Fréttablaðið - 19.01.2019, Qupperneq 55
Vegagerðin gegnir mikilvægu þjónustuhlutverki á sviði stafrænnar þjónustu og upplýsingamiðlunar
til að vinna að öruggum og greiðum samgöngum í þágu samfélagsins alls.
Vegagerðin rekur öfluga upplýsingatæknideild sem sinnir rekstri, innleiðingu og þróun upplýsingakerfa.
Nú vantar okkur metnaðarfullan og öflugan stjórnanda til að leiða starfsemi upplýsingatæknideildar
og þróun á stafrænum þjónustum. Leitað er að aðila með mikla samskiptahæfni, tæknilega þekkingu
auk reynslu af stjórnun starfsmanna og verkefna á sviði upplýsingatækni.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun í tölvunarfræði, verkfræði eða tengdum greinum.
• Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi.
• Farsæl og árangursrík reynsla af stjórnun upplýsingatæknimála.
• Reynsla af verkefnastýringu við hugbúnaðarþróun.
• Þekking á upplýsingaöryggi, gæðaferlum og gagnastýringu.
• Reynsla af breytingastjórnun æskileg.
• Framúrskarandi samskiptafærni.
• Frumkvæði, metnaður og fagmennska í starfi.
• Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
• Góð kunnátta í talaðri og ritaðri íslensku og ensku.
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður sem hentar jafnt báðum kynjum.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 4. febrúar 2019. Nánari upplýsingar um starfið veita
Jónas Snæbjörnsson framkvæmdastjóri þróunarsviðs (jonas.snaebjornsson@
vegagerdin.is) eða Sigurbjörg J. Narby Helgadóttir mannauðsstjóri (sigurbjorg.
helgadottir@vegagerdin.is) og í síma 522 1000. Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá
og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur um hæfi til að gegna umræddu
starfi. Umsóknir berist Vegagerðinni á netfangið starf@vegagerdin.is. Tekið skal fram
að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Forstöðumaður
upplýsingatækni
Ábyrgð og verkefni
• Þátttaka í stefnumótun og þróun
stafrænnar þjónustu.
• Upplýsingaöryggi, gæði og rekstraröryggi
upplýsingakerfa.
• Þróun, innleiðing og rekstur upplýsingakerfa.
• Áætlanagerð og kostnaðareftirlit.
• Ábyrgð á stjórnun, rekstri og starfsmanna-
málum upplýsingatæknideildar.
Starfsmaður í
útflutningsskjalagerð
Iceland Seafood ehf óskar eftir að ráða öflugan einstak-
ling í starf við útflutningsskjalagerð. Starfið felst í umsjón
og gerð útflutningsskjala, innkaupa og tollafgreiðslu fyrir
útflutning fyrirtækisins.
Hæfniskröfur:
• Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Gott vald á íslenskri og enskri tungu
• Góð tölvukunnátta og þekking á Navision er kostur
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristrún Sigursteins-
dóttir í síma 550 8000. Umsóknir ásamt starfsferilsskrá og
kynningarbréfi óskast sendar á netfangið
jobs@icelandseafood.is.
Umsóknarfrestur er til og með 26 janúar nk.
Iceland Seafood ehf er dótturfélag Iceland Seafood Interna-
tional. Iceland Seafood ehf er leiðandi útflutningsfyrirtæki
á sjávarafurðum frá Íslandi til markaða um allan heim. Við
bjóðum viðskiptavinum okkar uppá fjölbreyttar afurðir og
kappkostum að veita hágæðaþjónustu á öllum sviðum.
STARFSMAÐUR
Á SKRIFSTOFU
Starfsmannafélag Garðabæjar, STAG,
auglýsir eftir þjónustulunduðum og
sjálfstæðum starfsmanni í 100% starf
á skrifstofu félagsins.
Helstu verkefni:
• Færsla bókhalds og afstemmingar
• Skráning og svörun fyrirspurna
• Almenn skrifstofustörf
• Umsjón með heimasíðu félagsins
• Samskipti við þjónustuaðila,
t.d. vegna orlofshúsa
Hæfniskröfur:
• Mjög góð bókhaldskunnátta
• Almenn tölvukunnátta
• Reynsla af skrifstofustörfum
• Góð íslenskukunnátta og geta til að
koma frá sér efni í ræðu og riti
• Þekking á kjarasamningsmálum er kostur
• Lipurð í samskiptum
Nánari upplýsingar um félagið og starfsemi þess
má finna á www.stag.is.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist á netfangið formadur@stag.is. Umsóknarfrestur er til og með 7. febrúar 2019. Laun eru skv. kjarasamningum STAG.
STAG er stéttarfélag starfsmanna sem starfa hjá
Garðabæ og er aðili að BSRB.
HELSTU VERKEFNI
• Móttaka og eftirfylgni pantana
• Samskipti við viðskiptamenn og
umbjóðendur
• Skráning og eftirfylgni ábendinga frá
viðskiptavinum
• Vinna samkvæmt gæðakerfi fyrirtækisins
og gátlistum deildarinnar
• Verðskráningar, útreikningar og skýrslugerð
• Önnur tilfallandi verkefni
HÆFNI OG REYNSLA
• Góð tölvukunnátta (NAV, Excel og rafræn viðskipti)
• Þjónustulund og skipulagshæfileikar
• Greiningarhæfni og nákvæm vinnubrögð
• Leiðtogahæfileikar
• Menntun og reynsla sem nýtist í starfi
• Frumkvæði og geta til að starfa undir álagi
Distica sérhæfir sig í dreifingu á lyfjum, heilsuvörum, neytenda-
vörum og vörum fyrir heilbrigðisþjónustu og rannsóknarstofur og
hefur verið í fararbroddi á sínu sviði í rúmlega 50 ár. Fyrirtækið er
með um 70% af lyfjadreifingu á Íslandi auk þess sem það sinnir
dreifingu á rannsóknartækjum, rekstrarvörum og fleiru til sjúkra-
húsa, hjúkrunarheimila, tannlækna og dýralækna.
Distica sinnir einnig dreifingu á neytendavörum til verslana.
GILDI DISTICA ERU
ÁREIÐANLEIKI HREINSKIPTNI FRAMSÆKNI
VIÐSKIPTAÞJÓNUSTA
STAÐGENGILL DEILDARSTJÓRA
Distica óskar eftir að ráða eldkláran einstakling sem vill tilheyra öflugum hópi starfsmanna
viðskiptaþjónustu og sinna með þeim krefjandi verkefnum.
Umsóknarfrestur er til 25. janúar nk. Farið verður
með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum
umsækjendum verður svarað.
Tekið er við umsóknum rafrænt í gegnum
ráðningarvef Distica www.distica.is og eru
umsækjendur beðnir um að láta ferilskrár og
kynningarbréf fylgja með.
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Gerður B. Pálmarsdóttir, deildarstjóri
viðskiptaþjónustu í síma 412 7532 og í tölvupósti
gerdur@distica.is.
Distica-atvinnuaugl 190118 copy.pdf 1 17/01/2019 11:19