Fréttablaðið - 19.01.2019, Síða 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta-
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
UMBOÐSAÐILI FIAT Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
ÁRA5ÁBYRGÐ
fiat.is
FIAT TIPO - LÍKLEGAST BESTU BÍLAKAUPIN
BJÓÐUM ÖRFÁA FIAT TIPO Á HREINT
FRÁBÆRU VERÐI FRÁ KR. 3.090.000 KR.
Fiat Tipo er einn rúmbesti bíllinn í sínum stærðarflokki og með
frábæra aksturseiginleika.1400 bensín beinskiptur 120 hö.
*B
íll
in
n
þa
rf
að
v
er
a
sk
oð
að
ur
TÖKUM ALLA BÍLA UPP Í Á 500.000 KR.*
Lilja Alfreðsdóttir
mennta- og menningarmálaráðherra
Lilja vill auka
aðsókn í kenn-
aranám og
vinnur að
frumvarpi
sem gengur
út á að starfs-
nám kennara
verði launað og
að kennaranemar
fái sérstaka styrki.
Skúli Eggert Þórðarson
ríkisendurskoðandi
Ríkisendur-
skoðun gerir
athugasemdir
við eftirlit
Fiskistofu í
nýrri stjórn-
sýsluúttekt.
Þá bárust fréttir
af fyrirhugaðri
úttekt á RÚV en auk þess hefur
fjárlaganefnd óskað eftir úttekt á
Íslandspósti.
Sindri Þór Stefánsson
Sindri var í
héraðsdómi
dæmdur í
fjögurra og
hálfs árs
fangelsi fyrir
stórfelldan
þjófnað úr
gagnaverum í
svokölluðu Bitcoin-
máli.
Þrjú í fréttum
Styrkir, úttekt á
RÚV og dómur
TÖLUR VIKUNNAR 14.1.2019 - 18.1.2019
50
milljarðar er árlegur
samfélags-
legur
kostnaður
vegna
lélegrar
svefn-
heilsu.
67%
Íslendinga hafa
áhyggjur af þeim
áhrifum sem lofts-
lagsbreytingar geta haft,
samkvæmt nýrri könnun
Gallup.
381
kvörtun barst til umboðsmanns
Alþingis á síðasta ári. Embætt-
inu tókst að ljúka afgreiðslu 84
prósenta þeirra á árinu.
1.300 milljónir mun kosta að gera lag-
færingar á Landeyjahöfn til að
hún nýtist sem best fyrir nýjan
Herjólf sem á að hefja siglingar
milli lands og Eyja á árinu.
878
milljarðar
króna gætu
hafa safnast
í auðlinda-
sjóð árið
2035 miðað
við að lagður
yrði sæ-
strengur.
ZZZ Z
KJARAMÁL „Það er ljóst að okkar
áherslur verða í skattamálum og
húsnæðismálum. Svo eru ýmis
sérmál okkar eins og jöfnun launa
milli almenna og opinbera vinnu-
markaðarins og áframhaldandi
launaþróunartrygging. Við leggjum
líka mikla áherslu á styttingu vinnu-
vikunnar,“ segir Sonja Ýr Þorbergs-
dóttir, formaður BSRB, um komandi
kjaraviðræður.
Alls losna 152 kjarasamningar í
lok mars næstkomandi en þar eru
undir flestir starfsmenn ríkis og
sveitarfélaga. Samkvæmt lögum
þurfa aðilar að skila viðræðuáætl-
unum til ríkissáttasemjara tíu
vikum fyrir þann tíma og rann sá
frestur út í gær.
Um hádegi í gær höfðu emb-
ættinu borist 14 áætlanir en taka
skal fram að heildarsamtök geta
gert sameiginlega áætlun fyrir sín
aðildar félög. Í svari frá ríkissátta-
semjara kemur fram að von sé á
fleiri áætlunum eftir helgi en ekki
liggi fyrir hversu margar þær verði.
Sonja segir að stutt sé í að kröfur
aðildarfélaga BSRB verði klárar.
„Þetta er farið að skýrast. Það eru
búnir að vera fundir hjá aðildar-
félögunum og samningseiningum
BSRB þar sem við erum að ræða
hverjar verða sameiginlegar kröfur
gagnvart stjórnvöldum og viðsemj-
endum.“
Félagsmenn BSRB eru um 21
þúsund talsins og losna samningar
meginþorra þeirra í lok mars. „Það
er okkar stefna að tryggja lægstu
launin þannig að það er samstaða
með aðildarfélögum ASÍ hvað það
varðar. Svo eru áherslur okkar svip-
aðar í skatta- og húsnæðismálum,“
segir Sonja.
Varðandi samráð við stjórnvöld
bendir Sonja á að von sé á tillögum
átakshóps um húsnæðismál von-
andi í næstu viku. „Það er auðvitað
mikilvægt að taka það samtal og
það er tilraunarinnar virði að fá fólk
til að sameinast um tillögur. Ég ætla
að leyfa mér að vera bjartsýn.“
Umræðan um skattamálin sé hins
vegar svolítið á eftir. „Þau eru á dag-
skrá í samtali við stjórnvöld næsta
þriðjudag og það verður áhugavert
að heyra af því. Þau mál verða samt
auðvitað ekki kláruð á einum degi.“
sighvatur@frettabladid.is
Segir samhljóm með áherslum
BSRB og Alþýðusambandsins
Formaður BSRB segir að áherslan í komandi kjaraviðræðum verði á skattamál, húsnæðismál og styttingu
vinnuvikunnar. Samstaða sé með málflutningi Alþýðusambands Íslands varðandi lægstu launin. Samning-
ar á opinbera vinnumarkaðnum losna í lok mars en frestur til að skila viðræðuáætlunum rann út í gær.
Stytting vinnuviku eitt af stóru málunum
„Tilraunaverkefni um styttingu vinnuvikunnar hafa sýnt fram á jákvæðar
niðurstöður, bæði hvað varðar líðan og svo sýna þær ekki annað en að af-
köstin séu þau sömu. Þannig að þetta er vel hægt. Þess vegna spyrjum við
að því hvers vegna það séu ekki allir búnir að taka þetta upp,“ segir Sonja.
Hún segir styttinguna einnig stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnu-
markaði. „Það er þannig í dag að einn þriðji hluti kvenna á vinnumarkaði
er í hlutastarfi og meginástæðan er fjölskylduábyrgð. Við erum þannig
að horfa til þess að konur geti frekar verið í fullu starfi og samt samþætt
fjölskyldu- og atvinnulíf. En við sjáum líka út úr rýniviðtölum að körlum er
gefið meira svigrúm til að taka þátt í fjölskyldulífinu.“
Sonja Ýr, sem hér sést ávarpa þing ASÍ, segir margt sameiginlegt í áherslum BSRB og ASÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
1 9 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð