Fréttablaðið - 21.11.2019, Side 32
Ólafur Thorlacius
lyfjafræðingur,
Grænumörk 2, Selfossi,
lést 17. nóvember sl. á
Heilbrigðisstofnun Suðurlands,
Selfossi. Kveðjustund verður
þriðjudaginn 26. nóvember nk. kl. 15.00
á Hótel Örk, Hveragerði, 2. hæð. Þeim sem vilja minnast
hans er bent á styrktarreikning Stígamóta:
101-15-630999, kt. 620190-1449.
Guðrún Jónsdóttir
Ragnheiður Thorlacius Runólfur Sigursveinsson
Dagný Jónasdóttir, Jóhanna Runólfsdóttir,
Guðrún Runólfsdóttir og langafabörnin Mikael og Salka.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og einlægur vinur,
Árni Þ. Þorgrímsson
fv. flugumferðarstjóri,
lést í faðmi fjölskyldunnar á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
þann 18. nóvember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Helga Árnadóttir Árni Árnason
Þorgrímur St. Árnason Ásdís María Óskarsdóttir
Eiríka G. Árnadóttir Þórður M. Kjartansson
Ragnheiður Elín Árnadóttir Guðjón Ingi Guðjónsson
barnabörn og barnabarnabörn
Emilía Ósk Guðjónsdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
systir og amma,
Magnea S. Sigmarsdóttir
sjúkraliði,
lést á Hrafnistu, Boðaþingi,
fimmtudaginn 14. nóvember.
Marteinn Karlsson Esther Gerður Högnadóttir
Sigmar Örn Karlsson
Egill Karlsson Katrín Guðjónsdóttir
Anna Eygló Karlsdóttir Jóhannes Níels Sigurðsson
Guðlaug Sigmarsdóttir Hafliði Baldursson
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar,
Jóna Hólmfríður
Guðjónsdóttir
lést á dvalarheimilinu Lundi, Hellu,
föstudaginn 8. nóvember.
Fríða Á. Björnsdóttir
Víðir Ásgeirsson
Ómar Ásgeirsson
Björk Ásgeirsdóttir
og aðrir aðstandendur.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Sverrir Guðmundsson
Kópavogsbraut 1a,
Kópavogi,
lést 14. nóvember.
Útförin fer fram frá Digraneskirkju
mánudaginn 25. nóvember kl. 13.
Guðlaug Sverrisdóttir
Aðalsteinn Sverrisson Rannveig Ragnarsdóttir
Guðmundur Sverrisson Björk Berglind Arnljótsdóttir
og afabörn.
Okkar ástkæri faðir, afi og langafi,
Ólafur Th Ólafsson
kennari og myndlistarmaður,
lést þann 16. nóvember sl. á
hjúkrunarheimilinu Ási. Hann
verður jarðsunginn frá Selfosskirkju
mánudaginn 25. nóvember kl. 14.
Elín Vigdís Ólafsdóttir
Hrund Ólafsdóttir
Bragi Ólafsson
Sigrún Sól Ólafsdóttir
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Við þökkum auðsýnda samúð, hlýhug
og stuðning vegna andláts og útfarar
ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Steinunnar Gísladóttur
Sunnuhlíð, áður Gullsmára 7.
Sérstakar þakkir færum við
starfsfólki Sunnuhlíðar fyrir hlýtt viðmót,
virðingu og góða umönnun.
Hulda Leifsdóttir Bjarni Pálsson
Hafdís Leifsdóttir Sigurbjörn Sigurðsson
Ingibergur Sigurðsson Ingibjörg Magnúsdóttir
ömmubörn og langömmubörn.
540 3320 • gardheimar.is
blomabud@gardheimar.is
Leyfðu okkur
að aðstoða þig!
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Hjörtur J. Hjartar
lést sunnudaginn 17. nóvember.
Útförin fer fram frá Neskirkju,
laugardaginn 23. nóvember kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á MND-félagið
eða önnur líknarfélög.
Jakobína Sigtryggsdóttir
Sigtryggur Klemenz Hjartar Ragnheiður Guðmundsdóttir
Ragna Hjartar Simon Reher
barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, bróðir og mágur,
Þorsteinn Ólafur
Þorsteinsson
viðskiptafræðingur,
Lækjargötu 20, Hafnarfirði,
lést á heimili sínu föstudaginn 8. nóvember.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn
22. nóvember kl. 13.
Svana Berglind Karlsdóttir
Bríet Mjöll Þorsteinsdóttir
Elísabet Sóldís Þorsteinsdóttir
Alexandra Ísfold Alexandersdóttir Viktor Smári
Sigurjónsson
Sigrún Guðmundsdóttir Friðrik Jónsson
Pétur Þorsteinsson Kristín Ármannsdóttir
Jóna Þorsteinsdóttir Sveinn Jóhannsson
Heiðdís Þorsteinsdóttir Pálmi Egilsson
1931 Fyrsta leikritið er flutt í Ríkisútvarpinu, kaflar úr
Bóndanum á Hrauni eftir Jóhann Sigurjónsson.
1976 Sýrlandsher leggur Líbanon undir sig.
1981 Um 350.000 manns mótmæla kjarnavopnum í Ant-
werpen í Belgíu.
1984 Samkvæmt könnun Hagvangs á gildismati og
mannlegum viðhorfum reynast Íslendingar vera ham-
ingjusamasta þjóð í heimi.
1990 Japanska leikjatölvan Super Nintendo Entertain-
ment System kemur á markað.
1990 Parísarskráin er undirrituð af fulltrúum Kanada,
Sovétríkjanna, Bandaríkjanna og þrjátíu og tveggja Evr-
ópuríkja. Hún er stundum talin marka formleg endalok
kalda stríðsins.
1995 Dayton-samningurinn sem bindur endi á Bosníustr-
íðið er undirritaður Ohio í Bandaríkjunum.
Merkisatburðir
Þetta er þvílík fæðing og henni fylgir bæði fögnuður og þreyta, segir Halldóra Arnardóttir listfræðingur. Hún er komin heim til Akur-eyrar frá Spáni með 400
blaðsíðna bók um föður sinn, Örn Inga
Gíslason listamann. Bókin heitir Lífið
er LEIK-fimi og var að mestu skrifuð á
samnefndri sýningu í Listasafninu á
Akureyri í fyrravetur.
„Ég lýsti sögu pabba fyrir grafíska
hönnuðinum á Spáni. Þar kom meðal
annars fram að hann vann í banka en
þó honum liði þar vel félagslega fann
hann sig ekki, ákvað að hætta og reyna
fyrir sér sem myndlistarmaður. Faðir
minn var þekktur fyrir sína gjörninga og
bókin er lítill gjörningur. Utan um hana
er askja úr stáli, kuldinn frá stálinu á að
tákna bankastarfið. Bókin er hins vegar
þakin blaðgulli og af henni stafar birta
sem tákn um þá sköpun og það frelsi sem
fylgir listinni.“
Halldóra kveðst hafa fengið marga
samferðamenn til að segja frá Erni Inga
í bókinni, hvernig var að vinna með
honum og hvað hann skildi eftir. „Ég
vildi vita hvað við getum lært af honum.
Hann var stundum kallaður Gjörn Ingi
og hann fékk byr og líka mótbyr. Ég vona
að bókin verði fólki innblástur.“ Bókin
kemur út á Amtsbókasafninu á Akureyri
í dag og verður kynnt í Reykjavík í næstu
viku. gun@frettabladid.is
Bókin er lítill gjörningur
Halldóra Arnardóttir listfræðingur hefur skrifað bók um föður sinn, fjöllistamanninn
Örn Inga Gíslason (1945-2017). Hún nefnist Lífið er LEIK-fimi og kemur út í dag.
Halldóra með bókina um arfleifð föður hennar, Arnar Inga. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
2 1 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R24 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
2
1
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:2
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
4
9
-4
D
B
4
2
4
4
9
-4
C
7
8
2
4
4
9
-4
B
3
C
2
4
4
9
-4
A
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
2
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K