Fréttablaðið - 19.01.2019, Síða 25
V iðar Guðmundsson, prófessor í eðlis-fræði, Ragnheiður Þorleifsdóttir, fram-kvæmdastjóri Hug-smiðjunnar, Henry
Alexander Henrysson, prófessor
í heimspeki, og Karl Friðriksson,
framtíðarfræðingur og forstöðu-
maður hjá Nýsköpunarmiðstöð
Íslands og stjórnarformaður
Framtíðarseturs Íslands, velta
fyrir sér framtíðinni, vænt-
ingum og ýmsum áskorunum
sem reiknað er með að sam-
félagið þurfi að fást við.
Er hægt að spá fyrir um
framtíðina?
„Það má reyna og það
er nauðsynlegt,“ segir
Viðar Guðmundsson,
prófessor í eðlisfræði
við Háskóla Íslands, en
segir fortíðina sýna að
slíkar spár verði fljót-
lega lélegar. „Slíkar
spár framlengja oft
ríkjandi ástand línu-
lega, eins eru spár sem
byggja meira á draum-
órum og eru lítils virði.
Í besta lagi fá spárnar
okkur til að huga að
núverandi ástandi,“ segir
Viðar.
Hann segist viss um að
við sjáum ekki fyrir allar
breytingar sem verði orðnar á
samfélagi okkar árið 2050 eða
2100. „Tölvutæknin mun enn
aukast. Miklar breytingar verða
í uppbyggingu og þróun örgjörva
og minniseininga sem erfitt er að
sjá fyrir. Skammtatölvur verða enn
á jaðrinum. Þróun þeirra er hafin,
en spennandi langtíma glíma
við tæknilega örðugleika er fram
undan. Fjárfesting í þróun örgjörva,
og íhluta í samskiptatæki og tölvur
mun enn vaxa, og rafeindaiðnaður-
inn í heild verða enn stærri en nú
um mundir,“ segir Viðar sem segir
samfélagið munu einnig neyðast
til að taka á umhverfisvá, þróun
lýðræðis, mannlegum samskipta-
vanda, menntun og vísindalæsi.
Ný skammtatölva kynnt
IBM kynnti á dögunum nýja
skammtatölvu, IBM Q System One.
Hvaða þýðingu hefur það? Hvers eru
þær megnugar?
„Grunneiningarnar eru enn
nokkuð stórar, á millimetraskal-
anum. Í framtíðinni verður hægt
að smækka þær og heilda eins og
einingar hefðbundinna tölva í hálf-
leiðarakerfum með uppbyggingu
á nanóskala. Fyrir skammtatölvur
verður það enn dýrari og erfiðari
þróun en fyrir hefðbundnu eining-
arnar. Takist þetta vel er augljóst
að ýmsir reikningar fyrir vísindin
verða miklu hraðari og möguleiki
á að reikna ýmsa eiginleika stórra
flókinna kerfa opnast. Þetta mun
gagnast í lyfjaþróun, hönnun á
efnum með vissa sértæka eigin-
leika. Eðlisfræðingar munu fjalla
um eðlisfræði flókinna kerfa, eins
og heila, taugakerfis, og lífs,“ segir
Viðar og segir heimsmyndarfræðin
einnig munu hagnast á skammta-
tölvum.
Fyrirtæki farin að gyrða sig í brók
Henry Alexander Henrysson er
heimspekingur og aðjunkt við Sagn-
fræði- og heimspekideild Háskóla
Íslands. Hann sinnir rannsóknum
á hagnýtri siðfræði og gagnrýnni
hugsun og segir að á síðastliðnum
árum hafi orðið vitundarvakning
um að skyldur okkar við komandi
kynslóðir séu raunverulegar skyld-
ur. „Maður sér til dæmis merki
um þetta í því hvernig mörg fyrir-
tæki eru farin að taka samfélags-
lega ábyrgð fastari tökum. Enn þá
er þó tvennt sem veldur áhyggjum
varðandi þessa þróun. Annars vegar
geta skyldur við komandi kynslóðir
stangast á við nærtækari skyldur
okkar. Við þurfum stöðugt að vera
rýna hugsun gætu stuðst við tækni-
legar lausnir sem munu aðstoða
okkur við að greina staðreyndir frá
áróðri og forða okkur frá glapsýnum
og hleypidómum,“ segir Henry og
nefnir að þannig geti ný tækni um
tíma vegið að mikilvægum gildum
og jafnræði en síðar mögulega
orðið mikilvæg undirstaða. „Jákvæð
niðurstaða veltur á því að akademía
og atvinnulíf taki höndum saman,“
segir hann.
Réttindi vinnandi fólk
Í flestum spám þar sem horft
er skammt fram í tímann, til
dæmis til 2030 og 2050, er
reiknað með umfangsmikl-
um breytingum á vinnu-
markaði vegna framfara á
sviði gervigreindar. Henry
segir litla stefnumótun í
gangi um hvernig við
ætlum að bregðast
við þeim. „Það sem í
raun telst siðferðilega
ámælisvert er þegar
þeir, sem treyst er til
að stjórna samfélag-
inu, telja það rétt-
mætt að bregðast við
eftir á. Við getum sem
samfélag haft gríðar-
lega mikið að segja
um hvernig við viljum
bregðast við fyrirsjáan-
legum breytingum á
vinnumarkaði. Eitt er
að aðlaga menntakerfið
að þessum breytingum,
en það er ekki síður mikil-
vægt að huga að því hvernig
hugað verður að réttindum
vinnandi fólks í þessu nýja
umhverfi. Mun okkur til dæmis
lánast að sýna almennilegt vald-
þrek til að tryggja að sprotafyrir-
tæki sem byggja á nýsköpun eigi
tækifæri í heimi þar sem sífellt færri
fyrirtæki, sem hvergi borga opinber
gjöld sem nokkru nemur, eiga sífellt
stærri sneið hagkökunnar? Það er
ekki endilega ætlað atvinnuleysi
sem verður alvarlegasta afleiðing
vitvélavæðingarinnar heldur er
spurningin hvort við treystum þeim
fyrirtækjum sem nú standa best að
vígi til að leiða þessa þróun,“ segir
Henry.
Grænkerar unnu rökræðuna
Hvernig sérðu fyrir þér heiminn og
manneskjuna í honum árið 2050?
En 2100?
„Að einhverju leyti erum við að
horfa fram á grundvallarbreytingar
á manneskjunni á næstu áratugum
– breytingar sem urðu mjög skýrar
á sjóndeildarhringnum á síðasta ári.
Sumt snertir lífsstíl okkar. Því var
stungið að mér að eftir nokkra ára-
tugi muni enginn borða kjöt í sama
mæli og í dag. Mér þykir það líklegt
enda sýnist mér grænkerar hafa
unnið hina siðferðilegu rökræðu,“
segir Henry.
„Þá var einnig nefnt við mig að
það muni þykja stórkostlega sið-
ferðilega ámælisvert að aka sjálfur
bifreið yfir vissum hraða. Við
munum horfa til baka og hugsa
hvaða ábyrgðarleysi það hafi verið
að láta einstaklinga í mismunandi
ástandi stjórna svona tækjum á
þjóðvegum. Hugbúnaður mun
alveg taka yfir slíkt. En þetta mun
einnig rista dýpra. Mig grunar að
árið 2050 muni það einnig þykja
mikið ábyrgðarleysi að geta barn
og fæða upp á gamla mátann. Fólk
sem geri það sé að leggja byrðar á
samfélagið. Allir fósturvísar verða
skimaðir fyrir sjúkdómum og
óæskilegum útlitseinkennum. Slíkt
verður grundvallarkrafa fyrir sam-
ábyrgð í heilbrigðisþjónustu. Fólk af
sama kyni mun líklega einnig geta
átt börn saman án þess að þurfa
kynfrumur frá gagnstæðu kyni. Að
minnsta kosti mun konum standa
þessi möguleiki til boða árið 2050.
Allt þetta mun gjörbreyta skilningi
okkar á eigin tilvist og tilveru. Sumt
verður jákvætt og annað neikvætt
eins og gengur. Mig grunar að ein-
hverjir muni spyrja hvers vegna við
völdum að feta þessa slóð. Svarið
verður líklega á þann veg að þetta
gerðist bara. Við munum horfa til
Grænkerar í
sjálfkeyrandi
bílum
Það sem framtíðin ber í skauti sér reynist oft rót-
tækara en spáð var og sagan sýnir að spár um
framtíðina verði fljótt lélegar. Reynsla okkar og
menning villir sýn. En við sjóndeildarhringinn má
greina spennandi breytingar. Þróun skammta-
tölva er hafin og gervigreind og tækni við notkun
algóritma við ákvarðanatöku fleygir fram.
að vega og meta ólíkar skyldur og
hverjar séu þær mikilvægustu í til-
teknum aðstæðum. Það er ekki nóg
að viðurkenna bara skyldur við
komandi kynslóðir – við þurfum að
vera viðbúin því að eiga í stöðugri
ígrundun um ólíkar skyldur okkar
og mér finnst við almennt ekki vera
vel búin undir að eiga í þessum
vangaveltum,“ segir Henry.
„Seinna atriðið er að þrátt fyrir
að mörg fyrirtæki séu eins og áður
sagði farin að gyrða sig í brók hvað
varðar áhrif á samfélag og umhverfi,
þá eru mikilvægustu aðilarnir seinir
til. Hin alþjóðlegu stórfyrirtæki eru
almennt ekki að gera merkilega
hluti í þessum málum. Það sama
á við um kjörna fulltrúa víða um
heim,“ segir Henry og segir að í veru-
leika þessara mikilvægu aðila, til
dæmis í umhverfismálum, ráði enn
skammtímasjónarmið ársfunda eða
kosninga.
Gervigreind og gagnrýn hugsun
Getur tækni leyst (eða þvert á móti,
aukið) ákveðin siðferðileg vanda-
mál?
„Hver einasta tækninýjung skapar
siðferðileg álitamál. Hún getur orðið
að vandamáli ef við gætum okkar
ekki á því hvernig hún mótar líf
okkar. Þetta sjáum við bæði hvað
varðar nýja tækni í heilbrigðis-
vísindum og í þeirri samskipta-
tækni sem stöðugt hefur meiri áhrif
á líf okkar. Í samtímanum höfum
við til dæmis miklar áhyggjur af
því hvernig samfélagsmiðlar og sú
gervigreind sem þeir byggja orðið
á stjórna skoðunum okkar. Mér
finnst ekki ólíklegt að við náum
betri tökum á þessari tækni og að
algóritmar verði fljótlega farnir að
aðstoða okkur á uppbyggjandi máta
við skoðanamyndun. Fjöldamargir
þættir þess sem við köllum gagn-
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
1 9 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð