaradeildinni.
PSG hefur lengi horft löngunar-
augum til síns fyrrverandi leik-
manns en Pochettino spilaði 70
leiki fyrir félagið frá 2001-2003.
Thomas Tuchel, sem þar stýrir,
gæti þurft að horfa yfir öxlina á
sér þó liðið hafi tekið framförum
í byrjun tímabilsins. Manchester
United hefur einnig horft til hans
þótt Ole Gunnar sé enn við stýrið.
Þá hefur seinni bylgja Zidane hjá
Real Madrid ekki gengið þrauta-
laust. Pochettino verður ekki lengi
án atvinnu.
Í grein The Athletic segir að Arg-
entínumaðurinn Pochettino hafi
fengið boð frá eiganda félagsins
um að segja af sér en neitað.
benediktboas@frettabladid.is
2
1
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:2
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
4
9
-5
2
A
4
2
4
4
9
-5
1
6
8
2
4
4
9
-5
0
2
C
2
4
4
9
-4
E
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
2
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K